"Sóla unplugged"
Þriðjudagur, 29. janúar 2008
Hún kisa mín heldur ekki tónleika í dag, vafrar um með svefnlyfið enn í æðum eftir ófrjósemisaðgerð sem hún fór í seinnipartinn. Sólrún var minn sérlegi aðstoðarmaður þar sem ég var ekki með búr og hún sat með hana skíthrædda í fanginu á leiðinni til Breiðdalsvíkur. Rósa útskýrði svo skemmtilega fyrir Zdenek að við værum að fara með kisu til að láta unplugga hana. Hann skildi það.
Greyið skinnið það er skelfilegt að horfa upp á hana svona sljóa og geta ekki staðið á fótunum. Ég þori ekki annað en hafa hana lokaða inni í eldhúsi svo hún vafri ekki að stiganum og detti niður.
Það er ýmislegt á döfinni og líklega lítið um færslur á þessu sviði fyrr en eftir helgina.
Á fimmtudag verðum við Díana Mjöll með HOM (Herbalife opportunity meeting) kynningu og fræðslu fyrir nýja og eldri dreifingaraðila Herbalife. Við verðum í grunnskólanum á Reyðarfirði klukkan 20:00 og allir eru velkomnir. Frítt fyrir gesti, dreifingaraðilar greiða 1000.- Hlakka til að sjá ykkur
Snemma á föstudag förum við til Rvk. Bara við tvö, vúvúvú. Aðal ástæðan er árshátíð Eimskips sem verður ekki af verri endanum. Ég nýti tímann yfirleitt vel og á föstudagskvöld verður Satsang með öllum jógakennurunum sem voru með mér í jógakennaranáminu. Eitthvað þarf að snattast í bænum en samt í rólegheitum.
Laugardagurinn verður Kikk off dagur í HM hópnum, minn nánasti samstarfshópur í Rvk. í Herbalife. Ég byrja snemma ásamt fleirum og fæ eðal þjálfun frá frábærri stelpu. Svo bætast fleiri í hópinn og við höfum það skemmtilegt, fræðumst, hlæjum og í lokin tek ég hópinn í jóga, hvað annað. Ég er að undirbúa fyrirlestur og glærusýningar um markmiðasetningu en það féll í minn hlut, bara spennandi.
Svo er það árshátíðin um kvöldið og flug heim snemma um morguninn, sofum ekki einu sinni út eftir skrallið, mar er svo stabíll enda gott að nýta tímann í annað en slappleika. Ég held ég verði svaka hress eftir á og tek væntanlega út hreyfistig vikunnar hehe því það verður þrusuband, sennilega hás og fín líka eftir allan sönginn. Passa mig á rauðvíninu og að fara ekki í hættulega sveiflu með Palla Björns.
Hlakka mikið til.................... bið að heilsa ykkur í bili og við skjáumst ....
P.S. Halla ekki hella upp á núna, nema ég kíki í vinnuna, renni örugglega eitthvað fram hjá Laugardalnum, samt voða feimin að trufla fólk í vinnunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eitt epli á dag....
Föstudagur, 25. janúar 2008
My mother used to say...An apple a day, keeps the doctor away... segir Jim Rohn heimsþekktur personal development þjálfari og góðvinur Herbalife. Svo bætir hann við What if that was true?
Þetta kemur oft í huga minn á morgnana þegar ég næ mér í epli í ávaxtakörfuna og fæ mér með sjeiknum mínum. Dagurinn í dag var engin undantekning .... en sem betur fer sker ég eplin í sundur áður en ég borða þau og viti menn, bæði eplin í körfunni voru brún og ónýt, litu svo vel út að utan. Reyndar ekki það fyrsta sem ég fæ með fegurð að utan en ónýtt að innan. Ég varð þá að bíta í það súra epli að fá ekki eplið mitt og bíð bara eftir nýrri sendingu þegar Jósef kemur heim úr vinnunni með þorramatinn. Mmmmm, já það verður mini þorrablót hjá okkur í kvöld, með smá samtíningi af því helsta. Ótrúlegt en satt þá gengust börnin að þessum samningi því föstudagskvöld eru heilög pizzukvöld, þá brettir húsmóðirin upp ermar, lætur á sig svuntuna og galdrar fram ýmsar tegundir af gómsætum pizzum. Það fylgdi í samningnum að pizzurnar yrðu á laugardag.
Miklar pælingar eru varðandi öskudaginn og legið yfir bæklingnum sem kom frá Dótakassanum. Ég var hálfpartin búin að gefa grænt ljós á búningakaup en svo komumst við að samkomulagi, við útbúum búninga en kaupum litað sprey í hárið... það fannst þeim spennandi. Spáum í búningakaup á næsta ári. Hjúkkett því mér þykir miklu skemmtilegra að spila af fingrum fram þó ég hafi nú ekki lager af gömlum fötum eða þannig. Að sjálfsögðu klæði ég mig upp og er búin að ákveða hvað ég verð, vantar reyndar einn aukahlut en hann má missa sín....
Jæja, það þýðir ekki að slóra, næg verkefni á skrifborðinu og spurning hvort ég byrja á að skrifa reikninga, flokka pappírsdót, gera fyrirlesturinn um markmiðasetningu, æfa mig með viðskiptakynningu.... ég ætla fyrst að setja í þvottavélina og svo vel ég á hverju ég byrja.
Góða helgi !
Mynd: Solla ekki stirða ! Tekin í íþróttahúsinu á Breiðdalsvík í Óvissuferð með Herba hópnum okkar 10. feb 2007. Jógatími sem breyttist í Juitzu tíma öllum að óvörum. Þetta var jú óvissuferð..... Nú megið þið láta í ykkur heyra í athugasemdum sem voruð með okkur þennan dag takk. Og svona til áminningar, makadagurinn verður haldinn hátíðlegur 9. feb með pompi og prakt í anda okkar Díönu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vetrarríki
Miðvikudagur, 23. janúar 2008
Þó við séum ekki alltaf ánægð með snjó og vetrarfærð þegar við þurfum að ferðast á milli staða er ekki hægt að neita því að það er fallegt þegar hvít snjóslæða liggur yfir öllu. Hér snjóaði reyndar yfir glæra gljá svo það er nokkuð varasamt að vera á ferli á tveimur jafnfljótum, fallegt er það samt. Ég smellti mynd af öspunum mínum í vetrarhamnum og læt hana fylgja með.
Myndirnar af glitskýjunum sem ég tók um helgina voru ekki glæsilegar en ef ykkur langar að sjá þau getið þið kíkt á síðuna hennar Sólrúnar sys. hér til vinstri og á www.123.is/vinaminni á síðunni hennar Þóru Bjarkar. Þessi glitský voru alveg svakalega flott með þvílíkum litum og krakkarnir kölluðu þau regnbogaský slík var litadýrðin.
Nú er hafinn undirbúningur hjá okkur í stjórn Foreldrafélagsins fyrir þorrablótið og skipulagining á sprelli á Öskudag ásamt skólanum..... margt margt fleira á döfinni prívat og í Herballífinu sem ég tjái mig um þegar þar að kemur.
Farið varlega í hálkunni..............
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Meirihluti Reykjavíkur sprunginn ...... og "Samlyndu prófin".
Þriðjudagur, 22. janúar 2008
Þetta tilkynnti Dýrunn okkur með öndina í hálsinum þegar hún kom heim eftir fimleikaferð til Egilsstaða. Hún hafði heyrt í útvarpinu (Jónas missir aldrei af fréttunum) í bílnum að meirihluti borgarstjórnar væri fallinn og skildi þetta þannig. Blessað barnið taldi að borgin væri rústir einar. Ég vel að tjá mig sem minnst um þetta mál enda skil ég hvorki vinstri né hægri í þessu öllu saman. Ég vildi bara óska þess að menn gætu unnið saman í því sem þessari borgarstjórn ætti að vera mest hugleikið og það er að sinna blessuðu fólkinu í borginni. Ekki held ég að allar þessar væringar flýti fyrir lausnum ýmissa mála og væri ekki vænlegra að finna lausn á manneklu á öllum sviðum velferðamála s.s. skólum.leikskólum, aðhlynningarstörfum osfrv... heldur en að standa í þessu brasi. Pólitík er skrýtin skepna og langt fyrir utan minn skilning.
Í morgunsjeiknum áður en börnin fóru í skólann var verið að spá í ýmis próf og svoleiðis. Friðrik sagðist kvíða fyrir því að fara í fjórða bekk því þá þyrfti hann að taka samlyndu prófin og þau væri nokkuð erfið að sögn félaganna. Menn þyrftu að lesa fjórar lestrarbækur og þar fram eftir götunum...
Ég gerði mitt besta í að telja í hann kjarkinn, að þetta væri könnun o.þ.h. en er það eðlilegt þegar kannanir eru þess eðlis að menn eru farnir að svitna yfir þeim löngu áður en til þeirra kemur. Ég er ekki hlynnt þessum prófum, þar sem ég hef reynslu af því að kenna börnum sem eiga erfitt með nám og það þarf ansi þykkan bunka af greiningum til að börn sem eiga í erfiðleikum með nám fái undanþágu frá þessum prófum. Nei prófin skulu þau taka og það eru ófá tárin sem hafa fallið ofan í prófaheftið og hnútur í maganum því þetta kemur aftur í 7. bekk.... Segir ekki námsskráin að allir eigi að fá námsefni við hæfi og er þá ekki eðililegast að hver skóli meti sína nemendur miðað við hvar þeir standa án þess að brjóta þá niður. Er þeim kannski ekki treyst til þess eða hvað. Fuss og svei.
Að þessum orðum töluðum ætla ég að renna mér niður Hólalandið í skólann á fund með stjórn Foreldrafélagsins. Þar er nóg á döfinni, þorrablót, blómasala, o.fl o.fl
Venlig hilsen...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sú fimmta...
Sunnudagur, 20. janúar 2008
Já fimmta veikin hefur herjað á unga sem aldna hér á Stf. síðan fyrir jól. Vírus sem leggst yfirleitt létt á börn en þyngra á fullorðna. Tvær úr skólanum spöruðu veikindaafleysingar í jólafríinu og lögðust og svo ein í þarsíðustu viku. Ég var þess fullviss um að ég slyppi en svo helltist þessi elska yfir mig fyrripart viku en ég náði að halda dampi þar til á föstudag en þá neyddist ég til að leggjast í rúmið með slappleika og verki. Þessi elska getur lagst illa á liði og þar sem ég er viðkvæm fyrir leist mér ekki á. Fór að ráðum læknismenntaðra manna og tók bólgueyðandi. Ég virðist ekki ætla að taka þetta illa í missterka skrokkinn minn og trúi því að ég hristi þetta af mér sem fyrst. Er svona með eins og netta beinverki og stend ekki í stórræðum.
Það hefur því lítið afrekast á heimilinu en ég reynt að njóta þess að slaka á og lesið í góðri bók sem heitir "Að sigra óttann" eftir Harold Sherman. Góð og holl lesning og í þeim anda sem ég er að lesa í persónuuppbyggingunni. Náttbuxurnar hafa verið aðal klæðnaðurinn og ég rétt brá mér úr þeim þegar ég fór í sturtu og skellti mér í hinar meðan þær fyrri fóru í þvott.
Ég finn þó mun frá því í gær og náði að koma örlitlu skikki á skrifstofuna mína og lagerinn. Planið var að gera stórtiltekt. Nú er heilmikil vinna framundan í að gera upp árið, vaskinn og allt það, úff, púff, ég er ekki mjög klár á því sviði en læri væntanlega meira frá ári til árs.
Þegar líkaminn er ekki eins sprækur og hugurinn dett ég stundum í smá sjónvarpsgláp og ég horfði meira að segja á fótboltaleik í enska boltanum í gær og handboltann á eftir því. Sá leikur var öllu meira uppörvandi en leikurinn við Svía og vonandi gengur þeim vel í dag.
Úti gnauðar veturinn og það er allt ósköp fallegt, gott að þurfa ekki út og spurning um að taka smá lotu á hitapokanum með bókina góðu...
Hafið það eins og þið viljið og vonandi heimsækir sú fimmta ykkur ekki !!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19:00 eða 18:30 !
Mánudagur, 14. janúar 2008
Bara hálftími sem skilur á milli en grundvallar munur þegar mæta á í flug. Ég tala nú ekki um þegar það á að mæta 18:30 og manneskjan mætir kl 19:00 og vélin að leggja af stað. Ég var í bænum um helgina og alveg með það á tæru hvenær ég ætti að mæta. Svo var fluginu seinkað til sjö og ég setti það inn í meinlokuna að ég ætti að mæta sjö, sem og ég gerði og það var of seint að komast heim með síðustu vél til Egilsstaða þann daginn. Stúlkan var svo elskuleg að breyta miðanum svo ég komst með fyrstu vél 7:15 í morgun.
Ég átti mjög góða helgi með góðum vinum. Föstudagskvöldi eyddi ég með minni nánustu Herbalife fjölskyldu og flutti fyrirlestur um ákveðið efni sem gekk mjög vel. Á laugardag var ég með stórfjölskyldunni þar sem samankoma dreifingaraðilar af öllu landinu og fræðast og eiga góðan dag saman. Það voru mörg faðmlög, knús og kossar og gott að brosa og hlæja svona mikið.
Laugardagskvöldi eyddi ég með Hafdísi mágkonu en Sóli rauk af stað fljótlega eftir að ég birtist til að spila á balli í Reykjavíkinni. Við mágkonurnar höfðum um nóg að spjalla og svo gerði hún mig sallafína daginn eftir, litaði fölar augabrúnir og augnhár og lagfærði það sem laga þurfti.
Og fyrst ég missti af fluginu fórum við frænkurnar (sem ég gisti hjá þá nóttina) í bíó í gærkvöld og sáum "Death at a funeral", góð bresk afþreying en engin stórmynd. Kemst ekki með tærnar þar sem fjögur brúðkaup og jarðarför er með hælana að mínu mati.
Það var ekki nema 8 stiga frost á Egs. svo ég þarf ekki að fjölyrða um hvaða leið ég fór inn í bílinn minn hehe og hann var orðinn fínn þegar ég kom á Reyðarfjörð og tók bensín. Síðustu kílómetrana að Reyðarfirði heyrðist skrýtið hljóð úr öðru afturdekkinu og hjá bensínstöðinni athugaði ég málið og þá voru 3 rær lausar á afturdekkinu. Ég herti þær að því ég hélt nógu vel en í göngunum parkeraði ég í útskoti og festi þær betur. Þetta er skrýtið því þetta gerðist líka í fyrra með nagladekkin. Gott að það skyldi ekki skoppa af og taka framúr eins og um árið þegar ég var að keyra á ball í Húnaveri sem endaði sem hið mesta ævintýri.
Ég var passlega komin á Fás. um 10 leytið og fékk notalega meðhöndlun hjá Marjolain í höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun, þvílík dásemd. Svo kom ég loksins heim og sótti ungana mína í íþróttahúsið.
Frábær helgi að baki og spennandi tímar framundan !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Til umhugsunar !
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Þessa áhugaverðu vísu fékk ég í tölvupósti um daginn og tók mér það bessaleyfi að birta hana hér. Góð til að minna sig á að falla ekki í nöldrið og nagið.
Lastaranum líkar ei neitt,
lætur hann ganga róginn;
finni hann laufblað fölnað eitt
fordæmir hann skóginn.
- Steingrímur Thorsteinsson
Hafið það svo eins og þið viljið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Allt frosið !
Mánudagur, 7. janúar 2008
Já það er nú gaman að hafa húmor fyrir sjálfum sér þegar eitthvað fer öðruvísi en ætlað er eða þannig. Í morgun fór ég í dásamlegu köldu veðri yfir á Fáskrúðsfjörð í sjúkraþjálfun. Það var örlítið kaldara þar norðurfrá en hér og ég var að spá hvort ég ætti að læsa bílnum að gömlum vana eða ekki . Það er ekki svo kalt hugsaði ég og læsti ( en ég hef lent í því að læsingin hefur frosið föst gerist stundum á gömlum elskum).
Svo kom ég út eftir klukkutíma meðferð í sæluvímu og slök, stakk lyklinum í skrána en ekkert gerðist.... arg... prófaði farþegamegin en sama sagan þar, óboy óboy. Þá var bara að athuga hvort skottið væri frosið fast (það læsist nefnilega ekki en frýs nú samt stundum) og til allrar guðs lukku var það ekki frosið svo ég gat klöngrast inn þeim megin. Nú var gott að vera ekki mjög stirður en svolítið erfitt þar sem skankarnir eru langir eins og á öðrum í mínum legg. Ekki gat ég opnað bílstjóramegin en það hafðist farþegamegin, út fór ég þar, lokaði skottinu og klöngraðist inn farþegamegin, í bílstjórasætið og brunaði heim í blíðunni. Þetta var nú nett skemmtilegt og ég vona að ég hafi ekki haft áhorfendur að aðförunum hehe, annars skiptir það svosem engu ef afturendinn á mér gleður einhvern þá er það í lagi
Við kvöddum jólin í gær með smá bombum sem við keyptum á Breiðdalsvík og einni stórri rakettu. Það var heilmikið fjör og mikil flugeldasýning utar í götunni. Það gladdi börnin mikið en kötturinn var ein taugahrúga greyið. Þetta er ekki spennandi tími fyrir blessuð dýrin.
Nú tekur við það skemmtilega verkefni að taka jólaskrautið niður, já ekki það skemmtilegasta en ekki neitt annað í boði. Hversdagurinn er alltaf alveg ágætur eftir þessa sælutíð, stutt í þorra og nóg framundan seisei.
Jóganámskeiðið byrjar hjá mér í dag, það eru aðal harðjaxlarnir sem mæta, sumar hverjar bóka sig þegar síðasta tíma fyrri lotu lýkur áður en ég fer að auglýsa hvenær ég byrji næst. Frábært að hafa svona stabílar kerlur og mættu margir taka þær sér til fyrirmyndar.
Kærleikskveðjur inn í nýja vinnuviku !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sól í sinni......en rigning úti.
Föstudagur, 4. janúar 2008
Já sem betur fer rignir ekki í sálinni á mér enda ákvað ég að hafa sólskin þar í dag. Úti rignir og rignir svona með hléum, styttir aðeins upp en svo kemur það aftur. Í gær gaf ég mér þá afsökun fyrir að ryksuga ekki að það væri ekki nægilega bjart, ég þyrfti dagsbirtuna. Eiginlega nennti ég því ekki og kannski fínt að birtan var ekki meiri þá sá ég ekki rykið. Ætli sú gráa (ryksugan) fari ekki á rúntinn einhvern tíman í dag þó það létti ekki til. Það er nefnilega hægt að kveikja ljósið.
Ég skellti sólarmyndinni frá því í okt aftur upp á forsíðuna mína en þegar sólin sést á þessum árstíma er hún alveg svakalega falleg. Þessi er ekki síðri, var tekin á aðfangadag rétt áður en sveinarnir bönkuðu uppá. Þarna rétt skreið hún yfir Hnútuna á Kambanesinu.
Þegar ég bjó í Reykjavíkinni og pabbi var enn á lífi fékk ég reglulega sólarlýsingar þegar ég hringdi heim. "Nú fer hún ekki yfir Hnútuna" "Nú er hún komin yfir hálsinn" Ekki skrýtið að fylgst hafi verið með sólarganginum hjá þeim því útsýnið yfir fjarðarkjaftinn og Kambanesið er rosalega flott og gott innlegg með kaffibollanum.
Talandi um kaffi, nú eigum við hjónin svo aldeilis ljómandi kaffimaskínu sem lagar einn og einn bolla í einu, svona expresso. Jósef gerði varla annað á jóladag en að hella sér upp á kaffi og meira að segja ég fékk mér líka bolla, að sjálfsögðu Cappuccino. Þannig að kaffiunnendur geta rekið inn nefið og fengið sér kaffitár. Ekki var það verra að mamma gaf okkur sitt hvorn kaffibollann svo það er hægt að njóta kaffisopans úr glænýjum bollum.
Að öðru leyti erum við enn að vinda ofan af okkur eða eiginlega smáfólkinu, þau sofa enn frameftir og ætli við þurfum ekki að nýta helgina í að koma þeim á rétt ról áður en skólinn byrjar. Þetta voru fyrstu jólin sem við vorum ekki vakin eldsnemma af börnunum og iðulega vorum við komin á ról á undan þeim því ekki nenni ég a.m.k. að liggja lengur í rúminu en ég þarf. Hvað ætli verði langt þar til ég fer að kvarta yfir útsofelsinu hjá þeim ? Ekki gott að segja..
Sendi ykkur bestu kveðjur inn í helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýtt ár !
Miðvikudagur, 2. janúar 2008
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla !
Nú sitja menn sveittir og strengja hvert heitið á fætur öðru eins og venjan er á þessum tímamótum. Mér finnst áramótin alltaf eitthvað sérstök og sem betur fer tek ég á móti nýju ári full bjartsýni og spennt að sjá hvað það ber í skauti sér.
Ég er í sjálfu sér hætt að strengja einhver áramótaheit, þau er ég að vinna jafnt og þétt með allt árið og heita markmiðin mín, nú fyrir árið 2008 og næstu ár. Reyndar er alltaf gott að nota tímapunkt sem áramótin til að leggja upp árið, meta hvað náðist á því síðasta og koma sér í gang, skrifa niður, mjög mikilvægt því skrifleg markmið rætast miklu frekar heldur en þau sem við geymum og gleymum í kollinum. Eitt af mínum markmiðum er að verða sífellt betri og betri manneskja og aldeilis fullt af tólum til að vinna í því. Bókastaflinn á náttborðinu og víðar er alltaf jafn voldugur, samt er ég alltaf að lesa og lesa og eitt af markmiðunum er að koma sér fyrr í bælið á kvöldin og ná að lesa drjúgan skammt fyrir svefninn. Hreyfing og að koma sér í betra og betra líkamlegt form er langtímamarkmið og eitthvað sem er unnið í allt árið, öll ár og þar þarf alltaf að halda vel á spöðunum.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)