Vetrarríki
Miðvikudagur, 23. janúar 2008
Þó við séum ekki alltaf ánægð með snjó og vetrarfærð þegar við þurfum að ferðast á milli staða er ekki hægt að neita því að það er fallegt þegar hvít snjóslæða liggur yfir öllu. Hér snjóaði reyndar yfir glæra gljá svo það er nokkuð varasamt að vera á ferli á tveimur jafnfljótum, fallegt er það samt. Ég smellti mynd af öspunum mínum í vetrarhamnum og læt hana fylgja með.
Myndirnar af glitskýjunum sem ég tók um helgina voru ekki glæsilegar en ef ykkur langar að sjá þau getið þið kíkt á síðuna hennar Sólrúnar sys. hér til vinstri og á www.123.is/vinaminni á síðunni hennar Þóru Bjarkar. Þessi glitský voru alveg svakalega flott með þvílíkum litum og krakkarnir kölluðu þau regnbogaský slík var litadýrðin.
Nú er hafinn undirbúningur hjá okkur í stjórn Foreldrafélagsins fyrir þorrablótið og skipulagining á sprelli á Öskudag ásamt skólanum..... margt margt fleira á döfinni prívat og í Herballífinu sem ég tjái mig um þegar þar að kemur.
Farið varlega í hálkunni..............
Athugasemdir
Það er svo fallegt þega snjóar svona. Nokkuð gott þetta með regnbogaskýin.
Áslaug (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 16:38
Datt næstum mjög illa í dag, þar sem svell var og snjór yfir. Tókst að afstýra því með einkar glæsilegri mjúkri sveiflu í "slow motion". Örugglega jóganu að þakka?! Annars finnst mér veturinn indæll svona hvítur og mjúkur. Hundslappadrífan í dag var flott.
Sólrún (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 19:39
Já alveg örugglega jóganu að þakka. Ég er svo stolt af ykkur duglegu konum (og Sjonna) sem svo sannarlega vinnið í því að bæta líkamlega og andlega heilsu með ástunduninni ykkar.
Já ég tók eitt swing þegar ég var að fara frá mömmu, einmitt í slow motion og seig hálfpartinn niður á hægri rasskinnina, bar hægri hendina fyrir mig svo þetta var mjög mjúkt. Alveg stórglæsilegt !
Solveig Friðriksdóttir, 23.1.2008 kl. 21:26
Ég sé að þú hefur ekki hætt þér í fimleika með myndavélina og verið á öruggum stað á meðan þú smelltir af. Ég hafði orð á því við krakkana í 4-6 að nú þyrftum að bregða undir okkur leggjum.
Ég tók sving í dag og er sennilega komin í ólimpíuliðið fyrir vikið.
Þóra j (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 20:17
Já ef ekki heimsmeistaraliðið fyrir salíbununa sem þú tókst í tröppunum í vetur með litríkum afleiðingum
Solveig Friðriksdóttir, 25.1.2008 kl. 09:52
Halló kroppur.
Jæja þá læt ég í mér heyra (eða lesa)Við hjónakornin (ekki að við séum svo líti að við líkjums korni en húnós)förum svolítið a netið eins og fleiri forvitnir og lesu að það sé mikill snjór á íslandi frábært það veit ég ekki hef aldrei verið mikið fyrir snjó ennnnn finnst aftur á móti gaman í vitlausu veðri og snjókonu þ.e.s ef það rignir fljótlega og sallt hverfur kannski er þetta mótsögn en svona er þetta. Hér hefur verið milt veður í allann vetur með 5-9 stiga hita og það segir manni að það verður mikið um flugur og pöddu og þessháttar enda er maður farin að byrgj sig upp af allavega vörnum fyrir sumarið vegna þess að við hjónin eru sérlega góð til átu að dómi paddanna (maður á þá aðdáendur. annars kvartar daninn mikið unda því að það sé kalt og hráslagalegt þá segi ég bara farðu til íslands þá getur þú kvartað hér er bara blíða (svoldið leiðinleg)Annars gengur allt vel ég er alltaf að vinna í skólanum við að reyna að alta baunana upp og það gengur bara ágætlega enda er viðkomandi bæði þver ákvein og gefur ekki eftir ekki segja Frikka þessa játningu. Svovið komum til íslanda 12 mars en þá á að ferma hjá systur minni og svo förum við aftur heim 17 mars eigum von á gestum og finnst líka bara best að vera heima á hátíðum. Og þetta með að falla á fjórar það þarf ekki snjó til var nærri búin bæði að handleggsbróta mig og fótbrjóta sitthvora vikuna , ákvað að dreifa þessu svolítið jæja best að hætta þessu bulli það rennur alltaf á mig eitthvað skrifæði þegar ég les bloggið þitt?????????
Viltu vera svo væn og gefa mé upp netfangið hjá Sólrúnu systur þinni pakkaði niður jólakortinu sem ég fékk frá henni með aðsjálfsögðu netfanginu í.
Aftur jæja vonandi komið þið út úr snjóhúsunum með vorinu og komið kannski bara í heimsókn.
Kær kveðja til ykkar allra Inga Dóra
Inga Dóra (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.