Sú fimmta...

Já fimmta veikin hefur herjað á unga sem aldna hér á Stf. síðan fyrir jól. Vírus sem leggst yfirleitt létt á börn en þyngra á fullorðna.  Tvær úr skólanum spöruðu veikindaafleysingar í jólafríinu og lögðust og svo ein í þarsíðustu viku. Ég var þess fullviss um að ég slyppi en svo helltist þessi elska yfir mig fyrripart viku en ég náði að halda dampi þar til á föstudag en þá neyddist ég til að leggjast í rúmið með slappleika og verki. Þessi elska getur lagst illa á liði og þar sem ég er viðkvæm fyrir leist mér ekki á. Fór að ráðum læknismenntaðra manna og tók bólgueyðandi.  Ég virðist ekki ætla að taka þetta illa í missterka skrokkinn minn og trúi því að ég hristi þetta af mér sem fyrst. Er svona með eins og netta beinverki og stend ekki í stórræðum. 

Það hefur því lítið afrekast á heimilinu en ég reynt að njóta þess að slaka á og lesið í góðri bók sem heitir "Að sigra óttann" eftir Harold Sherman. Góð og holl lesning og í þeim anda sem ég er að lesa í persónuuppbyggingunni.  Náttbuxurnar hafa verið aðal klæðnaðurinn og ég rétt brá mér úr þeim þegar ég fór í sturtu og skellti mér í hinar meðan þær fyrri fóru í þvott.  

Ég finn þó mun frá því í gær og náði að koma örlitlu skikki á skrifstofuna mína og lagerinn. Planið var að gera stórtiltekt. Nú er heilmikil vinna framundan í að gera upp árið, vaskinn og allt það, úff, púff, ég er ekki mjög klár á því sviði en læri væntanlega meira frá ári til árs.

Þegar líkaminn er ekki eins sprækur og hugurinn dett ég stundum  í smá sjónvarpsgláp og ég horfði meira að segja á fótboltaleik í enska boltanum í gær og handboltann á eftir því. Sá leikur var öllu meira uppörvandi en leikurinn við Svía og vonandi gengur þeim vel í dag.  

Úti gnauðar veturinn og það er allt ósköp fallegt, gott að þurfa ekki út og spurning um að taka smá lotu á hitapokanum með bókina góðu...

Hafið það eins og þið viljið og vonandi heimsækir sú fimmta ykkur ekki !! Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alltaf notalegt að liggja með pest upp í sófa í náttfötunum, með sængina yfir sig, glápa á sjónvarpið og borða einhverja óhollustu...

Alda Rut (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 16:41

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Já fyrir utan pest, ég á erfitt með að höndla þær í þau örfáu skipti sem þær banka uppá þökk sé Herba ofl.

Solveig Friðriksdóttir, 20.1.2008 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband