Meirihluti Reykjavíkur sprunginn ...... og "Samlyndu prófin".

Þetta tilkynnti Dýrunn okkur með öndina í hálsinum þegar hún kom heim eftir fimleikaferð til Egilsstaða. Hún hafði heyrt í útvarpinu (Jónas missir aldrei af fréttunum) í bílnum að meirihluti borgarstjórnar væri fallinn og skildi þetta þannig. Blessað barnið taldi að borgin væri rústir einar.  Ég vel að tjá mig sem minnst um þetta mál enda skil ég hvorki vinstri né hægri í þessu öllu saman. Ég vildi bara óska þess að menn gætu unnið saman í því sem þessari borgarstjórn ætti að vera mest hugleikið og það er að sinna blessuðu fólkinu í borginni. Ekki held ég að allar þessar væringar flýti fyrir lausnum ýmissa mála og væri ekki vænlegra að finna lausn á manneklu á öllum sviðum velferðamála s.s. skólum.leikskólum, aðhlynningarstörfum osfrv...  heldur en að standa í þessu brasi. Pólitík er skrýtin skepna og langt fyrir utan minn skilning.

Í morgunsjeiknum áður en börnin fóru í skólann var verið að spá í ýmis próf og svoleiðis. Friðrik sagðist kvíða fyrir því að fara í fjórða bekk því þá þyrfti hann að taka samlyndu prófin og þau væri nokkuð erfið að sögn félaganna. Menn þyrftu að lesa fjórar lestrarbækur og þar fram eftir götunum... 

Ég gerði mitt besta í að telja í hann kjarkinn, að þetta væri könnun o.þ.h. en er það eðlilegt þegar kannanir eru þess eðlis að menn eru farnir að svitna yfir þeim löngu áður en til þeirra kemur.  Ég er ekki hlynnt þessum prófum, þar sem ég hef reynslu af því að kenna börnum sem eiga erfitt með nám og það þarf ansi þykkan bunka af greiningum til að börn sem eiga í erfiðleikum með nám fái undanþágu frá þessum prófum. Nei prófin skulu þau taka og það eru ófá tárin sem hafa fallið ofan í prófaheftið og hnútur í maganum því þetta kemur aftur í 7. bekk....  Segir ekki námsskráin að allir eigi að fá námsefni við hæfi og er þá ekki eðililegast að hver skóli meti sína nemendur miðað við hvar þeir standa án þess að brjóta þá niður. Er þeim kannski ekki treyst til þess eða hvað. Fuss og svei. 

Að þessum orðum töluðum ætla ég að renna mér niður Hólalandið í skólann á fund með stjórn Foreldrafélagsins. Þar er nóg á döfinni, þorrablót, blómasala, o.fl o.fl

 Venlig hilsen...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er von að blessað barnið hafi skilið hlutina svona,ekki lítið búið að ganga á.

Sigurjón Friðriksson (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 17:40

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Nei svona er þetta .

Solveig Friðriksdóttir, 22.1.2008 kl. 21:25

3 identicon

Það er ekki nema von að blessuð börnin skilji þetta ekki þegar við fullorðna fólkið erum eitt spurningamerki!

"Samlyndu" prófin voru tækluð fyrir jól og var móðirin mun kvíðnari heldur en sjálfur nemandinn sem lyfti varla augabrún yfir þessu öllu saman. Ég brá á það ráð að leyfa honum að spreyta sig á gömlum prófum, bæði til að venja hann við að sitja yfir svona prófi og líka til að uppsetningin og kröfurnar kæmu honum ekki á óvart. Hann stóð sig svo með ágætum. Kennari guttans var mjög á móti þessum prófum, rétt eins og þú - hún sagði að það væri verið að prófa úr hlutum sem þau væru ekki einu sinni búin að fara í gegnum!

Hallan (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband