Grænir fingur...
Mánudagur, 5. maí 2008
Ótrúlegt hvað vorið hleypur í fingurna á mér hehe. Ég hef aldrei verið annáluð blómakona eða ræktandi af einhverri gerð en þegar vorið kemur langar mig í blóm og jurtir vinstri hægri. Mig hefur lengi langað að koma upp einhvers konar matjurtarrækt í garðinum en einhvern veginn hafa hugmyndirnar sofnað og sumarið liðið áður en nokkuð hefur komist í framkvæmd. Nú er allt að gerast, þrjár væntanlega myndarlegar paprikuplöntur komnar í stofugluggann, steinselja í potti og sólblómið fína (borðum reyndar ekki af því) frá Fjarðabyggð. Og líka örræktun á dverggulrótum og radísum, varð smá misskilningur en ræktandinn mikli hélt að hægt væri að sá í bakka og umpotta svo.
Næsta skref er að stinga upp eitt stykki blómabeð fyrir framan svefnherbergisálmuna (hljómar vel) og koma þar fyrir matjurtakössum eða einhverju þvílíku þar sem ég get ræktað alvöru gulrætur og radísur ásamt káli. Planið var að Jósef myndi smíða kassa fyrir mig en það var líka planið í fyrra svo það er spurning hvaða leið ég fer, er með nokkrar hugmyndir í bankanum.
Þetta er náttúrulega bara gaman, krakkarnir hafa gaman af að fylgjast með og frábært að geta borðað sína eigin ræktun. Hver veit nema ég verði hinn mesti ræktandi þegar fram líða stundir. Stefni að því.
En aftur að sólblóminu. Fjarðabyggð sendi íbúum sínum fræ af sólblómi um daginn með leiðbeiningum um hvernig ætti að koma því af stað. Ég keypti tilætlaðan pott á Egilsstöðum og setti fræið í mold. Og viti menn, tveimur dögum síðar var það sprottið upp úr moldinni, já ég talaði fallega til fræsins hehe og bað það að vaxa fljótt og vel. Nú rúmlegri viku frá því það reis upp úr moldinni er það orðið eins myndarlegt og sjá má á myndinni. Það er líka keppni í gangi og í ágúst sendum við mynd af blóminu okkar sem verður væntanlega orðið nokkuð voldugt ef fram fer sem horfir. Ekki vantar mig sólríka glugga ónei svo það eru kjör aðstæður. Krakkarnir eru spenntir og fylgjast vel með vextinum.
Hér sjáið þið blómið...
Bestu kveðjur inn í vikuna til ykkar sem staldrið við og gefið ykkur tíma að lesa brotabrot af því sem gerist í tilverunni okkar í Hólalandinu.
Athugasemdir
Ég efast ekki um að þetta kemur allt til með að vaxa og dafna hjá þér og þið borðið dúndur grænmeti, lífrænt ræktað, þegar fer að líða á sumarið. Þú ert örugglega með grænni fingur en þú heldur. Mér finnst þetta skemmtilegt uppátæki hjá Fjarðabyggð með sólblómið. Mitt fræ fór í mold í dag, reyndar ekki eftir uppskriftinni, heldur í fóstur hjá Kiwiplöntu sem ég er nýbúin að umpotta.
Sólrún (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 21:43
Sæl Solla mín, bara að láta þig vita að ég fann þig og hef haft gaman af lestrinum, takk fyrir síðast.
Kveðja úr útbænum.....
Bogga Jóna (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 17:30
Takk sömuleiðis
Solveig Friðriksdóttir, 6.5.2008 kl. 22:01
Hér í Rimanum var ýmislegt heimaræktað á boðstólum í allt fyrrasumar. Ýmsar tegundir af káli, spínat og krydd. Dásamlegt að opna hurðina og klippa búnt af fersku kryddi eða grænmeti. Vorum bara með þetta í stórum pottum á pallinum og fengum góða uppskeru. Endurtökum þetta örugglega í ár. Sólberjarunnar og rifsberjarunnar hér úti undir vegg - nú þarf ég bara að komast yfir jarðaberjaplöntur af góðu "kyni". Jömmí - ég gæti sko vel hugsað mér að fá væna uppskeru af ferskum jarðarberjum! Svo er frökenin að koma til eplatrjám í potti en það er verkefni sem leikskólinn setti af stað. Alltaf spennandi að fylgjast með þegar eitthvað gægist upp úr moldinni.
Hilsen frá aldursforsetanum :-)
P.S. Hér skal tekið fram að það er aðallega húsbóndinn á heimilinu sem er með græna fingur. Lucky me!
Hallan (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:56
Hljómar spennadi Halla, auðvitað get ég prófað kryddjurtir á pallinn :) Ég hugsa að það væri ekki vandamál að fá jarðarberjaplöntur hjá Sveini og Þórunni eða Petru "litlu" Sveins ef þú veist um bílferð suður. Þær eru á óskalistanum hjá mér líka, nammi namm. Ég er mjög ánægð með þennan græna áhuga sem er að vakna í fingrunum á mér. Hef opnað fyrir eitthvað flæði í jóganu hehe.
Solveig Friðriksdóttir, 8.5.2008 kl. 12:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.