Afmælisstelpa

Í gær var aldeilis fjör og spenningur. Sjö ára afmælisdagur Dýrunnar rann upp mjög snemma. Klukkan var rúmlega hálf sex þegar sú stutta skreið uppí og knúsaði mig fyrir gjöfina.  Síðustu dagar hafa að sjálfsögðu snúist um þennan merka dag, boðskortin hönnuð og skrifuð með góðum fyrirvara og pælingar varðandi skipulag á hlutunum. Veisluna höfðum við seinnipartinn í gær og þá mættu nánustu vinirnir.  Þetta er alltaf heilmikið fjör, ég yfirgaf veisluna um miðbikið og Jósef tók við, ég kenndi jógatímann minn í íþróttahúsinu og kom svo heim í rest. Afmælið lengdist aðeins í annan endann og þegar ég kom voru gestirnir sem eftir voru með dúndrandi diskó niðri í leikherberginu ekkert smá stuð.  Þegar ein skottan var að fara með mömmu sinni sagði hún "Þetta var sko alvöru partý".   Þarna sjáið þið afmælisdömuna  brosandi út að eyrum með fína skarðið sitt.

7 ára afmæli Dýrunnar 002Hún var heilmikið rík eftir daginn og eins og dömum sæmir fékk hún ýmislegt skart, eyrnalokka og armband, hárskraut og margt margt fleira. Kolbrún fékk að gista hjá Dýrunni því það er tveggja daga vetrarfrí og þær sváfu út alveg til sjö í morgun Grin Nú á að prufukeyra nýja hjólið sem daman fékk frá foreldrum sínum. 

Ég er svona að spá hvar ég á að byrja í dag, sólin segir mér að ég eigi að þrífa rúðurnar mínar en ég læt hana nú ekki skipa mér fyrir verkum, dreg bara fyrir svo ég sjái ekki ósómann. Eitt er víst að nóg er af verkunum sem bíða.

Njótið dagsins og eitt gott í lokin:   FRELSIÐ felst í hugarfarinu. G.B.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það hefur verið stuð í Hólalandinu í gær og til hamingju með dömuna.

Áslaug (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 17:46

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Til hamingju með stelpuna þína Solla mín.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 21.2.2008 kl. 20:08

3 identicon

Til hamingju með prinsessuna. Hún er sæt með skarðið :-)

Hallan (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 22:28

4 identicon

vá hvað hún er mikið krútt þessi elska :) bið rosalega vel að heilsa og endilega knúsaðu hana eitt afmælisknús frá mexico! :)

halla björk (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 05:25

5 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

TAkk takk fyrir góðar kveðjur

Solveig Friðriksdóttir, 22.2.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband