Eitt epli á dag....

My mother used to say...An apple a day, keeps the doctor away... segir Jim Rohn heimsþekktur personal development þjálfari og góðvinur Herbalife. Svo bætir hann við What if that was true

Þetta kemur oft í huga minn á morgnana þegar ég næ mér í epli í ávaxtakörfuna og fæ mér með sjeiknum mínum. Dagurinn í dag var engin undantekning .... en sem betur fer sker ég eplin í sundur áður en ég borða þau og viti menn, bæði eplin í körfunni voru brún og ónýt, litu svo vel út að utan. Reyndar ekki það fyrsta sem ég fæ með fegurð að utan en ónýtt að innan.  Ég varð þá að bíta í það súra epli að fá ekki eplið mitt og bíð bara eftir nýrri sendingu þegar Jósef kemur heim úr vinnunni með þorramatinn.  Mmmmm, já það verður mini þorrablót hjá okkur í kvöld, með smá samtíningi af því helsta. Ótrúlegt en satt þá gengust börnin að þessum samningi því föstudagskvöld eru heilög pizzukvöld, þá brettir húsmóðirin upp ermar, lætur á sig svuntuna og galdrar fram ýmsar tegundir af gómsætum pizzum. Það fylgdi í samningnum að pizzurnar yrðu á laugardag.

Miklar pælingar eru varðandi öskudaginn og legið yfir bæklingnum sem kom frá Dótakassanum. Ég var hálfpartinSOLLA  EKKI STIRÐA búin að gefa grænt ljós á búningakaup en svo komumst við að samkomulagi, við útbúum búninga en kaupum litað sprey í hárið... það fannst þeim spennandi.   Spáum í búningakaup á næsta ári. Hjúkkett því mér þykir miklu skemmtilegra að spila af fingrum fram þó ég hafi nú ekki lager af gömlum fötum eða þannig. Að sjálfsögðu klæði ég mig upp og er búin að ákveða hvað ég verð, vantar reyndar einn aukahlut en hann má missa sín....

Jæja, það þýðir ekki að slóra, næg verkefni á skrifborðinu og spurning hvort ég byrja á að skrifa reikninga, flokka pappírsdót, gera fyrirlesturinn um markmiðasetningu, æfa mig með viðskiptakynningu.... ég ætla fyrst að setja í þvottavélina og svo vel ég á hverju ég byrja.

Góða helgi ! 

 

Mynd: Solla ekki stirða ! Tekin í íþróttahúsinu á Breiðdalsvík í Óvissuferð með Herba hópnum okkar 10. feb 2007. Jógatími sem breyttist í Juitzu tíma öllum að óvörum. Þetta var jú óvissuferð..... Nú megið þið láta í ykkur heyra í athugasemdum sem voruð með okkur þennan dag takk. Og svona til áminningar, makadagurinn verður haldinn hátíðlegur 9. feb með pompi og prakt í anda okkar Díönu.   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan dag Solla ekki stirða heheheh góða mynd af þér skvísa Ég ætla að elda kjúklingabringur handa mínum í kvöld voða góðar

Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 15:31

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Mmmm þær klikka aldrei. Hér eru rófurnar komnar í pott og ég bíð spennt eftir hákarlinum og Jósef karlinum með hákarlinn hehe.

Solveig Friðriksdóttir, 25.1.2008 kl. 17:40

3 identicon

Er að undirbúa bóndalaust Bóndadagskvöld því bóndinn á bænum fékk góðfúslegt leyfi til að fara á herrakvöld ungmennafélagsins hér í hverfinu og fá sér vel af Þorramat. Hann er hvort sem er sá eini í fjölskyldunni sem er vitlaus í ónýtan mat :-)  Jóhannes eftirherma er veislustjóri og Gísli Einars mun mæta með gamanmál. Gæti alveg hugsað mér að vera fluga á vegg þegar þeir félagar fara á flug.  Við hin sjáum hinsvegar fram á kósýkvöld með tilheyrandi sjónvarpsglápi og poppi í skál. Hentar mér fullkomlega á svona snjóþungu kvöldi...       Góða helgi, gæskan!

P.S. Gæti svo sem alveg hugsað mér að vera með systrum okkar á þorrablóti á EGS þessa stundina...(andvarp!)

Hallan (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 18:48

4 Smámynd: Life will never be the same...!!

Það er nefnilega málið Solla.... what if that was true?   EINS OG SVO MARGT ANNAÐ!  Kannski ætti maður bara að gefa nýjum hugmyndum tækifæri

Fyrir þá sem ekki vita þá er nú trúlega ein besta búningasala fjórðungsins hér á Eskifirði en í Bókabúðinni Eskju, fæst AAAAALLT MIIIIIIIILLI HIIIIIIIMINS OOOOOOG JAAAAAAARÐAR og ég hef heyrt að þar seú öskudagsbúningar engin undantekning

Ég bíð spennt eftir makadeginum, segi bara eins og J. Rohn "I couldn't wait to get  here to hear what I had to say"  hehe góður 

Skjáumst

Life will never be the same...!!, 27.1.2008 kl. 15:53

5 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Hlakka til að sjá hann í Barcelona, fæ Aþenu og Kölnartilfinninguna þegar ég hugsa um hann á sviði og allar góður tilfinningarnar sem svífa yfir vötnum.

Solveig Friðriksdóttir, 28.1.2008 kl. 17:07

6 identicon

Ohhh....hvað það var svakalega gaman í þessari óvissuferð Austur !!  Væri svo til í að endurtaka það áður en langt um líður.  Verst að Hinn andlegi leiðtogi Makaklúbbins verður enn í pílagrímsför á Ítalíu þennan dag....hann verður væntanlega með hópnumí ANDA.  Góða skemmtun !¨

Halldóra

Halldóra Skúla (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband