Jákvæðni-neikvæðni
Föstudagur, 2. maí 2008
Þetta þykir mér alltaf skemmtilegt umhugsunarefni. Hvort ertu meira jákvæð/ur eða neikvæð/ur? Hollt að skoða það hjá sjálfum sér.
Í eina tíð sveiflaðist ég oft inn í neikvæðnina, þetta var ómögulegt..., gat ekki þetta vegna þess að .... aðrir leiðinlegir..... af hverju var ég í þessum aðstæðum..., af hverju, af hverju, af hverju?? Ýmsar vangaveltur á þessu sviði.
Daglega sjáum við oft hvað neikvætt hugsanamynstur er ríkjandi í samfélaginu. En hvar greinir á milli? Er hægt að vera 100% jákvæður eða 100% neikvæður? Það held ég ekki, sá jákvæði verður á stundum eitthvað neikvæður og væntanlega er eitthvað jákvætt hjá þeim neikvæða.
Þeir sem eru jákvæðir, hugsa meira í lausnum heldur en vandamálum. Þegar einhver hindrun bankar upp á vinna þeir í að finna lausn á þessu máli og nota það sem gott innlegg í reynslubankann. Þeir hafa oft skýra sýn á markmiðin sín og vinna í átt að þeim, leyfa sér að eiga drauma.
Þeir neikvæðu velta sér upp úr vandamálum, sjá oft hverja hindrum sem stærðarinnar vandamál og velta vöngum fram og til baka hvað þeir séu nú alltaf óheppnir.
Í Baujunni (www.baujan.is) er kennd aðferð til að minna sig á að hugsa jákvætt. Einfalt, auðvelt og áhrifaríkt. Þá ímyndum við okkur að hjól snúist í kollinum á okkur. Þegar það snýst áfram erum við að hvetja okkur áfram: ég get þetta, ég er frábær., þetta gengur vel, ég skal, ... allt það jákvæða sem getur hvatt okkur og styrkt. Og með því að snúa hjólinu eins mikið áfram og við getum erum við á leiðinni að búa til sterkan einstakling.
Nú það gerist hjá öllum að hjólið snýst stundum aftur á bak og stundum fer fólk á fullt að bjóta sig niður.... get ekki, vil ekki, kann ekki, finnst asnalegt, af hverju ég..... o.s.frv. Ef við snúumst í þessa átt daglangt erum við ekki að búa til sterkan einstakling.
Hvernig snýst hjólið þitt? Snýst það meira áfram? Frábært, haltu áfram á þeirri braut. Snýst það meira aftur á bak ? Frábært, þá hefur þú verk að vinna við að koma því áfram.
Í mínu tilfelli tók ég ákvörðun um að vera meira jákvæð en neikvæð því mér þykir betra að líða vel en illa og með jákvæðninni líður mér auðvitað betur.
Það var ákveðið atvik í mínu lífi sem varð til þess að ég tók þessa ákvörðun. Ég ætlaði að leggja árar í bát og vorkenna sjálfri mér en minn betri helmingur sagði þessa snilldar setningu, "ekki líta á þetta sem vandamál, líttu á þetta sem tækifæri". Atvikið var þarna og afleiðingarnar verða um ókomin ár en þessi eina setning kom mér á slóðina að sætta mig við það sem gerst hafði og finna styrk til að takast á við hlutina. Við höfðum jú komið okkur sjálf í þessar aðstæður, gleymist stundum að við sköpum okkar aðstæður sjálf.
Þegar upp er staðið var þetta ótrúlegt tækifæri, tækifæri fyrir mig að eflast og styrkjast og hefur í framhaldinu opnað margar nýjar og spennandi dyr á mínu ferðalagi.
Hvernig ætlar þú að láta hjólið þitt snúast í dag ? Mitt snýst áfram, áfram, áfram og hiklaust segi ég speglinum að ég sé alveg frábær og líður vel með það. Hefur þú prófað að segja speglinum hvað þú ert frábær?
Spakmæli dagsins: Ég brosi við lífinu - og lífið brosir við mér. G.B.
Athugasemdir
Frábær setning Jósef! Þú ert snillingur eins og konan þín og saman eruð þið náttúrulega bara ótrúlega miklir og frábærir snillingar
Hlakka svaka mikið til Barcelona og Tossa með ykkur og þess að njóta ykkar jákvæða félagsskapar.
Sjáumst og skjáumst, kv. DMS.
Life will never be the same...!!, 2.5.2008 kl. 10:18
Takk sömuleiðis og takk fyrir gærkvöldið, rosalega góð hleðsla og gaman að kynnast þessum skemmtilegu konum.
Fyrstu viðbrögð Friðriks í morgun þegar hann sá spjaldið síðan í gærkvöld..."Af hverju máttum við ekki gera draumaspjöld". Nú skal öllum bæklingum safnað fyrir draumavinnu hjá ungunum
.
Solveig Friðriksdóttir, 2.5.2008 kl. 11:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.