Annasöm vika liðin....

Það má með sanni segja að margt hafi verið að gerast í síðustu viku.

Keppnisdagar voru í skólanum þrið. til fim. og tókust rosalega vel. Fyrirmyndina sóttum við til Djúpavogs en þar hafa keppnisdagar verið haldnir í nokkur ár. Snilldar hugmynd til að brjóta upp hefðbundið skólastarf.

Við brutum allt skólastarfið upp, nemendum var skipt í lið, kennarar undirbjuggu keppnisgreinar og svo kepptu þau í hinum ýmsu greinum. Ég sá um heimilisfræði og þar bökuðu eldri nemendur pönnukökur, straujuðu og leystu bókleg verkefni. Yngri hópurinn bakaði bollur, straujaði viskustykki og leystu bókleg verkefni. Síðasta daginn var hæfileikakeppni þar sem hver hópur flutti atriði 3-5 mín.  að lengd. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og þar var rosalega erfitt að dæma og mjög mjótt á munum. Hæfileikakeppnin var skemmtileg en þau höfðu alveg frjálsar hendur með verkefnaval þar, það komu ýmsar útgáfur og miklir hæfileikar.

Þetta var heilmikið puð en rosalega skemmtilegt. Það var annasamt á öðrum vígstöðvum, tvö tvöföld Baujunámskeið kenndi ég líka á Fásk.  og byrjaði með tvö jóganámskeið.  Annað jóganámskeiðið er á Breiðdalsvík og hitt á Reyðarfirði. Hér á Stödda voru kerlurnar út og suður og náðist hreinlega ekki í hóp. Tvær kerlur koma með mér yfir á Breiðdalsvík og það er fínt að hafa félagsskap á leiðnni.  Flottir hópar á báðum stöðum og harðsperrur vinstri hægri eftir fyrstu tímana.  Rosalega gott að kenna í salnum á Reyðarfirði sem er passlega stór og rosalega góður hljómur í honum. Skrýtið samt að vera í speglasal en hópurinn snýr að sjálfsögðu baki í hann þar sem þeir myndu trufla einbeitinguna, hentar í öðru sporti.  

Þegar ég kom úr jóganu á fimmtudagskvöld var svokallaður Kikk off fundur hjá mér með dreifingaraðilum sem ég er að vinna með á Austurlandi.  Það var góð hleðsla.  

Þar sem álagsþröskuldur minn er ekki rosalega hár var þetta alveg nóg og vel það og á föstudag var ég í allsherjar afslappelsi, tók heimilisverkunum með stóískri ró og leyfði mér að slaka á. 

Í gærkvöld hittust nokkrir kennarar hér hjá okkur Jósef og við vorum í notalegu spjalli vel fram yfir miðnætti. Ætlunin var að halda Sing Star partý og kannski var það ástæðan fyrir fámenni hehe en við sungum bara í huganum og spjölluðum yfir kertaljósum og notalegheitum enda allir þreyttir eftir annasama viku.

Dagurinn í dag fer líka í rólegheit og afslappelsi, notalegt jóga og Totalpakkagerð, það eru prufupakkarnir sem ég gef áhugasömu fólki um vörur og viðskiptatækifæri Herbalife.

Friðrik keppir á fótboltamóti á morgun á Reyðarfirði og við erum ekki búin að ákveða hvort við förum bæði með eða annað hvort en það er nokkuð ljóst að vetrarflíkurnar verða uppi við þar sem vetur konungur blæs enn köldu hér fyrir austan.

 Læt fylgja fréttir af kappanum og væntanlega myndir næst þegar ég verð í stuði við tölvuna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Vá það hefur verið nóg að gera hjá þér Sollan mín.  Það vantar ekki kraftinn í kennarana á Stöddanum, frábært fólk sem sinnir sínu ætíð vel.  Hafðu það gott !

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 5.4.2008 kl. 11:58

2 identicon

Já.. Aldeilis nóg að gera hjá minni.. svei mér þá.. :)

Jóga námskeiðið er bara snilld.. og ég bíð spennt eftir næsta tíma..

Hafðið það gott um helgina 

Kveðja úr Álversbæ

Jóhanna Dreifbýlistútta (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 14:24

3 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Takk Fjóla, þetta var rosalega skemmtilegt og alveg kærkomið að brjóta upp hefðbundna kennslu

Já Jóhanna, það varð vart við harðsperrur hjá dömunum eftir fyrsta tíma en það er bara gott mál. Mér líst rosalega vel á hópinn, jákvæðar og hressar kerlur. Svolítið tómlegt þegar túttan sjálf er ekki á svæðinu hehe. Sjáumst á vellinum, áfram Súlan

Solveig Friðriksdóttir, 6.4.2008 kl. 09:28

4 identicon

Nóg að gera hjá þér í vikunni, já og líka nauðsynlegt að slappa af og hlaða batteríin. Hlóð mín vel í gær þannig að ég ætla að reyna að vera pínu dugleg í dag.

Áslaug (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 13:50

5 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 10.4.2008 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband