Ég fann lykt af vorinu.

Já í gær fann ég lykt af vorinu og það á Reyðarfirði. Grin Af hverju þar veit ég ekki, kannski hafa skilningarvitin verið óvenju virk eftir jógatímann sem ég var að koma frá því að kenna eða bara komin vorlykt á Reyðarfirði. Hér er enn svolítið mikill snjór og lyktin ekki búin að ná upp á yfirborðið, ekki í mitt nef að minnsta kosti.

Þó það minni fátt á blessað vorið er það komið í börnin. Um leið og sól sést á lofti fjúka flíkurnar út og suður og mömmurnar þurfa að hafa sig allar við að dekstra þær á börnin aftur. Hér er hópurinn í 1.-3. bekk að skella sér í hjólaferð með kennaranum sínum inn að verkstæði, ekkert smá spennandi. Burrr segi ég enda ekki mikill jaxl þegar vindur og kuldi er annars vegar.  

Reyndar ætla ég að láta yfirfara mitt fjallahjól, láta athuga hvort gamli Wheeler gripurinn stendur ekki enn fyrir sínu. Eitthvað er gíraskiptingin orðin stirð en kannski spurning um eitthvað stillingaratriði. Ég reyni að troða því í skottið á litlu Toyotunni og bruna með það á Breiðdalsvík á föstudaginn. Skil hjól og bíl eftir hjá Ingólfi sem ætlar að gefa litla krílinu mínu yfirhalningu, nýja bremsuborða, smurningu ofl. svo hann sé klár inn í vorið og skoðun. 

Hann fær bílinn en ég fæ Helgu með mér til Reykjavíkur. Við ætlum á svokallaðan STS skóla sem er þjálfunarskóli Herbalife dreifingaraðila. Það er heilmargt fleira á dagskrá. Hingað til lands kemur kempa sem ætlar að fræða okkur um Herbalife og íþróttir, svið sem er orðið ansi stórt í Herbalife bransanum. Hann er rosalega flottur og fróður. Luigi Gratton heitir hann ef þið viljið Googla hann. 

Ég fer á sér þjálfun hjá honum á sunnudag og svo verður sportráðstefna í framhaldinu. Miðar voru seldir í forsölu og það er uppselt takk fyrir 450 í það minnsta, man töluna ekki alveg.    Ég er rosalega spennt og við tökum hlaupaskóna með því ekki megum við missa hreyfistig þó við förum til Reykjavíkur eina helgi. Sundbolurinn verður líka með í töskunni og við smeyjum okkur jafnvel í laugarnar líka, notalegt. Brunum svo heim á mánudag, bregðum þá á okkur málbandinu til að athuga stadusinn og hvort það hafi ekki mjakast aðeins niður á við, við erum sko saman í átakshóp sem er í skemmtilegri niðurtalningu.

Gaman gaman...... heyrumst einhvern tíman... Cool

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það lyktar allt af vori.. svei mér þá.. og bara skrýtið að sjá snjóinn ennþá út um allt .. hahaha  og Joga tíminn var góður 

Eigðu frábæra helgi í Borg Óttans  og sjáumst í næsta joga tíma...

Dreifbýlistúttan (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 16:16

2 identicon

Já held bara að vorið sé að koma

Og hafðu það flott í borginni.

Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 23:25

3 Smámynd: Life will never be the same...!!

Solla, sjáumst við ekki á föstudagskvöldið?

Ekkert smá spennt fyrir helginni, hlakka til að hitta ykkur Helgu, hressasssssstar.

kv. DMS. 

Life will never be the same...!!, 17.4.2008 kl. 10:33

4 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Júbbs, í svaka stuði að sjálfsögðu :)

Solveig Friðriksdóttir, 17.4.2008 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband