Spakmæli
Laugardagur, 16. febrúar 2008
Ég hef lítið verið að opinbera spakmælin sem ég er að lesa þessa dagana og þá vel við hæfi að skella tveimur inn til umhugsunar.
"Líf þitt er ekki annað en endurspeglun af hugsunum þínum" Wayne Dyer, inngangsorð 1. kafla í bókinni Þú ert það sem þú hugsar eftir Guðjón Bergmann.
Annað á þessum nótum:
"Caracter is built by how you respond to what happens in your life !" Jim Rohn
Góða helgi
Athugasemdir
Sæl kæra vinkona,
mig langar að skella inn smá frasa að auki við þessa tvo sem þú settir inn, en við fengum hann í hendur á Herbalife skólanum um helgina.
"Sjálfstraust felst í því að vera BESTA útgáfan af sjálfum sér".
Sjáumst fljótlega, Díana Mjöll
Life will never be the same...!!, 17.2.2008 kl. 23:37
Einmitt, takk takk. Á tölvunni minni í dag eru tvö spjöld: "Jákvætt viðhorf gerir daginn betri" og "Ég er frábær". Búin að hlaða mig upp af jákvæðri orku fyrir daginn og vinn í því áfram að verða besta útgáfan af sjálfri mér.
kveðja og takk aftur fyrir sendinguna góðu.
Solveig Friðriksdóttir, 18.2.2008 kl. 09:43
Til hamingju með snótina !!!!!!!!!!!!
Þóra Björk (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 13:09
Til hamingju með dömuna þína
Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 14:51
Takk fyrir kveðjurnar og til hamingju með ömmustelpuna þína Jóhanna.
Solveig Friðriksdóttir, 21.2.2008 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.