19:00 eða 18:30 !
Mánudagur, 14. janúar 2008
Bara hálftími sem skilur á milli en grundvallar munur þegar mæta á í flug. Ég tala nú ekki um þegar það á að mæta 18:30 og manneskjan mætir kl 19:00 og vélin að leggja af stað. Ég var í bænum um helgina og alveg með það á tæru hvenær ég ætti að mæta. Svo var fluginu seinkað til sjö og ég setti það inn í meinlokuna að ég ætti að mæta sjö, sem og ég gerði og það var of seint að komast heim með síðustu vél til Egilsstaða þann daginn. Stúlkan var svo elskuleg að breyta miðanum svo ég komst með fyrstu vél 7:15 í morgun.
Ég átti mjög góða helgi með góðum vinum. Föstudagskvöldi eyddi ég með minni nánustu Herbalife fjölskyldu og flutti fyrirlestur um ákveðið efni sem gekk mjög vel. Á laugardag var ég með stórfjölskyldunni þar sem samankoma dreifingaraðilar af öllu landinu og fræðast og eiga góðan dag saman. Það voru mörg faðmlög, knús og kossar og gott að brosa og hlæja svona mikið.
Laugardagskvöldi eyddi ég með Hafdísi mágkonu en Sóli rauk af stað fljótlega eftir að ég birtist til að spila á balli í Reykjavíkinni. Við mágkonurnar höfðum um nóg að spjalla og svo gerði hún mig sallafína daginn eftir, litaði fölar augabrúnir og augnhár og lagfærði það sem laga þurfti.
Og fyrst ég missti af fluginu fórum við frænkurnar (sem ég gisti hjá þá nóttina) í bíó í gærkvöld og sáum "Death at a funeral", góð bresk afþreying en engin stórmynd. Kemst ekki með tærnar þar sem fjögur brúðkaup og jarðarför er með hælana að mínu mati.
Það var ekki nema 8 stiga frost á Egs. svo ég þarf ekki að fjölyrða um hvaða leið ég fór inn í bílinn minn hehe og hann var orðinn fínn þegar ég kom á Reyðarfjörð og tók bensín. Síðustu kílómetrana að Reyðarfirði heyrðist skrýtið hljóð úr öðru afturdekkinu og hjá bensínstöðinni athugaði ég málið og þá voru 3 rær lausar á afturdekkinu. Ég herti þær að því ég hélt nógu vel en í göngunum parkeraði ég í útskoti og festi þær betur. Þetta er skrýtið því þetta gerðist líka í fyrra með nagladekkin. Gott að það skyldi ekki skoppa af og taka framúr eins og um árið þegar ég var að keyra á ball í Húnaveri sem endaði sem hið mesta ævintýri.
Ég var passlega komin á Fás. um 10 leytið og fékk notalega meðhöndlun hjá Marjolain í höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun, þvílík dásemd. Svo kom ég loksins heim og sótti ungana mína í íþróttahúsið.
Frábær helgi að baki og spennandi tímar framundan !
Athugasemdir
Jahérna þessi bíll sem þú átt
Gangi þér vel með allt þitt Solla mín, það væri gaman að fá þig til að kenna einn tíma í Mecca.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 14.1.2008 kl. 14:40
Já hann er ótrúlegur
Það væri mjög gaman að kenna einhvern tíman þegar ég verð á ferðinni. Nú er ég komin í gallann og á leiðinni í íþróttahúsið 
Solveig Friðriksdóttir, 14.1.2008 kl. 16:58
Ha ha þetta er frábær bíll sem þú ekur um hérna um götur. Já það er eins gott að dekkin fari ekki fram úr þér. Alltaf fullt að gera hjá minni það er flott gangi þér allt vel.
Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 11:39
Það er ekki laust við að maður dansi regndans hér í Grabbavoginum í þeirri von að hlýna megi fyrir læsingarnar þínar. Alltaf sömu ævintýrin þegar þú leggur land undir fót!! Ég beið nú ekkert lengi með kaffið að þessu sinni - ákvað bara að drekka það sjálf, ehemm!
Hallan (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 22:11
Ó mín kæra Halla, ég kem því lofa ég einhvern daginn þegar ég verð á ferðinni og á bíl, það er lykilatriði ég held ég myndi týnast ef ég ætti að taka strætó þarna upp í sveit. Annars er ekkert mál að taka smá leikfimi í að komast inn í bílinn, styrktaræfing fyrir hendur og liðkandi fyrir skankana að koma þeim á sína staði hehe
Ef ég ætti að eyða orkunni í að svekkjast yfir fararskjótanum sem ég hef og hef þar til hagur vænkast og ég get yngt upp þá færi ég ekkert af bæ... Ég valdi að vera ánægð með hann og verð það meðan hann flytur mig um fjöll og firnindi 
Solveig Friðriksdóttir, 16.1.2008 kl. 15:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.