Jól og notalegheit !
Miðvikudagur, 26. desember 2007
Gleðilega hátíð allir nær og fjær.
Við erum búin að hafa það mjög notalegt yfir mestu hátíðardagana. Á aðfangadag komu12 sveinar í heimsókn eins og vanalega og færðu krökkunum pakka. Það er alltaf mikil eftirvænting þegar komu þeirra er beðið og gott að hafa stóra glugga sem hægt er að hlaupa á milli þegar þeir nálgast.
Dýrunn fékk svo aukaheimsókn, tveir sveinar sem færðu henni glaðning frá sparisjóði nokkrum sem gefur fyrstu bekkingum eitthvað spennandi hver jól.
Frúin fór til messu meðan bóndinn og börnin græjuðu það allra síðasta fyrir matinn og kveiktu á kertunum. Það var síðan mikið stuð í pökkunum eftir dýrindis svínahrygg sem bráðnaði uppi í manni. Smáfólkið datt útaf seint og um síðir og sváfu óvenjulengi á okkar mælikvarða.
Á hádegi á jóladag örkuðum (á bílnum því rigningin hamaðist við að bræða jólasnjóinn) við til mömmu og borðuðum hangikjöt. Lágum svo í leti þar fram eftir degi og smátt og smátt tíndist það sem eftir er af fjölskyldunni á Stöddanum í kaffi. Það var því margt um manninn á Grenimelnum.
Í dag, annan í jólum var letibrókast fram eftir morgni, svo tók við jólaballsundirbúningur hjá frúnni og ballið var haldið klukkan þrjú. Það lukkaðist vel, var nokkuð rokkað þar sem hljómsveitin Ultimate jólabandið (best að hafa þetta rétt eftir núna, ég gerði villu á auglýsingunni) spilaði undir, fjórir fjallmyndarlegir drengir sem voru búnir að æfa stíft síðustu daga. Þeir stóðu sig vel og tóku nokkur lög í lokin sem hægt var að tjútta við. Sveinkarnir mættu en voru heldur þreyttir eitthvað og lölluðu í kringum tréð smáfólkinu samt til mikillar ánægju.
Þetta er alltaf gaman og á morgun er mesti hátíðleikinn búinn í bili, þar til áramótin koma en þeim ætlum við að verja á Akureyri og förum á föstudagsmorgun.
Hafið það gott og ég læt heyra frá mér væntanlega á nýju ári....................................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Litlu jólin ...
Fimmtudagur, 20. desember 2007
voru haldin í skólanum í gær. Þau voru með hefðbundnu sniði og allir þokkalega sáttir við að vera komnir í jólafrí.
Um kvöldið voru svo litlu jól kennara eins og lög gera ráð fyrir. Oft höfum við hist í skólanum og borðað saman en erum aðeins að byrja að breyta til. Í fyrra voru "Kertaljós og klæðin rauð" hjá Þórönnu og Jóa sem var notalegt en endaði með útkalli slökkviliðsins (nokkrir meðlimir voru í partýinu og ekki alveg án áhrifa hehe).
Í ár slóum við saman í veislu og borðuðum hjá Guðnýju og Jóa. Það var ekki slor. Hver haldið þið að hafi séð um matinn?? Jú mikið rétt, meistarakokkurinn sjálfur og kalkúnninn og meðlætið rann ljúflega niður ásamt guðaveigunum. Á eftir fengum við að sjálfsögðu heimalagað konfekt nammi namm. Þetta var mjög skemmtileg stund og á svona samkomum er við hæfi að hafa eitthvað sprell. Ég setti saman smá klausu um hvern kennara og maka og það tengdist því hvernig við komum okkur á fætur á morgnana og í vinnuna, nema ég tók lýsingarorðin í burtu og fékk fólkið til að skrifa ákveðið mörg lýsingarorð um hvern og einn. Útkoman var nokkuð skrautleg og ég læt fylgja hér pistilinn um okkur hjónin.
"Fleiri farfuglar vakna spengilega á morgnana. Jósef lætur klukkuna hringja klukkan hálf sex en er harður og ákveður að lúra svolítið lengur. Hverfur aðeins of óaðfinnanlega inn í draumalandið og hrekkur upp með rólegum andfælum þegar klukkan hennar Sollu hringir upp úr sex. Hendist kynþokkafullur upp úr rúminu og er horfinn med det samme á átt að Eskifirði."
"Solla mætir ákveðin þegar hún mætir í vinnuna. Samt nær hún aldrei að mæta eins krúttlega og Gurra. Þegar líða fer á daginn fer hún að undirbúa jógað sitt. Í dag ætlar hún að hafa mjúkan og hávaxinn tíma. Það er svo broshýrt svona rétt fyrir jólin að vera stórfættur. "
Svo er það gátan fyrir Stöddara: Hvaða hjón eru þetta?
-------- mætir lítil í skólann á morgnana. Það er sama hvað Solla reynir að mæta stórt alltaf er ------ mætt klárust allra. Hún er reyndar í fyndnum málum núna því heima hjá henni er "allt í drasli" og hún er snögg hrædd um að ónefnd sjónvarpskona mæti með vélarnar inn á gafl hjá henni.
-------- fær sér stjórnsama rettu áður en hann leggur af stað. Hann sýgur að sér forvitið
morgunloftið á pallinum og nýtur viturrar útiverunnar. Hann er glæsilega seinn fyrir þennan dag því hann átti eftir að taka virðulega úr uppþvottavélinni og búa sætt um rúmið.
Svör óskast....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bingó !
Mánudagur, 17. desember 2007
Já gamla góða Súlubingóið klikkar aldrei, góð mæting og þrusu góðir vinningar. Spiluð var 21 umferð og samt var búið að sameina vinningana þannig að hver vinningur var mjög veglegur. Við mæðginin höfðum heppnina með okkur. Friðrik reið á vaðið og fékk bingó mjög snemma. Hann skrapp reyndar á klósettið og þá setti mamman bingókraftana í spjaldið hans og hver talan af annarri dúkkaði upp. Hann náði þó að klára dæmið og galaði stoltur BINGÓ ! þegar síðasta talan kom. Hann fékk jólakúlur, tvær inniseríur og 5000 þús. króna gjafakort í Samkaup/Sparkaup og öllu því batteríi. Svo stuttu síðar kom að mömmunni og ég fékk forláta kaffivél á spjaldið hans Jósef (hann komst því miður ekki því það var mjög svo mikilvægur leikur í enska boltanum). Friðrik ætlaði ekki heldur því hann hefur aldrei fengið bingó og var viss um að hann fengi ekki. Þegar heim var komið var hann heldur sperrtur og tilkynnti "Maður fer nú líklega á bingó á næsta ári." Önnur serían er komin upp í herbergið hans en hin sem er blá 100 ljósa innisería er meiri höfuðverkur. Við vorum að spá í að skella henni á jólatréð og hafa það með bláum sjarma þetta árið.... spurning hvernig það tónar við gylltu sjatteringuna mína hehe.
Ég var búin að setja fókusinn á aðalvinninginn, matarkörfuna góðu en það voru allir hinir búnir að gera líka, samt sat ég lengi með eina tölu og Dýrunn líka. Hún var orðin ósköp þreytt í lokin enda er hún ekki alveg búin að vinna upp fullan kraft eftir veikindin. En karfan fór á góðan stað eins og allir hinir vinningarnir og Súlan fékk dágóðan slatta í sjóðinn sinn sem ætlaður er til kaupa á tækjum í íþróttahúsið þegar aðstaðan uppi verður kláruð.
Já hún Dýrunn er komin á beinu brautina og síðasta blóðprufa sýndi alveg nóg af hvítum blóðkornum og hugsanlega hafa kokkarnir og sennilega veirusýking valdið þessari lækkun. Þungu fargi var létt af foreldrunum og þegar hún fékk fréttirnar eftir hádegi á laugardag sagði hún "jibbí, þá þarf ég ekki að biðja guð áfram að gefa mér fleiri hvít blóðkorn" svo kom sú næsta "má ég fara út?"
Og út fór hún með vinkonu sinni, reyndar beint niður í Logaland og hún kom ekki heim fyrr en daginn eftir því þær vinkonur þurftu að vinna upp tapaðan tíma og Dýrunn fékk að gista hjá Kolbrúnu. Það var þokkalegt stuð.
Friðrik naut samverunnar með foreldrum sínum og bísnaðist yfir því að aðrir foreldrar skyldu ekki fara eftir útivistarreglunum því alveg undir tíu var slatti af liði á sparkvellinum sem átti að vera farinn heim klukkan átta. Hann var sáttur enda alltaf kósíkvöld á laugardagskvöldum hjá okkur.
Að öðru leyti er allt á rólegum nótum, jólakortin fara flest í póst í dag og þeir pakkar sem ég póstsendi. Það er svo skemmtilegt að ég slaka alltaf meira á því nær sem líður að jólum og ýmislegt sem er á verkefnalistanum í upphafi des. er strikað út þegar nær dregur því margt af því flokkast ekki undir bráðnauðsynlegt hehe.
Njótið aðventunnar áfram.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sú gamla rann í gegn...
Föstudagur, 14. desember 2007
Já gamla Toyotan rann í gegnum skoðunina um daginn á innan við tíu mínútum held ég og án allra athugasemda. Seigt í þeirri gömlu.
Við tókum daginn snemma í dag eins og vanalega en vorum aðeins fyrr á ferðinni en á venjulegum degi. Dýrunn var bókuð í blóðprufu á Reyðarfirði klukkan átta og klukkutíma fyrr settum við deyfikrem á handlegginn svo hún fyndi ekki eins til þegar stungið yrði. Þetta er fjórða blóðprufan sem hún fer í á einni og hálfri viku og það tekur á hjá ekki eldri manneskju. Hún er algjör hetja og kippir sér ekki upp við stunguna og fylgist spennt með. Við fáum að vita á morgun hver staðan er með hvítu blóðkornin hennar. Hún er hress þannig séð en ósköp föl þessi elska. Við förum að sjálfsögðu eftir fyrimælum læknis, að taka því rólega og mér þykir líklegt að hún fari ekki í skólann fyrir jólafrí, því mestu máli skiptir að hún nái að jafna sig. Litlu jólin verða á miðvikudaginn og ég ætla að leyfa henni að fara á þau og jafnvel jólatónleikana líka, þar er hún ekkert að brasa eða hamast. Hún er búin að missa af svo miklu í jólaundinbúningnum í skólanum en við höfum reynt að bæta það upp sem mest hér heima. Auðvitað er hún að brasa helling heim enda nennir hún ekki að liggja í rúminu þegar hún finnur ekki fyrir neinu. Hún býr um rúmið sitt og bróður síns og uppsker stórt knús að launum þar dag hvern. Svo tekur hún úr uppþvottavélinni og lætur í hana aftur þegar hún er í stuði, þurrkar af og tekur til. Neinei það er engin barnaþrælkun í gangi en henni þykir þetta bara svo skemmtilegt. Í gær skrifaði hún upp piparkökuuppskrift úr stærðfræðibókinni sinni og setti hjá uppskriftunum mínum, ekki dónalegt að geta bakað þær einhvern daginn.
Í gær var jólaföndur í skólanum, mjög veglegt og fínt. Flestir máluðu jólatré og settu gervisnjó og glimmer og nokkrir gerðu serviettumyndir í ramma, mjög flott. Það var líka hægt að gera jólasvein á sleif, svolítilð dúllerí og aðallega fyrir mömmur. Ég keypti tvo svoleiðis til að gera heima og eitt tré sem Dýrunn er að sjálfsögðu búin að mál og það er komið upp.
Þarna er hún með fína tréð sitt.
Um helgina verða áfram rólegheit. Ég fer á Jólabingó Súlunnar á sunnudaginn sem er árviss viðburður og enginn má missa af á svæðinu. Svo ætla ég líka að klára frá restina af jólagjöfunum sem ég ætlaði reyndar að klára á Akureyri, en margt fer öðruvísi en ætlað er og þá er plönunum bara breytt.
Eigið þið eins góða helgi og þið viljið......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sm af og vigtin niður...
Þriðjudagur, 11. desember 2007
Já það er frekar á hinn veginn á aðventunni þegar jólahlaðborð og ýmislegt gúmmulaði eru sífellt á boðstólum. Við erum nokkur saman að passa að aðventan og jólin verði ekki upp á við á vigtinni og fötin minnki ekki um jólin og fram til þessa hefur allt verið á niðurleið hjá mannskapnum, á jákvæðan hátt þ.e. sentimetrar hverfa og nokkur hundruð grömm í hverri viku.
Hvað erum við að gera? Jú þetta er allt Herbafólk og við erum fyrir það fyrsta að skerpa notkunina á vörunum, hreyfa okkur og bæta aðeins við ef eitthvað er, samt er enginn í einhverri mega líkamsrækt. Hugsa jákvætt, vera í góðu skapi, drekka nægilegt vatn og NJÓTA AÐVENTUNNAR. Hljómar vel ekki sagt?
Nú er langt síðan ég hef dregið spil úr bunkanum góða og það er vel við hæfi á þessum blauta og hála desemberdegi: Góð heilsa er gulli betri.
Og fleiri voru ekki þau orð..... aðventukveðja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bragðvont stál
Mánudagur, 10. desember 2007
"Mér finnst þetta stál ógeðslega vont" sagði Dýrunn en sökum þess hve hún reyndist lág í járni fékk hún járnmixtúru sem henni þykir frekar bragðvond. Hún mundi ekki alveg hvers kyns málmur þetta var svo svona kom þetta upp úr henni. Hún er að hressast og fór í skólann í dag eftir viku fjarveru en tekur því rólega. Við skruppum samt á Fáskrúðsfjörð í blóðprufu og á morgun fáum við úr henni. Hún fær að fara með vinkonunum í Egilsstaði að hitta fimleikahópinn, þær ætla að gera eitthvað skemmtilegt, spila bingó og fleira.
Hafið þið heyrt af pabbanum sem var svo duglegur að skreyta húsið sitt og lét seríur allan hringinn á þakinu (á Hólalandi 18 sem er þokkalegt þak)? Sko, seríurnar virkuðu í fyrra þegar þær voru teknar niður svo það var ekki talin ástæða til að prufa þær áður en þær voru settar upp..... Þegar hann sagði "Verði ljós" gerðist ekkert. Það er bara búið að fara tvær ferðir upp á þak til að reyna að finna perurnar sem ekki virka en allt kemur fyrir ekki. Gurra hélt um daginn að það væru geimverur uppi í brekku þegar hún sá fjólublátt ljós hreyfast ótt og títt að því er virtist í brekkunni. Þá var það Jósef uppi á þaki með ljósið hans Friðriks sem hann fékk frá slökkviliðinu. Sumir hafa núið honum þessu nokkuð um nasir og ónefndur skólastjórin í þarþarnæsta húsi sendi Jósef sms þegar hann var með sína seríu á eldhúsborðinu og búinn að kveikja á henni. Vonandi finnst hvað er að svo við getum fengið lýsingu á þakskeggið fyrir jól.
Í dag fer gamla Toyotan í skoðun og ég krossa fingur og vona að allt sé í lagi. Hún virkar fínt þessi elska en orðin svolítði slitin, aðallega sætin og henta ekki vel til langferða, ráðlagt að taka teygjustopp reglulega, hléæfingar hétu það í frystihúsinu. Hún hefur fylgt okkur í gegnum súrt og sætt og gerir það enn um sinn þar til við sjáum smugu til að uppfæra í nýrra eintak. Hún fer sennilega bráðum að flokkast undir fornbíl. Ég get þá kannski brunað á henni suður og sýnt hana á hafnarbakkanum á 17. júní eins og hina fornbílana hehe.
Ég var að glíma við að setja aðventuljósið mitt sem toppmynd á síðuna en það gekk ekki vel, þið sjáið brot af gardínunum fallega rauðar svo ljósið kemur hér. Smá jólajóla.
Hafið það áfram eins og þið viljið á aðventunni.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kossaflens-a-
Laugardagur, 8. desember 2007
"Ertu með kossaflensu" Sagði Dýrunn í morgunsárið þegar henni þótti Friðrik of ákafur við að knúsa mömmu sína. Þetta er nú meira kossaflensið sagði mamma stundum þegar henni þótti nóg um enda ekki mikið fyrir að sýna þannig atlot eða horfa á. Þetta er svolítið flott orð kossaflens og greinilegt að börnin mín hafa heyrt það frá móður sinni en hér er nóg um kossa og knús svo það er notað í gríni.
Það er ómetanlegt að geta hafið daginn með knúsum og kossum, það fylgir svo sannarlega inn í daginn. Þannig hefjast helgarmorgnarnir oft á tíðum þegar foreldrarnir eru ekki of latir og vilja kúra en oftast er ég nú útsofin á milli hálf átta og átta enda ekki mikið að daldrast fram eftir nóttu, er svona meiri morgunmanneskja heldur en kvöld og næturmanneskja, er það ekki A ??
Jósef missti af morgunknúsinu því hann var horfinn til vinnu fyrir átta. Það er törn hjá honum þessa dagana og hann fékk sér smá aukavinnu og er að rifja upp gamla takta og er að mála í húsi hjá fyrrverandi vinnufélaga.
Við hættum við Norðurferð í gær því Dýrunn er ekki orðin nógu hress og við Jósef fórum með hana á Norðfjörð í gær í aðra blóðprufu því læknirinn vildi láta athuga hana nánar. Hún er ekki með einkirningssótt né veirusýkingu og líklega streptókokkarnir sem eru að ganga svona á hana greyið. Nú tekur hún því rólega áfram um helgina og það verður dekrað við hana á alla kanta hehe. Hún fer svo á mánudaginn í annað tékk. Hún er algjör hetja þessi elska og tekur þessu með jafnaðargeði. Það fór nú ansi sterkur tilfinningafellibylur í gang í móðurinni en ég trúi að hún hristi þetta af sér.
Á meðan við vorum á ferðalagi var aðventuhátíð í kirkjunni hér heima. Friðrik söng með barnakórnum líkt og hann hefur gert frá því hann var á sínu fyrsta ári í leikskóla, smá stubbur. Það lukkaðist víst vel og kennarinn var mjög glaður að fá Friðrik í kórinn því hann syngur svo hátt og vel og kann alltaf textana sína. Hann var nú ekki sáttur við að þurfa að bera jólasveinahúfu, er kominn á þann aldur að það er fyrir neðan hans virðingu en mamman gaf sig ekki enda fyrirmæli frá prestinum. Ekki hafa allar mömmur verið að spá í þetta því nokkrir af þeim elstu eru allir búnir að "tína" sínum húfum
Um helgina ætla ég að njóta samverunnar með börnunum mínum. Stússa í þrifum (bara þessum venjulegu, engir veggir eða loft), skreyta meira og baka með krökkunum. Piparkökurnar eru alveg eftir og tilvalið að skella í þær, hóa í vinina úr Logalandi og baka við dúndrandi jólatónlist. Gerist það nokkuð betra?
Góða helgi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bjarg á veginum !
Fimmtudagur, 6. desember 2007
Oft þykir mér frekar óspennandi að keyra skriðurnar á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur þegar tíðin hefur verið rysjótt eins og núna, frost og rigning til skipis því þá hrynja nú niður hnullungar af ýmsum stærðum og gerðum á veginn sérstaklega í Kambaskriðunum. Ég fer því yfirleitt ekki í þannig umskiptum en hef ekki komist hjá því undanfarnar vikur þar sem ég hef verið með jóganámskeið í Breiðdalnum.
Í gær hentist ég yfir til að kenna jógað og það var svona smá mulningur og litlir steinar og ég varpaði öndinni léttar þegar ég var komin fram hjá mesta hættusvæðinu að mínu mati. Skyggnið var frekar slæmt svo þegar ég var á heimleið klukkutíma síðar fór ég extra varlega þennan kafla, í það minnsta það hægt að ég gæti stöðvað með litlum fyrirvara. Viti menn, heljarinnar hlunkur var á miðjum veginum einmitt þar sem litlu steinarnir höfðu verið klukkutíma fyrr, veit ekki hvort hann skilgreinist sem steinn eða bjarg hehe en hann var nokkuð stór. Ég sveigði snilldarlega framhjá honum og þegar ég var komin úr skriðunum hringdi ég í Jósef til að biðja hann að tala við Vegagerðina svo hægt væri að fjarlægja hann af veginum. Keyrði svo sallaróleg heim, þegar heim var komið sagði Jósef að konan hjá Vegagerðinni hefði sagt "Hvað er hann enn á veginum, það var hringt fyrir klukkutíma og beðið um að láta sækja hann". Þá fór um mig smá hrollur því hann hefur sem sagt pompað niður rétt eftir að ég fór um og fyrsti bíll væntanlega verið svo almennilegur að láta Vegagerðina vita. Hvers vegna enginn var mættur á staðinn veit ég ekki og sé enga ástæðu til að fárast yfir því en væntanlega er þessi elska horfinn niður í fjöru núna. Ég held áfram að kenna mitt jóga í Breiðdalnum og bið hnullungana vinsamlegast um að halda sig í fjöllunum meðan ég og aðrir bílar keyra þarna um.
Að öðru leyti er þetta frekar skrýtin vika. Dýrunn er búin að vera lasin og ég verið heima hjá henni. Það er alltaf frekar leiðinlegt að vera frá vinnu þetta lengi og einhvern veginn verður mér lítið úr verki hér heimavið. Daman er á batavegi og á morgun föstudag fáum við að vita úr blóðprufum sem voru teknar í gær, hvort þetta tengist streptókokkunum, er veirusýking eða einkirningssótt. Og vonandi hressist hún sem fyrst svo hún geti tekið þátt í öllu því skemmtilega sem verið er að bardúsa á aðventunni.
Hafið það áfram eins og þið viljið.......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Aðventan
Mánudagur, 3. desember 2007
Þeir sem reka inn nefið á þessa síðu hafa tekið eftir að manneskjan er ósköp róleg í bloggfærslum þessa dagana. Ekki er ástæðan sú að lítið sé um að vera heldur hefur mig ekkert langað að setjast við tölvuna og skrifa. Við höfum haft í nógu að snúast. Fyrir nokkru var árshátíð í skólanum og krakkarnir stóðu sig rosalega vel. Yngsta stigið tók fyrir Astrid Lindgren og sungu og léku af hjartans list. Þetta eru alltaf spennuþrungnir dagar og verið að slípa og æfa fram á síðustu stundu. Allt gekk ljómandi vel þrátt fyrir erfiða generalprufu. Það er hægt að skoða myndir á www.austurbyggd.is/grunnskoli ásamt ýmsu úr skólastarfinu.
