Hvítur mánudagur...
Mánudagur, 14. apríl 2008
...og mjög fallegur. Fimmtán sm jafnfallinn snjór, stillt og fallegt veður. Mmmmmm mér leið ljómandi vel á leið minni í skólann. Þar er ég yfirleitt ekki á mánudögum heldur heima að vinna önnur verkefni en ætlaði að sækja fartölvuna mína fyrir verkefni sem ég ætla að vinna fyrir hádegi. Ég var ekki með lyklana mína og beið með krökkunum eftir að einhver lyklapétur mætti. Sumir krakkarnir komu bölsótandi yfir snjónum, ég bauð brosandi góðan dag og dásamaði veðrið. Á sum andlitin færðist bros en ekki önnur og ég minnti suma á sem hæst höfðu að hafa þetta fyrir sig. Nú ekki var fullorðna fólkið glaðbeittara og það er stunið og óað og æjað yfir vetrinum okkar. Hafði ekki vitundar ögn áhrif á góða skapið mitt og ég er þess jafn fullviss og þegar ég vaknaði í morgun að þetta verði góður dagur.
Vissulega er ég líka farin að þrá vor í loft og sjá allt ruslið sem kemur undan snjónum en ég hef valið mér það hlutskipti að pirra mig ekki yfir því sem ég ræð ekki sjálf. Það hentar mér vel að hafa auðar götur þegar ég keyri í jógakennsluna 4x í viku en ég gef mér meiri tíma ef ég veit að færið er ekki gott.
Ég held að ef við látum veðrið stjórna skapinu okkar sé einhver önnur ástæða að baki, einhver óánægja eða ósætti með hlutskipti sitt eða bara gamall vani. Nota bene þetta er mín skoðun og hana miða ég út frá sjálfri mér því ég bölsótaðist gjarnan yfir veðrinu og ýmsu því sem ég hafði enga stjórn á en þegar ég fór að tína kuskið úr naflanum sá ég tilgangsleysi þess að fárast yfir ýmsum hlutum. Viti menn, mér líður miklu betur með það og mér þykir betra að líða vel heldur en illa svo ég er mjög svo sátt við þessa ákvörðun.
Þið sem lesið í dag og hafið áhuga á að styrkja sálartetrið, gefið ykkur rúmar fjórar mínútur og kíkið á þetta textamyndband. Ég hlusta reglulega á það og eftir á rétti ég betur úr mér, ákveð að þessi dagur verði góður (ákveð það reyndar þegar ég opna augun á morgnana) og færi mér margt gott og brosi framan í snjóinn
Njótið vel..... Hafið það síðan eins og þið viljið í allan dag
Athugasemdir
Hæ hæ
Þú ert alveg frábær fyrirmynd Solla mín, takk fyrir gullmolana.
Bestu kveðjur, Inga Rós
Inga Rós (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 14:55
Þú ert svo mikið æði...
Og snilldar rúmar 4 mín hjá þér..
Sjáumst í joga á morgun...
Kv, Túttan
Dreifbýlistúttan (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 22:45
Þið eruð nú alveg ágætar sjálfar líka hehe
Solveig Friðriksdóttir, 15.4.2008 kl. 15:47
Solla mín, þú ert sko að gera góða hluti.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 15.4.2008 kl. 17:32
Vona að fannirnar bráðni næstu vikurnar svo við "systurnar" þurfum ekki að streða yfir harðfennta skafla á leið okkar um fjöllin blá hehe! Hlakka ógó mikið til og mun setjast niður í kvöld og hamra saman stranga æfingaáætlun....! Bestustu kveðjur!
Hallan (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:04
Já Hallhildur mín. Það er nokkuð ljóst að við þurfum að láta hendur standa fram úr öllum ermum fyrir vorgöngur "Hvalnessystra", líka þurfum við að styrkja magavöðvana fyrir allar hláturrokurnar sem verða teknar. Ætli restin af stofuloftinu í Heiðmörk 3 hrynji ekki endanlega þegar mestu rokurnar dynja yfir. Mín er komin með glænýja gönguskó með fjórhjóladrifi svo það fær mig ekkert stöðvað í átt að Einbúa og Steinboganum, Steðjatjarnir verða létt rölt eftir fyrri daginn.
Solveig Friðriksdóttir, 16.4.2008 kl. 13:29
Bros til þín Fjóla
Solveig Friðriksdóttir, 16.4.2008 kl. 13:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.