"Og þá var kalt í höllinni......"
Fimmtudagur, 10. apríl 2008
Ég var búin að lofa myndum af fótboltakappanum frækna sem keppti á Fjarðarálsmótinu um helgina í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði. Ég vissi að það væri kalt þar, var þó eins og jólasveinn að spá í að skilja úlpuna eftir og vera í flíspeysunni og vindjakkanum (eins og ég byrjaði) en hefði séð hressilega eftir því.
Lið Friðriks keppti fjóra leiki og úrslitin voru ekki alveg hagstæð, einn sigur og þrír tapleikir. Þeir voru samt kampakátir í lokin eins og sjá má á þessari mynd. Friðrik er fyrir miðju í aftari röðinni.
Þreyttir voru kapparnir í lokin og vegna kuldans var minn maður með svakalegar harðsperrur morguninn eftir, hefði ekki veitt af að komast í heitan pott eftir daginn en það var ekki hugað að því. Það var því tár á hvarmi þegar menn skakklöppuðust á leið í skólann með töskuna í hendinni því menn megnuðu ekki að skella henni á bakið. Þær voru þó fljótar að rúka úr skrokknum sem er á sífelldri hreyfingu og eftir styrktaræfingar af ýmsu tagi í íþróttatímanum í skólanum var minn maður fær í flestan sjó.
Kolbrún og Dýrunn skelltu sér með bræðrum sínum og við vorum hálf hrædd um að við yrðum að nudda í þær hita en það var algjörlega ástæðulaus ótti. Þær skottuðust um, vöfðu um sig flísteppum og nutu sín í botn. Ekki leiðinlegt því milli leikja var farið fram í hitann og við fengum okkur smá skammt úr kakóbrúsanum.
Hér sjást þær kampakátar með rauða nebba.....
Ekki brunuðum við heim á leið eftir síðasta leik heldur á Eskifjörð þar sem okkar beið hlý stofa við arineld og dásamleg fiskisúpa og fiskur ásamt meðlæti hjá Díönu góðvinkonu okkar og fjölskyldu. Menn tóku vel til matar síns enda búið að brenna þokkalega þann daginn.
Krökkunum þótti við fara fullsnemma heim á leið en það var komið kvöld og skóladagur daginn eftir.
Við eigum eftir að hittast heilmikið á næstunni við æfingar fyrir 5K hlaupið sem Friðrik og Jökull eru farnir að æfa fyrir og verður í Barcelona í sumar, veitir ekki af að hafa hvatningu fyrir mömmurnar líka til að koma sér í skokkformið. Ég veit að Jósef ætlar að vera í klappliðinu hehe og spurning um Dýrunni, hún er ekki mikill hlaupagarpur.
Strax er farið að spá í hvenær næsta fótboltamót verður eða hvenær þeir komist að hitta félagana úr boltanum. Hér eru æfingar dottnar niður svo það er beðið eftir vorinu og sumaræfingum hjá Leikni og að blessaður snjórinn bráðni af sparkvellinum.
Móðirin spáir helst í hvar hún á að kaupa góða skó á kappann fyrir sumarið.....og hvernig henni gangi að koma sér í skokkformið
Athugasemdir
Hæ hæ og takk fyrir síðast!
Hér er allt á fullu við að undirbúa Barcelona og Tossa, börnin afar spennt að vera með Friðriki og Dýrunni á ströndinni. Þetta verður BARA GAMAN!
Sjáumst sem fyrst á hlaupaæfingu
kv. Díana Mjöll.
Life will never be the same...!!, 11.4.2008 kl. 09:09
Já og Evrurnar rjúka út. Hér vinna menn verkin sín samviskusamlega og keppst um að finna aukaverk á morgnana, ég hef ekkert þurft að búa um rúmið mitt í þessari viku. Mér leist ekki á ákafann þegar þau ætluðu að fara eins og stormsveipir um húsið til að vinna aukaverk að það var sett limit, eitt aukaverk í boði á dag. Mjög þæglegt að fara ryksugurúntinn núna því aldrei þessu vant er ekkert rusl á gólfinu. BARCELONA PROJECT heitir það hjá okkur og þetta verður..... YNDISLEGT
Solveig Friðriksdóttir, 11.4.2008 kl. 09:57
Hann er íþróttamaður eins og frændinn
Sigurjón. (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 13:07
Hehe, hvaða frændi ?
Solveig Friðriksdóttir, 12.4.2008 kl. 20:51
Góðan dag Solla mín.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 13.4.2008 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.