Dagurinn minn er í dag...
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
.. og líka dagurinn hans pabba. Hann hefði orðið 78 ára gamall karlinn ef hann hefði fengið að vera lengur með okkur. Hann fékk mig í afmælisgjöf á 40 ára afmælisdaginn. Glöggir menn og glöggar konur sjá þar með að ég er orðin 38 ára gömul. Greinilegt að einhverju þarf að breyta á grunnupplýsingunum hér til vinstri.
Ég fæddist í hjónarúmi pabba og mömmu í Sunnuhvoli einhvern tíman að næturlagi. Þórey í Kirkjuhvoli tók á móti mér en þurfti að rjúka fljótt í burtu því þá var Hafey að fæðast líka. Ég náði að vera deginum eldri og var alltaf stolt af því að vera elst í bekknum mínum hér á Stöðvarfirði.
Pabbi og Þóra í Vinaminni pössuðu mig eftir að Þórey fór og m.a. fékk Þóra vægt sjokk þegar hún var eitthvað að athuga með mig og ég var öll alblóðug, þá hafði blætt frá naflastrengnum. Varð ekki meint af því.
Ég var alltaf voða móðguð við pabba þegar ég var enn stutt í annan endann þegar hann rifjaði þessa nótt upp og sagði að ég hefði kúkað grænum kúk. Mér fannst það hin mesta móðgun og pabbi gerði í því að ýfa upp þessi "sárindi".
Reyndar var Þórey ljósmóðir mín miður sín þegar ég var komin í heiminn því í ljós kom að annar fóturinn á mér var snúinn, ristin lá alveg upp við legginn og leit ekkert vel út. Ég lagði því í ferðalag með mömmu til Reykjavíkur þegar ég var 3ja vikna gömul í aðgerð þar sem fóturinn var lagaður. Gifsið er enn til, ósköp smátt og sem betur fer eina gifsið sem ég hef farið í um ævina.
Sólmundur sem hafði verið prinsinn af Sunnuhvoli áður en ég fæddist var ekki alveg sáttur við þetta umstang. Þóra heitin var oft búin að rifja það upp hlæjandi þegar hann ruggaði sér fram og til baka á vörubílnum sínum og söng "Gamla Nóa" grátandi daginn eftir þegar mamman var að sinna litlu dömunni og hvíla sig. Þetta var sennilega fyrsta stóra áfallið í lífi hans, komin samkeppni frá lítilli písl sem breyttist fljótt í þokkalegan hnullung og ógnaði hans tilveru.
Ég hef alltaf gaman af því að eiga afmæli þó ég geri misjafnlega mikið úr því. Ég hef ekki kaffi í kvöld því það er vinnukvöld hjá mér og við Dýrunn sláum saman í veislu fljótlega eftir hennar afmæli í næstu viku, það eru bara átta dagar á milli afmælanna okkar.
Í morgun þegar Dýrunn var búin að koma sér fyrir við eldhúsborðið eftir að hafa komið skríðandi fram svo þreytt var hún spratt inn í herbergi þegar hún uppgötvaði hvaða dagur var. Hún kom fram með fjórar gjafir, allt sem hún hafði útbúið sjálf. Fyrst opnaði ég bréf sem í stóð: Mamma þú ert besta mamma í heiminum og öllum geiminum. Ekki slæm ummæli. Svo kom falleg mynd af mér og henni. Næst var mynd af mér og pabba "þegar pabbi er orðinn mjór" bætti hún við eða þegar hann var einu sinni mjór
. Að lokum fékk ég fallegt borðskraut. Þetta dugir mér í dag þó ég búist nú við að eitthvað bætist við þegar bóndinn kemur heim.
Í svona litlu samfélagi muna sumir alltaf hvenær sumir eiga afmæli. Ég hef því fengið kveðjur vinstri hægri, galandi úr bílglugga á ferð og knús frá nemendum í skólanum, sms og símtöl. Gaman að því.
Ég ætla að vinna í því að eiga sem notalegastan dag og gera bara það sem mér þykir skemmtilegt....
kveðjur til ykkar þarna úti og það er í góðu lagi að skilja eftir sig kvitt af og til, gaman að vita hverjir eru að detta inn.
Þessi mynd af mömmu og pabba var tekin í afmæli hjá Gutta í Löndum þegar ég var fimm eða sex ára held ég.
Athugasemdir
Hæ og til hamingju Solla mín með daginn. Blessuð sé minningin um pabba þinn, maður brosir er maður hugsar til hans.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 12.2.2008 kl. 16:36
Takk fyrir. Já það eru margar góðar minningar að ylja sér við þegar hugsað er til hans.
Solveig Friðriksdóttir, 12.2.2008 kl. 16:43
Kæra vinkona,
ég óska þér innilega til hamingju með daginn!
Gott að minnast hans með Jim Rohn frasa, sérstaklega þar sem pabbi þinn átti líka afmæli þennan dag:
"My father taught me always to do more than you get paid for as an investment in your future".
Knús í krús,
Díana Mjöll.
Life will never be the same...!!, 12.2.2008 kl. 18:33
Blessurð Solla "litla". Enn og aftur til hamingju með daginn í dag.
Já ég brosi þegar ég hugsa til hans, og á erfitt að trúa því að hann hefði orðið 78 ára. Hann var alltaf soddan unglingur, bæði í útliti og lund.
Blessuð sé minning hans.
Vertu dugleg að láta heimilisfólkið stjana við þig.
Þóra Björk (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 19:13
Kæra frænka .Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins
Ég er nokkuð viss um að pabbi þinn er með þér í dag eins og alla aðra daga Solla mín . kv Herborg.
Herborg (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 19:29
Kærar þakkir fyrir falleg orð vinkonur og frænka
Solveig Friðriksdóttir, 12.2.2008 kl. 21:21
Til hamingju með afmælið frænka og sorry að ég skildi nú ekki smella á þig kossi þegar þú komst aðeins í dag.
Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 22:19
Elsku Sollan mín - til hamingju með afmælið!!!! Döööö - hún Solla litla í Sunnuhvoli getur nú varla verið orðin 38 ára gömul - það er beinlínis fráleitt. Einhver reikningsskekkja þar á ferðinni...
Þú setur nú væntanlega í eina sláturköku í tilefni dagsins. Það var alltaf geðveik tilhlökkun í gangi þegar afmælin í Sunnuhvoli voru framundan og von til þess að sláturkakan víðfræga væri á boðstólum. Jömmí! Reyndar voru allar heimsóknir í Sunnuhvol skemmtilegar, ekki síst kvöldheimsóknirnar með mömmu og pabba "back in the old days". Jii hvað við gátum skemmt okkur uppi á lofti með Halla og Ladda plöturnar dúndrandi (eða voru það kassettur?) Finnst í minningunni að pabbi þinn hafi setið í hægindastól þar með okkur og flissað heil ósköp af tilburðunum. Mér fannst skeggið á honum alltaf svo fallegt þegar ég var lítil. Eitthvað svo góðlegt og jólasveinalegt við það
Sendi hinn helminginn af afmæliskveðjunni út í andrúmsloftið, samferða góðum minningum!
Hallan (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 22:30
Takk takk aftur allar saman. Já Halla það var ekkert smá spennandi að fara í kvöldheimsóknirnar í Heiðmörk 1. En manstu eftir ferðinni í Bronconum upp í Hérað þegar ég, þú og Sóli vorum að sverma eftir brúnum brjóstsykri ?? Þegar okkur þótti of langt um liðið frá síðasta skammti fór leikurinn í aftursætinu að snúast ískyggilega um þann brúna, bílarnir voru brjóstsykursmolar sem keyrðu mjög hátt þar til einhver áttaði sig og bauð upp á meiri brjóstsykur. Fyndið því þetta er það eina sem ég man úr þeirri ferð.
En sláturkakan góða er geymd í minningunni og tilhugsunin um plöntufeitina sem fór í hana til að láta hana stífna læt ég duga.
Sleifaleikurinn í Heiðmörkinni slær heldur engu við hehe.
Njótið dagsins.
Solveig Friðriksdóttir, 13.2.2008 kl. 09:30
Já, hugurinn reikaði víða í gær á "deginum ykkar". 12. feb. 1970 var ég gelgja á Eiðum og labbaði upp á pósthús til Stefaníu til að hringja í pabba í tilefni dagsins. Ég óskaði honum til hamingju með daginn og svo sagði hann:" Jæja, það er komin stelpa". Ég hváði: "Ha, hvaða stelpa?" Fattaði ekki neitt. Hélt að einhver stelpa væri í heimsókn. Tók dálítinn tíma að tengja. Enn og aftur, til lukku með áfangann!
Sólrún (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 10:00
til hamingju með gærdaginn bekkjasystir góð hafðu það gott kv Hafey
Hafey (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 15:09
Já Sólrún og þó það séu 15 ár sem skilja á milli er eins og það sé ekki neinn aldursmunur á köflum
Það er gott.
Blessuð Hafey og til hamingju með daginn í dag
gaman að sjá þig hér.
Solveig Friðriksdóttir, 13.2.2008 kl. 15:27
Já,það er gaman að lesa þetta og hugurinn spólar til baka og stoppar við það. þegar ég kom skríðandi og nývaknaður fram í eldhús til að fá mér kaffi áður en ég færi í vinnuna og fékk þessar fréttir hjá pabba.En enn og aftur til hamingju með daginn og ég veit allavega um einn kemur í kaffið til ykkar Dýrunnar.
Sigurjón. (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 14:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.