Barcelona project ..
Föstudagur, 25. apríl 2008
Það er í fullum gangi þessa dagana. Þannig er að fjölskyldan ætlar í sumarfrí til Barcelona í júní. Það verður bæði yndislegt letilíf og líka vinnuferð því við endum ferðina á Extravaganza hjá Herbalife.
Nú þegar maður fer í frí er gott fyrir smáfólkið að hafa smá aur á milli handanna og foreldrarnir leggja stundum meiri vinnu á sig mánuðina fyrir frí til að hafa líka meira skotsilfur í fríinu. Því var þessu verkefni komið á. Hugmyndina fékk ég hjá stórvinkonu minni sem er með mikið hugmyndaríki (að sögn sonar hennar) og felst í því að börnin leggja af mörkum ákveðna vinnu við heimilisstörfin vikulega (allt sniðið að aldri og getu að sjálfsögðu) og allt sem þau gera aukalega að eigin frumkvæði gefur plús og evrur í ferðasjóðinn.
Heimilið hefur sjaldan verið jafn snyrtilegt jafnvel þó það hafi verið mikið at hjá foreldrunum undanfarið og oft fer ýmislegt á hvolf við það og safnast upp. Allir hafa gaman af og við sjáum fram á lítið kvabb í ferðinni um að kaupa hitt og þetta smálegt þar sem þau verða með sinn farareyrir.
"Mamma, má ég vaska upp, hljómar oft þessa dagana". Hér eru þau systkinin í uppvaskinu í morgun. Jú jú við erum með uppþvottavél en þetta er svo gaman.
Ég kenndi í fyrsta sinn í gær samskiptanámskeið úr Baujunámsefninu mínu fyrir hóp og það var á skemmtifundi hjá Slysavarnarsveitinni á Fáskrúðsfirði, kvennadeildinni nánar tiltekið sem er að halda upp á 73 afmæli sitt. Geri aðrir betur. Þarna voru samankomnar rúmlega 20 konur á öllum aldri og það var mjög gaman og gekk vel.
Nú er bara að finna fleiri hópa og ef þið vitið um samstarfshópa sem vilja fræðslu má benda á mig
Við erum með pælingar um jógalandið sem mig langar að útbúa í kjallaranum, ætlum að fá í heimsókn sérfræðing sem sagar niður veggi og fá ráð hjá honum. Þetta er víst ekki alveg eins einfalt og við héldum því það gæti þurft einhver leyfi og svoleiðis. Það kemur allt í ljós þegar hann hefur skoðað.
Jóganámskeiðin ganga vel og alltaf gaman að sjá framfarir og dásemdarbrosið eftir slökun. Fæstir gera sér grein fyrir hvað slökunin er endurnærandi og okkur lífsnauðsynleg.... eitt af því sem frætt er um í Baujunni
Sumardagurinn fyrsti var færður yfir á föstudag, í gær var ég í önnum við námskeiðsundirbúning, Jósef jú að vinna, rauðir dagar eru stundum ekki rauðir þegar menn eru í hans starfi svo við krakkarnir ætlum að hafa það notalegt í dag, förum í sund og slöppum af.
Við náðum smá göngutúr í gær í þokunni, gengum inn að Steinasafni, niður í fjöru og alveg að smábátahöfninni. Vorum heppin að vera með poka því undan snjónum koma flöskur í massavís. Þau eru að safna flöskum og við komum heim með fullan poka. Komum við á Brekkunni og þau fengu sér kökur og djús, síðan slóst Jósef í hópinn og við fórum út á Sólhól og skoðuðum breytingarnar sem hafa orðið á því húsi. Þetta er eins og í sögunni um litla ljóta andarungann... ótrúleg breyting á einu húsi. Skoðið flottu heimasíðuna þeirra www.solholl.com rosa flott síða.
Sundið bíður og spurning hvort það verður brunað á Eskifjörð eða í Egilsstaði... hm... það er svo ljómandi góður ís í Söluskálanum... stefnan tekin þangað.
Hafið það eins og þið viljið.....
Athugasemdir
Takk fyrir síðast. Ég var fannst þetta mjög skemmtilegt og fræðandi. (Smá spark í rassinn alltaf nauðsynlegt)
Jóhanna Þ (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 13:13
Gleðilegt sumar
Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 13:27
Það er nóg til af tómum gosflöskum og dósum hjá frænkunni í Sunnuhvoli. GLEÐILEGT SUMAR!!
Áslaug (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 13:38
Já Jóhanna ég vona að þær nýti sér það eitthvað. Alltaf gott að láta minna sig á reglulega, öðruvísi bætir maður sig ekki.
Gleðilegt sumar Jóhanna Guðný
Áslaug, það koma sendiboðar einhvern daginn og losa þig við flöskurnar
Já og gleðilegt sumar 
Solveig Friðriksdóttir, 25.4.2008 kl. 18:34
Sæl vinkona og gleðilegt sumar. Ætla alltaf að kíkja á síðuna þína, kom því loksins í verk í morgun. Barcelona hljómar rosalega vel!! Sjáumst í maí. Dóra
Dóra (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 08:50
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn sem samskiptalega hefur nánast einungis legið á netinu. Menn verða jú að finna sér vettvang þegar landið og miðin eru á milli
Í Rimanum er djöflast á fjölþjálfanum (taktu eftir að ég sagði fjölþjálfanum en ekki fjölþjálfaranum, sem hefði haft allt aðra meiningu!!) dag hvern til að undirrituð þurfi ekki að hinkra eftir ykkur á þúfu á miðri leið þegar stóra þrammið verður! Verst ef við þurfum að fá okkur ísbrodda og þoturassa til að ná fyrirhuguðum áfanga...
Damn, hvað verður gaman hjá okkur! See'ya!
Hallan (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 20:02
Já það er nokkuð ljóst að það verður einhver snjóþekja drjúgan hluta af leiðinni. Ef hún er nokkuð föst í sér sleppur það. Göngustafirnir verða með í för, það er þá hægt að leita með þeim ef einhver pompar niður gat einhvers staðar.
Já ræfils karlinn er þú værir með fjölþjálfara, það væri líklega frekar sjaldgæfur náungi.
Solveig Friðriksdóttir, 29.4.2008 kl. 15:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.