Nú er hún komin hingað...

Já vorlyktin er komin hingað líka og lóan farin að syngja dirrindí innan um bráðnandi snjóskaflana.

Hafið það nú eins og þið viljið elskurnar inn í vorið og helgina....  


Ég fann lykt af vorinu.

Já í gær fann ég lykt af vorinu og það á Reyðarfirði. Grin Af hverju þar veit ég ekki, kannski hafa skilningarvitin verið óvenju virk eftir jógatímann sem ég var að koma frá því að kenna eða bara komin vorlykt á Reyðarfirði. Hér er enn svolítið mikill snjór og lyktin ekki búin að ná upp á yfirborðið, ekki í mitt nef að minnsta kosti.

Þó það minni fátt á blessað vorið er það komið í börnin. Um leið og sól sést á lofti fjúka flíkurnar út og suður og mömmurnar þurfa að hafa sig allar við að dekstra þær á börnin aftur. Hér er hópurinn í 1.-3. bekk að skella sér í hjólaferð með kennaranum sínum inn að verkstæði, ekkert smá spennandi. Burrr segi ég enda ekki mikill jaxl þegar vindur og kuldi er annars vegar.  

Reyndar ætla ég að láta yfirfara mitt fjallahjól, láta athuga hvort gamli Wheeler gripurinn stendur ekki enn fyrir sínu. Eitthvað er gíraskiptingin orðin stirð en kannski spurning um eitthvað stillingaratriði. Ég reyni að troða því í skottið á litlu Toyotunni og bruna með það á Breiðdalsvík á föstudaginn. Skil hjól og bíl eftir hjá Ingólfi sem ætlar að gefa litla krílinu mínu yfirhalningu, nýja bremsuborða, smurningu ofl. svo hann sé klár inn í vorið og skoðun. 

Hann fær bílinn en ég fæ Helgu með mér til Reykjavíkur. Við ætlum á svokallaðan STS skóla sem er þjálfunarskóli Herbalife dreifingaraðila. Það er heilmargt fleira á dagskrá. Hingað til lands kemur kempa sem ætlar að fræða okkur um Herbalife og íþróttir, svið sem er orðið ansi stórt í Herbalife bransanum. Hann er rosalega flottur og fróður. Luigi Gratton heitir hann ef þið viljið Googla hann. 

Ég fer á sér þjálfun hjá honum á sunnudag og svo verður sportráðstefna í framhaldinu. Miðar voru seldir í forsölu og það er uppselt takk fyrir 450 í það minnsta, man töluna ekki alveg.    Ég er rosalega spennt og við tökum hlaupaskóna með því ekki megum við missa hreyfistig þó við förum til Reykjavíkur eina helgi. Sundbolurinn verður líka með í töskunni og við smeyjum okkur jafnvel í laugarnar líka, notalegt. Brunum svo heim á mánudag, bregðum þá á okkur málbandinu til að athuga stadusinn og hvort það hafi ekki mjakast aðeins niður á við, við erum sko saman í átakshóp sem er í skemmtilegri niðurtalningu.

Gaman gaman...... heyrumst einhvern tíman... Cool

 


Hvítur mánudagur...

...og mjög fallegur. Fimmtán sm jafnfallinn snjór, stillt og fallegt veður. Mmmmmm mér leið ljómandi vel á leið minni í skólann. Þar er ég yfirleitt ekki á mánudögum heldur heima að vinna önnur verkefni en ætlaði að sækja fartölvuna mína fyrir verkefni sem ég ætla að vinna fyrir hádegi. Ég var ekki með lyklana mína og beið með krökkunum eftir að einhver lyklapétur mætti. Sumir krakkarnir komu bölsótandi yfir snjónum, ég bauð brosandi góðan dag og dásamaði veðrið. Á sum andlitin færðist bros en ekki önnur og ég minnti suma á sem hæst höfðu að hafa þetta fyrir sig.  Nú ekki var fullorðna fólkið glaðbeittara og það er stunið og óað og æjað yfir vetrinum okkar.  Hafði ekki vitundar ögn áhrif á góða skapið mitt og ég er þess jafn fullviss og þegar ég vaknaði í morgun  að þetta verði góður dagur. 

Vissulega er ég líka farin að þrá vor í loft og sjá allt ruslið sem kemur undan snjónum en ég hef valið mér það hlutskipti að pirra mig ekki yfir því sem ég ræð ekki sjálf. Það hentar mér vel að hafa auðar götur þegar ég keyri í jógakennsluna 4x í viku en ég gef mér meiri tíma ef ég veit að færið er ekki gott. 

Ég held að ef við látum veðrið stjórna skapinu okkar sé einhver önnur ástæða að baki, einhver óánægja eða ósætti með hlutskipti sitt eða bara gamall vani. Nota bene þetta er mín skoðun og hana miða ég út frá sjálfri mér því ég bölsótaðist gjarnan yfir veðrinu og ýmsu því sem ég hafði enga stjórn á en þegar ég fór að tína kuskið úr naflanum sá ég tilgangsleysi þess að fárast yfir ýmsum hlutum.  Viti menn, mér líður miklu betur með það og mér þykir betra að líða vel heldur en illa svo ég er mjög svo sátt við þessa ákvörðun.

Þið sem lesið í dag og hafið áhuga á að styrkja sálartetrið, gefið ykkur rúmar fjórar mínútur og kíkið á þetta textamyndband. Ég hlusta reglulega á það og eftir á rétti ég betur úr mér, ákveð að þessi dagur verði góður (ákveð það reyndar þegar ég opna augun á morgnana) og færi mér margt gott og brosi framan í snjóinn Grin

 Njótið vel..... Hafið það síðan eins og þið viljið í allan dag Wink


"Og þá var kalt í höllinni......"

Ég var búin að lofa myndum af fótboltakappanum frækna sem keppti á Fjarðarálsmótinu um helgina í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði.  Ég vissi að það væri kalt þar, var þó eins og jólasveinn að spá í að skilja úlpuna eftir og vera í flíspeysunni og vindjakkanum (eins og ég byrjaði) en hefði séð hressilega eftir því. 

 Lið Friðriks keppti fjóra leiki og úrslitin voru ekki alveg hagstæð, einn sigur og þrír tapleikir. Þeir voru samt kampakátir í lokin eins og sjá má á þessari mynd. Friðrik er fyrir miðju í aftari röðinni.

Ýmislegt 005

 

Þreyttir voru kapparnir í lokin og vegna kuldans var minn maður með svakalegar harðsperrur morguninn eftir, hefði ekki veitt af að komast í heitan pott eftir daginn en það var ekki hugað að því. Það var því tár á hvarmi þegar menn skakklöppuðust á leið í skólann með töskuna í hendinni því menn megnuðu ekki að skella henni á bakið.  Þær voru þó fljótar að rúka úr skrokknum sem er á sífelldri hreyfingu og eftir styrktaræfingar af ýmsu tagi í íþróttatímanum í skólanum var minn maður fær í flestan sjó.

Kolbrún og Dýrunn skelltu sér með bræðrum sínum og við vorum hálf hrædd um að við yrðum að nudda í þær hita en það var algjörlega ástæðulaus ótti. Þær skottuðust um, vöfðu um sig flísteppum og nutu sín í botn.  Ekki leiðinlegt því milli leikja var farið fram í hitann og við fengum okkur smá skammt úr kakóbrúsanum.

Hér sjást þær kampakátar með rauða nebba.....

Ýmislegt 003  Ekki brunuðum við heim á leið eftir síðasta leik heldur á Eskifjörð þar sem okkar beið hlý stofa við arineld og dásamleg fiskisúpa og fiskur ásamt meðlæti hjá Díönu góðvinkonu okkar og fjölskyldu. Menn tóku vel til matar síns enda búið að brenna þokkalega þann daginn.

Krökkunum þótti við fara fullsnemma heim á leið en það var komið kvöld og skóladagur daginn eftir.

Við eigum eftir að hittast heilmikið á næstunni við æfingar fyrir 5K hlaupið sem Friðrik og Jökull eru farnir að æfa fyrir og verður í Barcelona í sumar, veitir ekki af að hafa hvatningu fyrir mömmurnar líka til að koma sér í skokkformið.  Ég veit að Jósef ætlar að vera í klappliðinu hehe og spurning um Dýrunni, hún er ekki mikill hlaupagarpur. 

Strax er farið að spá í hvenær næsta fótboltamót verður eða hvenær þeir komist að hitta félagana úr boltanum. Hér eru æfingar dottnar niður svo það er beðið eftir vorinu og sumaræfingum hjá Leikni og að blessaður snjórinn bráðni af sparkvellinum.

Móðirin spáir helst í hvar hún á að kaupa góða skó á kappann fyrir sumarið.....og hvernig henni gangi að koma sér í skokkformið Cool

 

 

 


Annasöm vika liðin....

Það má með sanni segja að margt hafi verið að gerast í síðustu viku.

Keppnisdagar voru í skólanum þrið. til fim. og tókust rosalega vel. Fyrirmyndina sóttum við til Djúpavogs en þar hafa keppnisdagar verið haldnir í nokkur ár. Snilldar hugmynd til að brjóta upp hefðbundið skólastarf.

Við brutum allt skólastarfið upp, nemendum var skipt í lið, kennarar undirbjuggu keppnisgreinar og svo kepptu þau í hinum ýmsu greinum. Ég sá um heimilisfræði og þar bökuðu eldri nemendur pönnukökur, straujuðu og leystu bókleg verkefni. Yngri hópurinn bakaði bollur, straujaði viskustykki og leystu bókleg verkefni. Síðasta daginn var hæfileikakeppni þar sem hver hópur flutti atriði 3-5 mín.  að lengd. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og þar var rosalega erfitt að dæma og mjög mjótt á munum. Hæfileikakeppnin var skemmtileg en þau höfðu alveg frjálsar hendur með verkefnaval þar, það komu ýmsar útgáfur og miklir hæfileikar.

Þetta var heilmikið puð en rosalega skemmtilegt. Það var annasamt á öðrum vígstöðvum, tvö tvöföld Baujunámskeið kenndi ég líka á Fásk.  og byrjaði með tvö jóganámskeið.  Annað jóganámskeiðið er á Breiðdalsvík og hitt á Reyðarfirði. Hér á Stödda voru kerlurnar út og suður og náðist hreinlega ekki í hóp. Tvær kerlur koma með mér yfir á Breiðdalsvík og það er fínt að hafa félagsskap á leiðnni.  Flottir hópar á báðum stöðum og harðsperrur vinstri hægri eftir fyrstu tímana.  Rosalega gott að kenna í salnum á Reyðarfirði sem er passlega stór og rosalega góður hljómur í honum. Skrýtið samt að vera í speglasal en hópurinn snýr að sjálfsögðu baki í hann þar sem þeir myndu trufla einbeitinguna, hentar í öðru sporti.  

Þegar ég kom úr jóganu á fimmtudagskvöld var svokallaður Kikk off fundur hjá mér með dreifingaraðilum sem ég er að vinna með á Austurlandi.  Það var góð hleðsla.  

Þar sem álagsþröskuldur minn er ekki rosalega hár var þetta alveg nóg og vel það og á föstudag var ég í allsherjar afslappelsi, tók heimilisverkunum með stóískri ró og leyfði mér að slaka á. 

Í gærkvöld hittust nokkrir kennarar hér hjá okkur Jósef og við vorum í notalegu spjalli vel fram yfir miðnætti. Ætlunin var að halda Sing Star partý og kannski var það ástæðan fyrir fámenni hehe en við sungum bara í huganum og spjölluðum yfir kertaljósum og notalegheitum enda allir þreyttir eftir annasama viku.

Dagurinn í dag fer líka í rólegheit og afslappelsi, notalegt jóga og Totalpakkagerð, það eru prufupakkarnir sem ég gef áhugasömu fólki um vörur og viðskiptatækifæri Herbalife.

Friðrik keppir á fótboltamóti á morgun á Reyðarfirði og við erum ekki búin að ákveða hvort við förum bæði með eða annað hvort en það er nokkuð ljóst að vetrarflíkurnar verða uppi við þar sem vetur konungur blæs enn köldu hér fyrir austan.

 Læt fylgja fréttir af kappanum og væntanlega myndir næst þegar ég verð í stuði við tölvuna. 


Extravaganza.....

Já hvað er það. Það má segja að það sé árshátíð Herbalife dreifingaraðila. Þar komum við þúsundir saman og fræðumst og skemmtum okkur eina helgi. Ég fór fyrst á Extravaganza í Atlanta og það var 25 ára afmælishátíð Herbalife. Þvílík skemmtun. Síðan hef ég ekki misst úr þjálfun því þetta er sú jákvæðasta hleðsla sem ég hef upplifað ever og frábært að hafa tök að sækja þessar þjálfanir. Ný vinátta myndast og í þessum ferðum hef ég kynnst mörgu frábæru fólki, alltaf einhverjum nýjum og sumum betur og betur. Upplifun sem er ekki hægt að setja í orð.....

Þar sem ég er nú dottin í vídeo af You Tube ætla ég að sýna hér tvö myndbönd til að sýna fólki brot af því hvað ég er að upplifa í þessum ferðum. Það fyrra er sýnishorn af 25 ára afmælishátíð Herbalife og hitt er kynningarmyndband fyrir Barcelona Extravaganza 2008.  Svona er Herballífið Cool Hækkið í hátölurunum, standið upp og tjúttið með.... Wizard

 

 

 Svo kemur spænska stemningin !

 

 

Langar þig að vera með ???  Nóg pláss fyrir fleira fólk í baráttunni við að bæta heilsu og lífskjör fólks. 

 

 


Framlenging á páskafríi !

Ekki kærkomin ónei en það var eins og við manninn mælt þegar skólinn átti að byrja í gær þá lagðist Dýrunn í veikindi. Greyið skinnið höfuðverkur,magaverkur, hiti og beinverkir. Friðrik tók svo beinverkina í morgun og gengur um eins og gamall bóndi úr afdölum.  Ég vona svo heitt og innilega að þau nái að hrista þetta af sér og geti tekið þátt í keppnisdögunum sem fara fram í skólanum í næstu viku, spennandi verkefni það.

Nú er að mjatlast inn skráning á jóganámskeiðið á Reyðarfirði og þær sem eru komnar á blað eru mjög áhugasamar og ég trúi því og treysti að ég nái tilskyldum fjölda Grin.  Þegar ég er að kenna jóga er ég duglegust að iðka heima og gera æfingar. Ég tók einn góðan tíma í gær með Yogi Hari sem ég á á DVD disk og nokkuð ljóst að hann fer aftur í tækið í dag og á morgun og hinn og hinn og hinn.  Gigtin mín er svo skemmtileg eða þannig að ég þarf að gera töluvert á hverjum degi til að halda dampi og stundum koma tímabil sem ég slaka á. Það er ekkert annað en að halda áfram þó það sé eins og verið sé að byrja á byrjunarreit. Ekki ætla ég að leggjast í kör með þetta dót heldur ná því úr skrokknum. 

 Gefið ykkur 10 mínútur og kíkið á þetta myndband. Ótrúlegur styrkur. 


Nýr linkur !

Hér til hliðar er kominn nýr linkur inn á jógabloggið mitt. Þar verða upplýsingar um næstu námskeið og ýmis fræðsla um jóga og ávinning þess að stunda þessa frábæru mannrækt.  Ég er að fikra mig áfram með síðu á nýjum stað svo hún fæðist smátt og smátt eftir því sem tími gefst til að sinna málefninu.

Sit hér rjóð í kinnum eftir að hafa borið út auglýsingu um síðustu námskeið vetrarins. Hlakka til að fá sem allra flesta í hópinn minn. 

 Munið: Heilbrigð sál í hraustum líkama. 

 Hafið það eins og þið viljið Wink


Gleðilega páska !

Sendi ykkur allra bestu páskakveðjur.

 Páskaeggjaleitin tók heilar 10 mínútur og svo gæddu menn sé á góðgætinu fram eftir degi. Tókum svo góðan göngutúr seinnipartinn til að  hressa mannskapinn við eftir súkkulaðigumsið. Þarna bíða þau systkinin spennt eftir því að mega byrja.  Ýmislegt 014


Á skíðum skemmti ég mér ......

Loksins loksins létum við verða af því að drífa okkur með börnin í Oddskarð á skíði. Það er lengi búið að vera á planinu en hummað fram af sér þar sem það er enginn búnaður á heimilinu og þar fram eftir götunum.  Planið var að Jósef og krakkarnir myndu fara á skíði og ég ætlaði að horfa á þar sem það eru ekki nema 23 ár síðan ég steig síðast á slíka gripi. Kjarkurinn var sem sagt ekki mikill. En þegar ég sá að barnabrekkan var nokkuð hættulaus ákvað ég að skella mér líka. Ég sá ekki eftir því og náði að sviga þetta, svolítið stirðbusaleg skiljanlega og stýringin ekki alveg nógu örugg, einhverjir vöðvar sem hafa lítt verið notaðir lengi sem vildu ekki alveg hlýða eins og ég fyrirskipaði. En gaman var það.

Friðrik var snöggur upp á lagið, fór eina ferð með pabba sínum og brunaði svo einn og sjálfur það sem eftir var, fyrst baðaði hann út öllum öngum meðan hann var að finna jafnvægispunktinn og svo stóðu hendurnar beint aftur af honum eins og hann væri að bruna niður skíðastökkpallinn, já það var bara brunað beina leið niður engar óþarfa beygjur ónei.

Dýrunn er öllu varkárari og pabbinn fylgdi með í allar hennar ferðir. Í hádegishléinu var afráðið að leigja hjálm handa henni því hún var búin að fá eina kúlu á höfuðið eftir eina byltu þeirra feðgina. Úthaldið hjá henni var ekki mikið svo í heildina vorum við í ca 2 tíma í brekkunum sem var fínt fyrir fyrstu ferð. 

Á heimleiðinni var komið við í sundlauginni á Eskifirði og þreytan látin líða úr okkur. Já við vorum glettilega þreytt eftir þetta stuð. Enda var fátt annað gert eftir þennan dag en láta þreytuna líða úr sér. Þarna sjáið þið garpana fræknu. 

Nú er annasöm vika framundan, ég fer suður á miðvikudagskvöld og sit fundi hjá  Kennarasambandinu á fim. og fös. Skralla svo með Herbalife fjölskyldunni minni á fös. kvöld og allan laugardaginn, flýg til Akureyrar á  seinnip. laugardags og hitt fjölskylduna mína. Þar verður Jósef með krakkana þar sem Friðrik er að fara að keppa á Goðamóti í fótbolta. 

Bið því að heilsa ykkur í rúma viku  og vona að þið hafið það gjörsamlega eins og þið viljið. ToungeÝmislegt 007Ýmislegt 010


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband