"Sóla unplugged"
Þriðjudagur, 29. janúar 2008
Hún kisa mín heldur ekki tónleika í dag, vafrar um með svefnlyfið enn í æðum eftir ófrjósemisaðgerð sem hún fór í seinnipartinn. Sólrún var minn sérlegi aðstoðarmaður þar sem ég var ekki með búr og hún sat með hana skíthrædda í fanginu á leiðinni til Breiðdalsvíkur. Rósa útskýrði svo skemmtilega fyrir Zdenek að við værum að fara með kisu til að láta unplugga hana. Hann skildi það.
Greyið skinnið það er skelfilegt að horfa upp á hana svona sljóa og geta ekki staðið á fótunum. Ég þori ekki annað en hafa hana lokaða inni í eldhúsi svo hún vafri ekki að stiganum og detti niður.
Það er ýmislegt á döfinni og líklega lítið um færslur á þessu sviði fyrr en eftir helgina.
Á fimmtudag verðum við Díana Mjöll með HOM (Herbalife opportunity meeting) kynningu og fræðslu fyrir nýja og eldri dreifingaraðila Herbalife. Við verðum í grunnskólanum á Reyðarfirði klukkan 20:00 og allir eru velkomnir. Frítt fyrir gesti, dreifingaraðilar greiða 1000.- Hlakka til að sjá ykkur
Snemma á föstudag förum við til Rvk. Bara við tvö, vúvúvú. Aðal ástæðan er árshátíð Eimskips sem verður ekki af verri endanum. Ég nýti tímann yfirleitt vel og á föstudagskvöld verður Satsang með öllum jógakennurunum sem voru með mér í jógakennaranáminu. Eitthvað þarf að snattast í bænum en samt í rólegheitum.
Laugardagurinn verður Kikk off dagur í HM hópnum, minn nánasti samstarfshópur í Rvk. í Herbalife. Ég byrja snemma ásamt fleirum og fæ eðal þjálfun frá frábærri stelpu. Svo bætast fleiri í hópinn og við höfum það skemmtilegt, fræðumst, hlæjum og í lokin tek ég hópinn í jóga, hvað annað. Ég er að undirbúa fyrirlestur og glærusýningar um markmiðasetningu en það féll í minn hlut, bara spennandi.
Svo er það árshátíðin um kvöldið og flug heim snemma um morguninn, sofum ekki einu sinni út eftir skrallið, mar er svo stabíll enda gott að nýta tímann í annað en slappleika. Ég held ég verði svaka hress eftir á og tek væntanlega út hreyfistig vikunnar hehe því það verður þrusuband, sennilega hás og fín líka eftir allan sönginn. Passa mig á rauðvíninu og að fara ekki í hættulega sveiflu með Palla Björns.
Hlakka mikið til.................... bið að heilsa ykkur í bili og við skjáumst ....
P.S. Halla ekki hella upp á núna, nema ég kíki í vinnuna, renni örugglega eitthvað fram hjá Laugardalnum, samt voða feimin að trufla fólk í vinnunni
Athugasemdir
bara einu sinni enn...velkomin Sollan mín í Mecca.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 30.1.2008 kl. 04:04
Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 10:21
Takk Fjóla mín, eru opnir jógatímar á föstudögum? Á ekki von á að ég skelli mér í þetta skiptið en koma tímar og koma ráð
.
Jóhanna, ég skellti skuldinni að sjálfsögðu á Palla greyið en það var víst margt sem spilaði inn í. Síðan þá hef ég verið einstaklega dönnuð og forfrömuð á þessu sviði.
Solveig Friðriksdóttir, 30.1.2008 kl. 16:09
Ókei - ég skal sleppa uppáhellingunni í þetta sinn enda sýnist mér prógrammið vera nokkuð þétt, miðað við lýsingarnar hér að ofan. Enda held ég að eplakakan sem ég var að taka rjúkandi úr ofninum rétt í þessu verði uppétin þegar þar að kemur. Bakkelsið staldrar ekki lengi við á þessum bæ enda sverja ungarnir sig í móðurætt
Góða skemmtun og ferð!
Hallan (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 18:03
Góða ferð og njóttu ferðarinnar.
Kannski verður þú bara veðurteft 
jæja þá læt ég þessa kalla duga í bili.
þóra Björk (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.