Ákvarðanir !

Það er ýmislegt sem hefur áhrif á hvaða ákvarðanir maður tekur í lífinu. Við höfum mikið pælt í því á hvaða hlið hússins við byrjum þegar við ráðumst í það stórvirki að skipta um glugga. Í dag tók ég þá ákvörðun að það yrði ytri hlið hússins sem fyrst fengi þessa andlitslyftingu. Að baki þessari ákvörðun er heilmikil ástæða, vetur konungur blæs of hressilega inn um gluggana akkúrat í dag og eiginlega meira við hæfi yfirleitt að moka snjó úti en ekki inni. Ég er nú aðeins að ýkja en það er bara nett föl í vinnuherbergisglugganum mínum. Ég á svo reiðinar býsn af handklæðum sem ég þétta gluggann með og hlakka til í huganum þegar ég fæ ekki hressilega kælingu við störf mín við tölvuna. Reyndar eru gluggar ekki á dagskrá á þessu fjárhagsári en aldrei að segja aldrei því hlutirnir geta breyst. 

En varðandi aðrar ákvarðanir í lífinu þá er skemmtilegt að sjá hvað margar nýjar dyr opnast ef maður þorir að fara út fyrir þægindahringinn og feta nýja slóð. Dyr sem maður hefði ekki vitað um ef maður hefði haldið sig á sama bletti og vanalega.  Ég hef fetað út fyrir hann hægt og sígandi, er nú ekki svo huguð að taka stór stökk en þau smáu skref sem ég feta út fyrir þennan þægilega hring opna alltaf nýjar dyr, ný tækifæri og nýja möguleika.  Skemmtilegt og spennandi.

Ég er að takast á við skemmtilegt verkefni þessa dagana, að kenna unglingum námsefnið Baujuna sem er tilfinninganámskeið. Frábær reynsla og svakalega gefandi. Ég læri svo ótrúlega mikið um sjálfa mig í hvert skipti sem ég fer í gegnum þetta efni og það er frábært.

 Búin að bóka annað spennandi verkefni og er með hugann í bleyti hvernig ég leysi það.

Farin að hlakka mikið til að fara á námskeið í lok mars sem heitir "Þú getur staðið upp og talað". Það verður á Reyðarfirði og sá sem fræðir okkur er enginn annar en Guðjón Bergmann jógakennarinn minn. Ég veit að það verður mjög nytsamlegt.  

Nú svo er Herbal lífið alltaf svo svakalega spennandi og ótrúlegur vöxtur mánuð eftir mánuð. Ef þið eruð að spá í að kaupa hlutabréf sem ekki falla í verði er vel við hæfi að fjárfesta í Herbalife, þar eru bréfin bara á uppleið... 

Lífið gengur að öðru leyti sinn vanagang og nú eru það pælingar um páskana sem ráða hæst hjá ungviðinu, reyndar er Goðamótið aðeins ofar hjá Friðriki og mikill spenningur í gangi.  Fullorðna fólkið tekur þessu öllu með stóískri ró, mokar tröppurnar, gangstíginn og bílastæðið enn og aftur og hugsar um sumarfríið sem er búið að bóka til Barcelona í júní Grin

Hafið það gott áfram í vetrartíðinni og farið varlega ! 

 


Fyrirmyndirnar !

Já ég hugsa oft um það hvað það skiptir miklu máli sem foreldri að vera góð fyrirmynd.

Ég las mjög góðan pistil í morgun eftir Denis Waitley. Þar talar hann um heilindin og að breyta rétt, út frá eigin sannfæringu en ekki til að þóknast öðrum. Einnig að það sé samræmi í því sem við segjum og  gerum. Hann tók gott dæmi: Þegar ég sagði börnunum mínum að taka til í herbergjunum sínum bentu þau mér á allt draslið í bílskúrnum.  Þegar ég predikaði um hve heiðarleikinn væri mikilvægur bentu þau mér á radarvarann sem ég hafði keypt mér í bílinn o.s.frv.

Í pistlinum birti hann ljóð sem hann hafði endurskrifað. Það er eftir Edgar A. Guest og heitir Sermons we see.  Læt það fylgja á ensku svo það missi ekki sjarmann.

 " I´d rather watch a winner, than hear one any day.

I´d rather have one walk with me, than merely show the way.

The eye´s a better pupil and more willing than the ear.

Fine counsel is confusing, but example´s always clear.

And the best of all the coaches are the ones who life their deeds.

For to se the truth in action is what everybody needs.

I can soon learn how to do it, if you´ll let me see it done.

I can watch your hands in action, but your tongue too fast may run.

And the lectures you deliver may be very wise and true.

But, I´d rather get my lessons by observing what you do.

For I may misunderstand you and the high advice you give.

But ther´s no misunderstanding how you act and how you live.

I´d rather watch a winner, than hear one any day. " 

 

Þetta finnst mér ótrúlega flott. Þegar ég var lítil skotta og langaði að fá að brasa hitt og þetta á heimilinu leyfði mamma mér að taka þátt. Ég man eftir að hafa fengið bunka af viskastykkjum sem ég straujaði við strauborðið sem var lækkað, ég fékk að baka og elda og hitt og þetta. Þetta fannst mér gaman og bý vel að því þó straujunar áhuginn hafi dofnað hratt Smile.

Þegar ég var komin til manns og ekki alltaf tilbúin að gefa mér tíma til að leyfa börnunum mínum að hjálpa sagði hún "Leyfðu þeim að taka þátt þó þú vitir að þú gerir það betur og sért fljótari að því. Þau búa að því alla ævi". Hún sagði jafnframt að þegar hún var stelpa fékk hún aldrei að taka þátt í neinu sem viðkom eldhúsinu en fékk að skúra og skrúbba lon og don og vinna ýmis önnur verk enda sagði hún að það hafi vantað mikið upp á kunnáttu sína í eldamennsku þegar hún fór að búa. 

Venlig hilsen þar til næst Heartkveðjur til allra sem eru góðar fyrirmyndir Wink


Hamingjan

Skiptir ekki máli hvort þú ert ríkur eða fátækur, það er undir þér komið hvort þú ert hamingjusamur eða ekki.

Við ákveðum sem sagt sjálf hamingju / óhamingju okkar, ekki veðrið, peningar, skuldir, pirrandi fólk, o.s.frv.

Ég var að hlusta á frábæran fyrirlestur með Jim Rohn, gott start inn í daginn og eins og hann orðar það

"Happiness is an art of living" .

 

Hafið það eins og þið viljið og ákveðið hvort þið ætlið að vera hamingjusöm eða ekki í dag Grin  Ég vel hamingjuna. 


Skólahreysti !

Í gær brunuðum við Gurra í Egilsstaði með ungana okkar til að horfa á keppnina Skólahreysti sem haldin var í íþróttahúsinu. Fyrst var farið í Bónus og skottið fyllt og svo tróðum við okkur á áhorfendapallana í íþróttahúsinu.  Þetta var hin besta skemmtun og skólinn okkar lenti í 7. sæti af 13. svo við megum vel við una. Þau fóru refsistigalaust í gegnum hraðabrautina og Freydís okkar var tæpum tveimur sek. frá því að sigra í "hreystigreip" og hékk á slánni í rúmar 3 mínútur. Þau voru að flest að bæta sig þvílíkt og voru svo flott. 

Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði sigraði með yfirburðum og þau voru alveg frábær.

Friðrik og Eyþór gáfu ekkert eftir í hvatningu og voru næstum búnir að öskra úr sér lifur og lungu þegar okkar krakkar voru að keppa. Við vorum ekki með stóran áhorfendahóp en öflugan Wink í það minnsta yngri deildin. Við mömmurnar vorum öllu hógværari og sátum nokkuð rólegar nema þegar þau voru í hraðabrautinni.

Annars þarf ég að passa mig á svona hvatningum, ég get orðið svo æst að ég er hrædd um að missa mig. Þess vegna held ég mig frekar til hlés.

Mér dettur oft í hug saga sem sálfræðingur sagði okkur þegar ég var að vinna í Hlíðabæ og hann vann með okkur eina helgi í að hrista hópinn betur saman. Hann átti gamla frænku sem hafði svo gaman af fótbolta en hún var hætt að fara á völlinn því hún var svo spennt að hún tapaði sér alveg og bölvaði og lét fúkyrðin fljúga vinstri hægri. Hún var mjög dagfarsprúð kona og var miður sín yfir þessu og hætti að fara á völlinn blessunin.  Ég finn að ég hef snert af þessu í mér svo ég vel að missa mig ekki í spennuna.

Við Dýrunn erum að plana fjölskylduveislu en við sameinum okkar afmæliskaffi og bjóðum í brunch á morgun. Nóg um að vera, blómasala í kvöld fyrir Foreldrafélagið og sextugs afmæliskaffi hjá Distu, mér finnst örstutt síðan ég var í fertugsafmælinu hennar, ótrúlegt hvað tíminn líður. Eins gott að njóta hans og nýta tímann vel !

Helgarkveðjur    


Afmælisstelpa

Í gær var aldeilis fjör og spenningur. Sjö ára afmælisdagur Dýrunnar rann upp mjög snemma. Klukkan var rúmlega hálf sex þegar sú stutta skreið uppí og knúsaði mig fyrir gjöfina.  Síðustu dagar hafa að sjálfsögðu snúist um þennan merka dag, boðskortin hönnuð og skrifuð með góðum fyrirvara og pælingar varðandi skipulag á hlutunum. Veisluna höfðum við seinnipartinn í gær og þá mættu nánustu vinirnir.  Þetta er alltaf heilmikið fjör, ég yfirgaf veisluna um miðbikið og Jósef tók við, ég kenndi jógatímann minn í íþróttahúsinu og kom svo heim í rest. Afmælið lengdist aðeins í annan endann og þegar ég kom voru gestirnir sem eftir voru með dúndrandi diskó niðri í leikherberginu ekkert smá stuð.  Þegar ein skottan var að fara með mömmu sinni sagði hún "Þetta var sko alvöru partý".   Þarna sjáið þið afmælisdömuna  brosandi út að eyrum með fína skarðið sitt.

7 ára afmæli Dýrunnar 002Hún var heilmikið rík eftir daginn og eins og dömum sæmir fékk hún ýmislegt skart, eyrnalokka og armband, hárskraut og margt margt fleira. Kolbrún fékk að gista hjá Dýrunni því það er tveggja daga vetrarfrí og þær sváfu út alveg til sjö í morgun Grin Nú á að prufukeyra nýja hjólið sem daman fékk frá foreldrum sínum. 

Ég er svona að spá hvar ég á að byrja í dag, sólin segir mér að ég eigi að þrífa rúðurnar mínar en ég læt hana nú ekki skipa mér fyrir verkum, dreg bara fyrir svo ég sjái ekki ósómann. Eitt er víst að nóg er af verkunum sem bíða.

Njótið dagsins og eitt gott í lokin:   FRELSIÐ felst í hugarfarinu. G.B.

 


Spakmæli

Ég hef lítið verið að opinbera spakmælin sem ég er að lesa þessa dagana og þá vel við hæfi að skella tveimur inn til umhugsunar.

"Líf þitt er ekki annað en endurspeglun af hugsunum þínum" Wayne Dyer, inngangsorð 1. kafla í bókinni Þú ert það sem þú hugsar eftir Guðjón Bergmann.

Annað á þessum nótum:

"Caracter is built by how you respond to what happens in your life !" Jim Rohn 

 

Góða helgi Heart


Dagurinn minn er í dag...

.. og líka dagurinn hans pabba. Hann hefði orðið 78 ára gamall karlinn ef hann hefði fengið að vera lengur með okkur. Hann fékk mig í afmælisgjöf á 40 ára afmælisdaginn.  Glöggir menn og glöggar konur sjá þar með að ég er orðin 38 ára gömul.  Greinilegt að einhverju þarf að breyta á grunnupplýsingunum hér til vinstri.

Ég fæddist í hjónarúmi pabba og mömmu í Sunnuhvoli einhvern tíman að næturlagi. Þórey í Kirkjuhvoli tók á móti mér en þurfti að rjúka fljótt í burtu því þá var Hafey að fæðast líka. Ég náði að vera deginum eldri og var alltaf stolt af því að vera elst í bekknum mínum hér á Stöðvarfirði.

Pabbi og Þóra í Vinaminni pössuðu mig eftir að Þórey fór og m.a. fékk Þóra vægt sjokk þegar hún var eitthvað að athuga með mig og ég var öll alblóðug, þá hafði blætt frá naflastrengnum. Varð ekki meint af því.

Ég var alltaf voða móðguð við pabba þegar ég var enn stutt í annan endann þegar hann rifjaði þessa nótt upp og sagði að ég hefði kúkað grænum kúk. Mér fannst það hin mesta móðgun og pabbi gerði í því að ýfa upp þessi "sárindi". 

Reyndar var Þórey ljósmóðir mín miður sín þegar ég var komin í heiminn því í ljós kom að annar fóturinn á mér var snúinn, ristin lá alveg upp við legginn og leit ekkert vel út.  Ég lagði því í ferðalag með mömmu til Reykjavíkur þegar ég var 3ja vikna gömul í aðgerð þar sem fóturinn var lagaður. Gifsið er enn til, ósköp smátt og sem betur fer eina gifsið sem ég hef farið í um ævina.

Sólmundur sem hafði verið prinsinn af Sunnuhvoli áður en ég fæddist var ekki alveg sáttur við þetta umstang. Þóra heitin var oft búin að rifja það upp hlæjandi þegar hann ruggaði sér fram og til baka  á vörubílnum sínum og söng "Gamla Nóa" grátandi daginn eftir þegar mamman var að sinna litlu dömunni og hvíla sig. Þetta var sennilega fyrsta stóra áfallið í lífi hans, komin samkeppni frá lítilli písl sem breyttist fljótt í þokkalegan hnullung og ógnaði hans tilveru.  

Ég hef alltaf gaman af því að eiga afmæli þó ég geri misjafnlega mikið úr því. Ég hef ekki kaffi í kvöld því það er vinnukvöld hjá mér og við Dýrunn sláum saman í veislu fljótlega eftir hennar afmæli í næstu viku, það eru bara átta dagar á milli afmælanna okkar.

Í morgun þegar Dýrunn var búin að koma sér fyrir við eldhúsborðið eftir að hafa komið skríðandi fram svo þreytt var hún spratt inn í herbergi þegar hún uppgötvaði hvaða dagur var. Hún kom fram með fjórar gjafir, allt sem hún hafði útbúið sjálf. Fyrst opnaði ég bréf sem í stóð: Mamma þú ert besta mamma í heiminum og öllum geiminum. Ekki slæm ummæli. Svo kom falleg mynd af mér og henni. Næst var mynd af mér og pabba "þegar pabbi er orðinn mjór" bætti hún við Wink eða þegar hann var einu sinni mjór Tounge. Að lokum fékk ég fallegt borðskraut.  Þetta dugir mér í dag þó ég búist nú við að eitthvað bætist við þegar bóndinn kemur heim. 

Í svona litlu samfélagi muna sumir alltaf hvenær sumir eiga afmæli. Ég hef því fengið kveðjur vinstri hægri, galandi úr bílglugga á ferð og knús frá nemendum í skólanum, sms og símtöl.  Gaman að því.

Ég ætla að vinna í því að eiga sem notalegastan dag og gera bara það sem mér þykir skemmtilegt....

 

Foreldrar 1.JPeGHeartkveðjur til ykkar þarna úti og það er í góðu lagi að skilja eftir sig kvitt af og til, gaman að vita hverjir eru að detta inn. 

  Þessi mynd af mömmu og pabba var tekin í afmæli hjá Gutta í Löndum þegar ég var fimm eða sex ára held ég. 


Auglýsingar !

Þegar ég opnaði bloggsíðuna mína síðasta vor valdi ég mbl því það virtist að ég gæti haft síðuna mína án auglýsinga. En nú er smáa letrið komið í ljós sem ég las greinilega aldrei og flennistór auglýsing frá símafyritæki blikkar stanslaust meðan lesið er. 

Ég er ekki alveg sátt við það og veit að fleiri eru það ekki og er að spá hvort ég á að fær mig um set eða hvað. Ég ætla þó að bíða róleg og sjá hvað verður því ég er mjög ánægð með þessa síðu að öðru leyti og vona að þið látið þetta blikkandi fyrirbæri fram hjá ykkur fara á meðan. 

Kv Smile


Upp er runninn öskudagur.... og reyndar liðinn líka.

Að venju var húllumhæ í skólanum í umsjón Foreldrafélaga grunnskólans og leikskólans og kennara grunnskólans. Hefðbundin kennsla var frá átta að fyrri frímínútum og mættu ýmsar furðuverur þann morguninn. Síðan var farið íþróttahúsið þar sem við sprelluðum saman og að lokum var nornin  slegin úr kassanum. Já hvar er kötturinn og tunnan?  Erfitt reynist að fá tunnur þessa dagana og lengi yrðu þau að glíma við plasttunnurnar. Því hafa pappakassar verið látnir duga ásamt ýmsu sem þyngir því nammið fer í hengla þegar það er slegið sundur og saman. Nornin galaði í kassanum þar til hún hætti en enginn heyrði í henni því svo mikill var spenningurinn og lætin n.b. hún var gervi. Tounge  Hver og einn ætlar sér að vera sá sem rústar kassanum og vissara að halda sig í hæfilegri fjarlægð þegar kylfan er munduð.

Eins og áður hefur komið fram voru umræður á heimilinu um búningamál og niðurstaðan sú að Dýrunn notaði sinn síðan í fyrra og var alsæl með hársprey og glimmer í andlitið, hún var Snædrottningin. Friðrik öllu hógværari þó hann hafi verið ákafastur í bæklingunum og hárspreyið ásamt notuðum fötum dugði fyrir hann. Það var mjög gaman að sjá hvað margir létu ímyndunaraflið njóta sín og klæddust og máluðu sig eftir eigin höfði.  Hér sést útFeb2008 026koman hjá mér og  krökkunum.Feb2008 027                                                                       

 Feb2008 030

   Chaplin gamla vantaði reyndar hattinn og stafinn en stóð fyrir sínu. Hatturinn hefði reyndar skyggt á svarta háralitinn sem ég var dauðhrædd um að myndi ekki skolast úr. 

 

Í kvöld verður þorrablót skólans svo ég hef í nógu að snúast í dag. Það verður ágætt að leyfa öðrum að spreyta sig næstu tvö ár og ég búin með mitt í bili. Þetta er gaman og ómissandi viðburður.  MMMM hlakka til að smakka hákarlinn sem skilaði sér til okkar þrátt fyrir veðurofsa og ófærð. 

 

Ekki hefur okkur Díönu gengið vel að koma á fundinum okkar enda hefur vetur konungur verið í sínum mesta ham um land allt. Ekkert mál, það koma tímar og við látum ekki deigan síga.

 

Farið varlega í hálkunni og ekki kvarta !    


Snjór, snjór,snjór og svo komin þýða.

Já skjótt skipast veður í lofti þessa dagana. Vetur konungur verið óvenju stabíll við völd og skrambi mikill kuldi sem beit í kinnarnar um helgina, að minnsta kosti í Reykjavíkinni. Við komumst heim úr skrallinu okkar og veðrið var alveg ljómandi fínt. Það var svolítið erfitt að vakna hálf átta þar sem hjónakornin skriðu undir sængina um þrjúleytið eftir hörku árshátíð Eimskips.  Já hörku árshátíð og ég dansaði svo mikið að ég gat varla gengið salinn á enda til að komast í leigubílaröðina. Við vorum sko í Valsheimilinu og við gistum á Loftleiðum hehe ekki langt en kalt og hált svo það voru ekki teknir neinir sénsar. Ég var á nýjum skóm sem henta greinilega ekki í svona átök þó fínir væru. Jónsi og co. í Svörtum fötum fóru gjörsamlega á kostum og það var ekkert hægt að sitja eitthvað og horfa á. Jósef gafst upp enda ekki mikill dansmaður en þá fann ég bara nýja dansfélaga. Hanna og Palli voru þarna á svæðinu og ég rifjaði aðeins upp danstaktana með Palla og stóð vel í lappirnar. Hann var svolítið smeikur til að byrja með enda ekki skrýtið þar sem ófarirnar í okkar síðasta dansi hafa alfarið verið kenndar upp á hann. Tounge

Dvölin okkar fyrir sunnan var í alla staði mjög vel heppnuð. Við vorum komin snemma á föstudag og bara tjilluðum, tékkuðum okkur á hótelið og slökuðum á,  fórum aðeins í Kringluna, örlítið í IKEA, fengum okkur gott að borða og svo tók dagskráin við um kvöldið. Ég hitti jógasamkennara mína, reyndar var fámennt en gífurlega góðmennt og við hlóðum hverja aðra af heilmikilli jógaorku Grin

Laugardagurinn var Kikk off og það var mjög gaman og enn ein hleðslan. Ég flutti fyrirlesturinn minn skammlaust og var mjög sátt við frammistöðu mína enda vel undirbúin. Það voru nokkrir fyrirlestrar, heilmikil fræðsla og orkusprauta. Í lokin fórum við svo í jóga svo allir fóru vel slakir heim Smile

Í dag blés Kári kröftuglega og þeytti snjónum fram og til baka. Upp úr tvö datt svo allt í dúnalogn og sólin birtist í öllu sínu veldi. Krakkarnir þustu út med det samme og ég tók mynd af vinkonunum Dýrunni, Kolbrúnu, Jónínu og Rakel við fína snjókarlinn sem þær gerðu. Óskaruðningurinn er kominn við Balann og nú er kFeb2008 024lifrað og rennt, klifrað og rennt. Eina leiðinlega við þetta er að það er komin þýða svo það verður fljótt slabb. Ég finn þá kannski bílinn minn, eins og staðan er núna þyrfti ég að moka ca 3 metra af tæplega tveggja metra háum snjó því bílastæðið mitt er snjókista mikil. Besta mál meðan ég þarf ekki að bregða mér af bæ og geng það sem ég þarf að fara. Gott innlegg í niðurtalningu á sendimetrum og kg. sem er í fullum gangi. Wink

Búið að borða bollur dagsins, á morgun eru það baunirnar (fer nú varlega í saltkétið) og svo öskudagurinn. Mér finnst mjög gaman að þessum dögum, skemmtilegt krydd í tilveruna og tek þátt af heilum hug.

Við í stjórninni í foreldrafélaginu erum að undirbúa öskudaginn og svo verður þorrablótið hjá okkur á föstudag. Nóg framundan og líklega nett spennufall um helgina.  

 

Hafið það eins og þið viljið  ..................... Ciao.......... 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband