Ákvarðanir !

Það er ýmislegt sem hefur áhrif á hvaða ákvarðanir maður tekur í lífinu. Við höfum mikið pælt í því á hvaða hlið hússins við byrjum þegar við ráðumst í það stórvirki að skipta um glugga. Í dag tók ég þá ákvörðun að það yrði ytri hlið hússins sem fyrst fengi þessa andlitslyftingu. Að baki þessari ákvörðun er heilmikil ástæða, vetur konungur blæs of hressilega inn um gluggana akkúrat í dag og eiginlega meira við hæfi yfirleitt að moka snjó úti en ekki inni. Ég er nú aðeins að ýkja en það er bara nett föl í vinnuherbergisglugganum mínum. Ég á svo reiðinar býsn af handklæðum sem ég þétta gluggann með og hlakka til í huganum þegar ég fæ ekki hressilega kælingu við störf mín við tölvuna. Reyndar eru gluggar ekki á dagskrá á þessu fjárhagsári en aldrei að segja aldrei því hlutirnir geta breyst. 

En varðandi aðrar ákvarðanir í lífinu þá er skemmtilegt að sjá hvað margar nýjar dyr opnast ef maður þorir að fara út fyrir þægindahringinn og feta nýja slóð. Dyr sem maður hefði ekki vitað um ef maður hefði haldið sig á sama bletti og vanalega.  Ég hef fetað út fyrir hann hægt og sígandi, er nú ekki svo huguð að taka stór stökk en þau smáu skref sem ég feta út fyrir þennan þægilega hring opna alltaf nýjar dyr, ný tækifæri og nýja möguleika.  Skemmtilegt og spennandi.

Ég er að takast á við skemmtilegt verkefni þessa dagana, að kenna unglingum námsefnið Baujuna sem er tilfinninganámskeið. Frábær reynsla og svakalega gefandi. Ég læri svo ótrúlega mikið um sjálfa mig í hvert skipti sem ég fer í gegnum þetta efni og það er frábært.

 Búin að bóka annað spennandi verkefni og er með hugann í bleyti hvernig ég leysi það.

Farin að hlakka mikið til að fara á námskeið í lok mars sem heitir "Þú getur staðið upp og talað". Það verður á Reyðarfirði og sá sem fræðir okkur er enginn annar en Guðjón Bergmann jógakennarinn minn. Ég veit að það verður mjög nytsamlegt.  

Nú svo er Herbal lífið alltaf svo svakalega spennandi og ótrúlegur vöxtur mánuð eftir mánuð. Ef þið eruð að spá í að kaupa hlutabréf sem ekki falla í verði er vel við hæfi að fjárfesta í Herbalife, þar eru bréfin bara á uppleið... 

Lífið gengur að öðru leyti sinn vanagang og nú eru það pælingar um páskana sem ráða hæst hjá ungviðinu, reyndar er Goðamótið aðeins ofar hjá Friðriki og mikill spenningur í gangi.  Fullorðna fólkið tekur þessu öllu með stóískri ró, mokar tröppurnar, gangstíginn og bílastæðið enn og aftur og hugsar um sumarfríið sem er búið að bóka til Barcelona í júní Grin

Hafið það gott áfram í vetrartíðinni og farið varlega ! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rosa notalegt í þægindahringnum sko  en það er ekki fyrr en maður brýst út úr honum, þó ekki sé nema stund og stund, sem maður nær framförum. Ég er ekki mikið fyrir að stíga út fyrir hann en gerði það þó með látum þegar ég dembdi mér í háskólanám með vinnu, heimili og litlum börnum. Erfitt en algjörlega frábært. Voða fegin þó að það er yfirstaðið og ég er aftur komin í þægindahringinn...!

Kærlig hilsen!

Hallan (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:59

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Einmitt, ég dáist einmitt að þeim sem drífa sig í eitthvað svona með fullu starfi og heimilishaldi sem er jú oft á tíðum rúmlega fullt starf.  Mér þykir voða þægilegt þar en ég er líka svo stútfull af stolti þegar ég stíg útfyrir og ögra sjálfri mér.  Planið að gera meira af því í fremtiden.

Solveig Friðriksdóttir, 7.3.2008 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband