Hvað er ....
Mánudagur, 19. maí 2008
.... bleikröndótt að neðan, bleikt og svart að ofan, ljós hárlubbi út í loftið og þessi bleika samsetning er að klifra upp stiga í rigningu í Hólalandinu rétt fyrir átta á mánudagsmorgni og á Crocks skónum ????
Já það er nú ég sjálf á náttfötunum. Nýstárleg líkamsrækt eða hvað? Í morgun var bíllinn settur í gang til að koma börnunum í skólann en það gerist varla hér á bæ. Friðrik var haltur og aumur eftir tæklingu gærkvöldsins á sparkvellinum og átti í mesta basli að koma sér og skólatöskunni niður í skóla. Og þar sem ég var enn á náttbuxunum og það rigndi þá tók ég fljótari kostinn, bílinn.
Í þann mund sem ég lokaði á eftir mér útidyrunum heyrði ég smell, ó boy... ég var ekki búin að taka úr lás. Læst úti á náttbuxunum með næturgreiðsluna (sem er by the way frekar pönkuð þegar ég er svona stutthærð).
Ég tók einn rúnt niður að Skuld til að athuga með lífsmark því Sólrún er með aukalykil en þar var engin hreyfing sjáanleg. Ég fór því svalaleiðina, ekki í fyrsta sinn svosem og núna var þó stigi undir svölunum, síðast raðaði ég upp einhverjum spýtum og togaði mig svo upp. Ágætis líkamsrækt þó ég blotnaði örlítið við að klofa yfir grindverkið, kom mér í það minnsta til að vakna 100% og ganga til minnar vinnu hér heima, það er nefnilega sæludagur, mánudagur til sælu heitir það hér því þá gefst mér næði til að vinna að Herbalife og ýmsu sem þarf að dedúa við í ró og næði.
Helgin var róleg og við nýttum okkur þjónustu Sundlaugar Stöðvarfjarðar út í ystu æsar. Á laugardag var glampandi sólskin og ég steikti mig í pottinum í tæpa tvo tíma meðan Dýrunn og Kolbrún léku sér í lauginni. Aftur fórum við í gær, reyndar var sólin í fríi en potturinn var passlegur fyrir mig svo það voru aðrir tæpir tveir tímar. Ég fékk smá far eftir laugardaginn og er því ekki alveg eins og hvítur hundaskítur, voða montin. Líður líka öllu betur í skrokknum við allan þennan hita.
Ég þarf að passa mig að verja húðina vel og vandlega og á til þess súper dúndur vörur að sjálfsögðu frá Herbalife. Radiant C húðmjólk með sólarvörn, algerlega ómissandi og svo er dagkremið, bæði Nourifusion og Skin Activator með vörn upp á 15, sólar og veðra svo það hentar allt árið um kring, ótrúlega þægilegt.
Nú er talið niður að Barcelona og ströndin á Tossa sést í hillingum.............daman búin að fá sér bikiní, hitt dó í fyrra svo það var kominn tími á nýtt. Krakkarnir orðnir spenntir og vinna sér inn farareyri á hverjum degi með því að hjálpa til við húsverkin.
Njótið vikunnar eins og þið viljið.......
Athugasemdir
Ég harðneita að mæta í jóga ef það verða einhverjar stigaæfingar.
Sigurjón Friðriksson (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 12:59
Vertu ekki svona neikvæður, alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Styrkurinn úr jóganu nýttist mér alltént við þetta brölt. Nú og ef ég næ ekki að brjóta blessaðan vegginn til að gera jógalandið mitt þá gætir þú þurft að vera í stiganum ef þú ert ekki góður.
Solveig Friðriksdóttir, 19.5.2008 kl. 13:18
Hahahahah, náttbuxnabrölt. Gangi þér vel Solla mín og Sigurjón...í joga með þig.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 19.5.2008 kl. 15:20
Mikið hefði verið gaman að sjá til þín.
Áslaug (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 22:05
Já eflaust en ég var ansi snögg
Solveig Friðriksdóttir, 19.5.2008 kl. 22:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.