Mömmumont !

Já nú ætla ég að gefa mér það bessaleyfi að monta mig örlítið af "litla" tónlistarmanninum mínum Grin

Friðrik var ekki hár í loftinu þegar ljóst var að hann hafði töluverða músík í sér. Mjög fljótur að læra lög og einstaklega lagviss að sögn föðurins Wink.  Hann hefur verið að læra á píanó sl. tvo vetur, fyrst í hálfu námi og svo í heilu námi í vetur. 

Hér sjáið þið afrakstur af vortónleikunum..... myndgæðin ekki upp á sitt besta enda tekið á litlu Canon vélina okkar.  Ég veit ekki hvort hristingurinn í lokin er vegna geðshræringar Jósefs eða að hann hafi gleymt sér og byrjað að klappa en líkt og vanalega er kappinn fljótur að hlutunum svo fljótur að pabbi hans var ekki alveg tilbúinn að byrja myndatökuna. Þið sjáið það á því hve fljótur hann er að yfirgefa sviðið.

Samspil hans og Örvars er skemmtilegt, þeir hafa náð vel saman í vetur og Friðrik er svo spældur yfir því að hann ætli að hætta hjá okkur að hann er að spá í að skipta yfir á gítarinn. Sjáum hvað setur með það.  

Ég missti því miður af tónleikunum þar sem ég var að kenna jóga á Reyðarfirði. Frown  Mér þykir því einstaklega vænt um að eiga þetta litla myndbrot. 

Þau systkinin sungu bæði nokkra vorsöngva með 1.-3. bekk  og gekk það ljómandi vel enda mikið söngfólk á ferð. Það náðist því miður ekki nógu góð mynd til að skella með. 

 Góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr ! Cool   Ég hef aðallega hugsað mér að ganga um mela og móa Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til lukku með píanóleikarann! Fínt hjá honum.

Sólrún (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 18:18

2 identicon

Glæsilegt !!!!!!

Garðar Harðar (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 20:35

3 identicon

Þetta var flott hjá honum, þú mátt vera stolt ;)

Alda Rut (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 23:18

4 identicon

Þetta var fínt hjá honum, mjög efnilegur,ansi snöggur út af sviðinu.

Sigurjón. (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 23:46

5 identicon

Flott hjá gaurnum. Hann er ansi efnilegur, verð ég að segja. Gaman að eiga þetta myndbrot :-)

Kv. frá Höllunni sem enn hamast á fjölþjálfa(ra)num í von um endurfundi Hvalnessystra, þó síðar verði.

Hallan (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 15:09

6 identicon

Flott hjá honum og mjög efnilegur. Gaman að sjá hvað hann var fljótur af sviðinu.

Áslaug (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 18:03

7 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Takk takk, já snöggur upp á lagið blessaður.

Halla, nú bara mössum við þetta og höldum okkar striki þó það hafi lengst í hittinginn og verðum í fantaformi þegar af honum verður. Það er að minnsta kosti mitt markmið að vera í betra formi í haust heldur en nú í upphafi vors.... oft fer ég nefnilega að sluksa í þegar líða fer á sumar og grillsteikunum fjölgar og öllu því gumsi. 

Solveig Friðriksdóttir, 18.5.2008 kl. 21:44

8 identicon

Glæsilegt hjá honum.

Ég missti því miður af þessum tónleikum og  þetta voru síðustu tónleikarnir hjá Hauki.

Þóra (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband