Svífandi á skýi.
Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Það má eiginlega segja að ég svífi á skýi eftir helgina. Heimferðin í gær keyrandi um Suðurlandið og austurúr var eins og skottúr svo margt höfðum við Helga að ræða eftir stórkostlega Herbalife helgi. Hver toppurinn á fætur öðrum og sportráðstefnan á sunnudag með Luigi Gratton var rosalega mögnuð. Fræddi okkur heilmikið, svaraði mörgum spurningum og fyrst og fremst byggði upp sjálfstraust út í gegn. Margt spennandi framundan og gaman að sjá hvað íþróttaheimurinn er að taka við sér varðandi þessa frábæru næringu. Ég er að lesa bókina hans og hún er rosalega fróðleg.
Nú er nóg framundan við að púsla vinnum saman (skóli, Herbalife,jóga) svo allt fái sinn hluta. Á sumardaginn fyrsta verð ég með slysavarnarkonum á Fáskrúðsfirði og fræði þær um skemmtilegt efni. Hlakka mikið til þess.
Fuglarnir syngja vorsönginn daginn út og daginn inn og lyfta lundinni í hæstu hæðir. Ég hlakka mikið til að arka af stað með stafgöngustafina mína til að vinna í lokahnykknum í mótuninni ef ég á að eiga séns í verðlaunin í heilsuhópnum mínum .
Spakmæli dagsins: Ég BEINI SJÓNUM að því sem þarf að gera. G.B.
Athugasemdir
Góðan dag !
Já ég sá þig í sjónvarpinu þegar var verið að tala við Luigi, þú varst voðaleg flott.
Gangi þér vel í að ná takmarkinu þínu og svo go go
Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 08:45
Gaman vað gengur vel hjá þér Solla mín.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 23.4.2008 kl. 13:34
hvað átti ég við.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 23.4.2008 kl. 13:35
Takk dömur
Solveig Friðriksdóttir, 25.4.2008 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.