Hinn árlegi jólamarkaður var síðustu helgina í nóvember og það er alltaf mikill viðburður. Það er mikilvægt í okkar litla samfélagi þegar stór hluti bæjarbúa sækir atvinnu á næstu firði og fólk hittist ekki dags daglega að hafa viðburð sem þennan. Margir voru með söluborð og það var nóg að gera á mínum vígstöðvum. Ég var með Herbalife borðið mitt, Friðrik og Eyþór mér á vinstri hönd seldu smákökur í gríð og erg (sem mæðurnar bökuðu sveittar á laugardeginum) og á hægri hönd var Dýrunn með vinkonum sínum og þær seldu sultur af ýmsum stærðum og gerðum. Jósef var við Súluborðið ásamt fleirum úr stjórninni og seldi jólapappír og bauð fólki að gerast áskrifandi að Grænu tunnunni. Foreldrafélag grunnskólans seldi kökudeig og það mæltist vel fyrir. Ég er nú formaður í þeirri góðu stjórn og var ekki búin að fá einhvern með mér við borðið og taldi að það yrði við hliðina á mínu svo ég ætlaði að skipta mér á milli en það reyndist vera langt í burtu og einn góður pabbi bjargaði því snarlega og sá um borðið.
Á laugardag var kveikt á jólatrénu á Balanum og þetta árið er það hið myndarlegasta tré, hátt og tígulegt. Þarna mættu börn bæjarins og slæðingur af fullorðnum, tvær dömur úr tónlistarskólanum spiluðu á þverflautur í kuldanum og Garðar spilaði undir söng við jólatréð. Nokkrir magrir sveinkar (nem úr 9.-10. bekk) mættu á svæðið og sýndu mjög svo frumlegt jólasveinahopp áður en þeir stigu dans með okkur hinum. Krakkarnir fengu svo mandarínur í nesti með heim. Þetta tók fljótt af því það var svo kalt en mjög fallegt veður. Ég sit því nú reglulega við stofugluggann og dáist að trénu sem er svotil fyrir utan gluggann minn.
Örlítil vetrarveikindi hafa herjað á smáfólkið, Friðrik fékk smá skammt um daginn, mitt í árshátíðarundirbúningi en náði að hrista slenið af sér. Dýrunn greindist með streptokokka í síðustu viku og er á lyfjum vegna þess, var samt ekki lasin svo rauk hún upp í mikinn hita í nótt og er slöpp greyið og ég enn á náttbuxunum þó klukkan sé orðin ellefu, hálf þreytt því það var lítið um svefn meðan hitinn var sem mestur. Hún verður af fimleikaæfingunni í Egs. í dag og nær þar af leiðandi ekki að dansa með þeim á sýningunni sem verður á miðvikudaginn. Ég ætla að sjá til hvort hún kemst til að horfa á ef hún verður búin að hrista þetta af mér.
Ég ætlaði að fá mér jólaklippinguna í dag og einhvern huggulegan lit, pantaði hana með sex vikna fyrirvara hjá Rósu minni á Egilsstöðum og rétt komst að en þurfti að afboða og verð því bara í bítlafíling í des. og hálf litlaus hehe og lifi það líklega af.
Við hjónakornin skelltum okkur á jólahlaðborð á Brekkunni á laugardag og þar var matur eldaður af Pétri danska eins og hann er kallaður og hann hefur eldað sl. þrjú ár. Þetta var allt rosalega gott eins og hans er von og vísa. Þarna smakkaði ég kengúrukjöt í fyrsta sinn og það var bara nokkuð gott. Reyndar er þetta too much kjöt fyrir mig en ég gerði forrétinum góð skil, grafinn og reyktur lax nammi namm, svo fékk ég mér líka af kjötinu og var alveg að springa, öndin var geggjuð hún var svo góð og ég væri til að hafa eina slíka á jólunum, veit ekki hvernig karlpeningurinn tekur því ... ekki miklir fuglamenn. Ég stakk reyndar upp á að hafa hnetusteik á jólunum úr bókinni hennar Sollu nöfnu minnar en ég fékk varla svar við þeirri uppástungu. Ég væri alveg til í það
Jólaljósin eru að tínast upp í Hólalandinu, ekki finnst serían hennar Dýrunnar, hún fékk að hafa hana fram að afmælinu í fyrra og móðirin lét hana á góðan stað en sá góði staður hefur ekki fundist. Í sárabætur fékk hún stjörnu og það er verið að vinna í málinu. Stofugardínurnar voru viðraðar um helginar og er svo ferskar og fínar núna.
Bakstur og svoleiðist er á rólegum nótum og jólakortagerð í fullum gangi, ég þarf reyndar að spýta í lófana og fara að einfalda dæmið svo ég klári allt fyrir jól.
Jóganámskeiðin mín klárast í næstu viku og þá tökum við pásu þar til í janúar. Það hefur verið mjög umhleypingasamt svo ekki hef ég komist mikið á göngu en þá er alltaf hægt að skella sér í jóga í kjallaranum og fara í gönguna þegar veður leyfir.
Planið er að fara til Akureyrar um helgina og láta mæla heyrnina í Dýrunni eftir röraísetninguna. Allt fer það eftir veðri og vindum því okkar litli fjallabíll fer nú ekki í hvaða veðri sem er... Ef það gengur eftir klárum við það litla sem eftir er af jólagjöfum.
Kannski læt ég í mér heyra aftur á aðventunni.....
Hafið það eins og þið viljið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ferðalag
Föstudagur, 23. nóvember 2007
Það má nú segja að það sé kominn tími á ferðasöguna til Dublin, kominn föstudagur og við komum heim á mánudag. Suss suss.
Ferð okkar hófst á miðvikudegi þegar við flugum til Rvk. Við gistum í góðu yfirlæti hjá Sóla og Hafdísi í Njarðvíkunum og það er á við fimm stjörnu hótel held ég bara, slík er þjónustan. Flugið út var seinnipart fimmtudags svo við gátum sofið út (til níu held ég) og vorum því í rólegheitum og dúlleríi og spjalli fram eftir degi. Mættum svo í flugið í góðum gír. Hittum fljótt hluta af Herbagenginu því flugvélin var jú okkar auk nokkurra sem fengu að koma með til að fylla upp í sætin.
Flugið er ótrúlega stutt, rúmir tveir tímar og við vorum komin um kvöldmatarleytið upp á hótel, sem var alveg ljómandi fínt utan að gleymst hafði að kenna þrifstelpunum að nota tuskuna markvisst hehe. Við fengum írskan kvöldverð á Hótelinu og þeim þótti nóg um þegar allur þessi hópur kom eins og hungraðir úlfar að matnum. Ég held við höfum klárað það sem var í eldhúsinu.
Hótelið okkar var nánast staðsett úti í sveit og langt í miðbæinn en ástæðan var jú staðsetning ráðstefnuhallarinnar. Í 20 mín. gangi frá hótelinu var smá bæjarkjarni með krám og verslunum og þangað röltum við eftir kvöldverðinn. Ósköp róleg kráarferð og við hjónin vorum komin heim fyrir miðnætti.
Tókum föstudaginn snemma en það var frídagurinn okkar. Skelltum okkur ásamt þremur skvísum í moll í nágrenninu og þar sinnti ég þeim innkaupum sem voru á listanum. Það voru fimm atriði á listanum: Nærbuxur og brjóstahaldarar á mig, jólakjóll á Dýrunni, skór sömuleiðis og skyrta á Friðrik auk þess átti Jósef að kaupa sér buxur. Við stóðum við listann og keyptum varla gramm meir nema jógabók handa mér og eitthvað smálegt. Jósef var ekki í stuði að máta buxur svo við slepptum því. Ekkert smá öguð enda búið að ákveða þetta.
Við nenntum nú ekki að hanga lengur í mollinu og drifum okkur heim á hótel með innkaup stelpnanna því þær tóku seinna holl eftir matinn. Við fórum hins vegar í bæinn, tókum strætó sem stoppaði rétt við hótelið og ætluðum að fá okkur sýnisferð í miðbæinn sem tók um klukkutíma. Biðin eftir strætó reyndist hins vegar löng og komið myrkur þegar hann kom, ég gerði reyndar tilraun til að fá far með skólastrætónum er var vísað út. Ferðin tók svo klukkutíma í myrkrinu og föstudagsumferðinni. Þar sem við höfum ekki komið áður til Dublin vissum við ekki hvar við áttum að ráfa eða skoða. Við röltum þarna fram og aftur í ca klukkutíma og skelltum okkur svo til baka og nú gekk heimferðin greiðar. Kvöldið fór svo í slökun, bað með dýrindis baðsalti, hvítvíni og góðri bók.
Á laugardag var ræs hálf sjö, morgunsjeik klukkan sjö og svo með hótelskuttlunni upp í höll. Við vorum átta jaxlar sem mættum fyrst til að taka frá góð sæti, það er partur af prógramminu svo allir Íslendingarnir geti setið saman. Við fengum nett áfall þegar við sáum "höllina". Við erum vön höllum sem taka yfir 10 þús. manns en þetta var bara smá íþróttaheimili lá við enda var þetta innan við 2 þús. manna ráðstefna. En við vorum fyrst í röðinni og það var gaman. Þarna sjáið þið Jósef festa fánann á stöngina til að hafa hann kláran.
Þjálfunin var algjörlega frábær. Hún byrjaði með riverdance frá krökkum og þau voru svakalega flott. Síðan var það hver öðrum betri sem steig á svið og ekki skyggði á að Hrafn uppuppuppupplínan mín var kynnir allan laugardaginn. Hann stóð sig frábærlega og náði upp góðri stemningu. Litla Ísland fékk heilmikla viðurkenningu og klapp og margir sem fóru á svið úr okkar lið. Hluti íslenska hópsins sem tók þátt í þríþrautinni í London í sumar kom á svið og sagði frá ævintýrinu og margt fleira.
Fyrsti dreifingarðili Herbalife Geri Cvitanovich sagði okkur frá upphafinu í málum og myndum og það var mjög magnað. Í lok dags var rassinn svolítið aumur þar sem sætin voru frekar hörð og óþægileg. Ekkert mál, úlpan skyldi tekin með daginn eftir og höfð sem púði. Þarna sjáið þið okkur Díönu gleiðbrosandi við sviðið í hádegishléinu og það var svona gaman alla helgina.
Við borðuðum á hótelinu á laugardagskvöld með vinum okkar úr hópnum og það var mikil gleði og góður matur, skynsamlegur háttatími og ræs klukkan hálfsjö á sunnudag líka nema við fórum ekki með fyrsta hóp uppeftir þann daginn, leyfðum öðrum að taka sprettinn
Þessi dagur var ekki síðri og sjálfstraust og allt byggt upp vinstri hægri og ýmsar ákvarðanir teknar. Heilinn er við suðumark því það er ekkert verið að stafa ofan í mann, skrifkrampinn orðinn algjör undir lokin og glósurnar ótrúlega skondnar. Stundum byrja ég á ensku, svissa svo yfir í íslensku allt eftir því hvað ég get verið snögg að þýða, þær eru því bæði á ísl. og ensku.
Þjálfunin endaði á riverdance og ekki síðra en í upphafi. Svona upplifun er ekki hægt að setja í orð og ég geymi hana í hjarta mínu en þetta er sú þjálfun sem hefur gert hvað mest fyrir mig privat og persónulega, ójá.
Og til að krydda tilveruna var biðin eftir skutlunni löng og blaut og sem betur fer vorum við með regnhlíf en þrír undir meðal regnhlíf blotna einhvers staðar á endanum. Við vorum sem sagt frekar rassblaut þegar við settumst inn í skutluna. Þeir eru nú ekki strangir á farþegafjölda og það má eiginlega segja að það sé staflað, eins gott að hann lenti ekki í neinu óhappi. Díana og Jósef voru orðin ansi náin þarna undir hlífinni en ég skellti mér undan henni til að taka myndina. Bara gaman.
Um kvöldið fórum við úr hópnum hennar Halldóru Skúla og Malla saman út að borða á krá ekki svo langt frá hótelinu. Þar fengum við írskan mat og mjög ljúfa og góða þjónustu. Eldri kona sem stjanaði við okkur og var alveg yndisleg. Sagðist ekki hafa fengið Íslendinga í fjögur ár en í þrjú ár hefðu alltaf komið hópar á hverju hausti. Það hefur verið þegar Dublin ferðirnar voru í hámarki. Það var mikið hlegið, ég hef ekki hlegið svona svakalega mikið lengi lengi, þó hlæ ég nú oft hehe.
Þið sjáið hvað var gaman hjá okkur Magga Guðjóns (ættuðum úr Árbæ)
Ég verð nú að segja að hann sé svolíltið sætur, til að gleðja hann.
Flugið heim var næturflug svo við vorum búin að vaka í tæpan sólarhring þegar við skriðum í rúm í Njarðvíkunum og lögðum okkur fyrir flugið austur. Krakkarnir tóku glöð á móti okkur og öll familían fór snemma í bólið það kvöldið enda ferðaþreytan allsráðandi.
Bið að heilsa í bili...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)