Framlenging á páskafríi !

Ekki kærkomin ónei en það var eins og við manninn mælt þegar skólinn átti að byrja í gær þá lagðist Dýrunn í veikindi. Greyið skinnið höfuðverkur,magaverkur, hiti og beinverkir. Friðrik tók svo beinverkina í morgun og gengur um eins og gamall bóndi úr afdölum.  Ég vona svo heitt og innilega að þau nái að hrista þetta af sér og geti tekið þátt í keppnisdögunum sem fara fram í skólanum í næstu viku, spennandi verkefni það.

Nú er að mjatlast inn skráning á jóganámskeiðið á Reyðarfirði og þær sem eru komnar á blað eru mjög áhugasamar og ég trúi því og treysti að ég nái tilskyldum fjölda Grin.  Þegar ég er að kenna jóga er ég duglegust að iðka heima og gera æfingar. Ég tók einn góðan tíma í gær með Yogi Hari sem ég á á DVD disk og nokkuð ljóst að hann fer aftur í tækið í dag og á morgun og hinn og hinn og hinn.  Gigtin mín er svo skemmtileg eða þannig að ég þarf að gera töluvert á hverjum degi til að halda dampi og stundum koma tímabil sem ég slaka á. Það er ekkert annað en að halda áfram þó það sé eins og verið sé að byrja á byrjunarreit. Ekki ætla ég að leggjast í kör með þetta dót heldur ná því úr skrokknum. 

 Gefið ykkur 10 mínútur og kíkið á þetta myndband. Ótrúlegur styrkur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við í Rimanum erum búin að fá ótrúlegustu sortir af pestum undanfarið og kippum okkur ekki lengur upp við óvæntar uppákomur.  Sú fimmta stakk sér niður um daginn hjá frökeninni og nú er guttinn orðinn einkennilega rjóður í kinnum. Þetta er frekar einkennileg veiki, svo ekki sé meira sagt.  Nú er hinsvegar farið að birta svo mikið og lengi að maður er kominn með vor í hjarta og nennir ekki að velta sér upp úr pestastandi nema rétt á meðan það gengur yfir.

Knús á fjörðinn!

Hallan (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 09:32

2 identicon

"Hver er sinnar heilsu smiður!" (eða hvað?)

Sólrún (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 09:32

3 identicon

Að sjálfsögðu áttu að fylgja hér með góðar bataóskir til heimilismeðlima !!

Hallan (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 09:33

4 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Þetta er allt höndlað með æðruleysinu    ásamt fjallagrösum, vítamínum og hollum mat.

Solveig Friðriksdóttir, 28.3.2008 kl. 10:07

5 identicon

Góðann bata fjölskylda.  Ég ætti kannski að flytja heim og koma í jóga hjá þér

Helga Antons (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 15:12

6 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Ekki málið Helga, þú yrðir hjartanlega velkomin í hópinn með eðalkerlunum mínum og Sjonna bróður.

Solveig Friðriksdóttir, 28.3.2008 kl. 15:43

7 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Góða heilsu á þig og þína.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 28.3.2008 kl. 17:55

8 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Jóga er æðislegt en pestin er hræðileg eða pestirnar sem eru í gangi, heil vika í bælinu ekkert minna úff. kveðja frá Ísafirði

Sigrún Sigurðardóttir, 28.3.2008 kl. 22:21

9 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Friðrik hristi þetta af sér á einum degi og Dýrunn er orðin spræk og búin að fá sér ferskt loft í vetrarríkinu. Sem betur fer varð þetta bara smá skot.  Þau eru þvílíkt tilbúin í keppnisdagana í næstu viku og mikill spenningur.

Solveig Friðriksdóttir, 29.3.2008 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband