Allt frosið !
Mánudagur, 7. janúar 2008
Já það er nú gaman að hafa húmor fyrir sjálfum sér þegar eitthvað fer öðruvísi en ætlað er eða þannig. Í morgun fór ég í dásamlegu köldu veðri yfir á Fáskrúðsfjörð í sjúkraþjálfun. Það var örlítið kaldara þar norðurfrá en hér og ég var að spá hvort ég ætti að læsa bílnum að gömlum vana eða ekki . Það er ekki svo kalt hugsaði ég og læsti ( en ég hef lent í því að læsingin hefur frosið föst gerist stundum á gömlum elskum).
Svo kom ég út eftir klukkutíma meðferð í sæluvímu og slök, stakk lyklinum í skrána en ekkert gerðist.... arg... prófaði farþegamegin en sama sagan þar, óboy óboy. Þá var bara að athuga hvort skottið væri frosið fast (það læsist nefnilega ekki en frýs nú samt stundum) og til allrar guðs lukku var það ekki frosið svo ég gat klöngrast inn þeim megin. Nú var gott að vera ekki mjög stirður en svolítið erfitt þar sem skankarnir eru langir eins og á öðrum í mínum legg. Ekki gat ég opnað bílstjóramegin en það hafðist farþegamegin, út fór ég þar, lokaði skottinu og klöngraðist inn farþegamegin, í bílstjórasætið og brunaði heim í blíðunni. Þetta var nú nett skemmtilegt og ég vona að ég hafi ekki haft áhorfendur að aðförunum hehe, annars skiptir það svosem engu ef afturendinn á mér gleður einhvern þá er það í lagi
Við kvöddum jólin í gær með smá bombum sem við keyptum á Breiðdalsvík og einni stórri rakettu. Það var heilmikið fjör og mikil flugeldasýning utar í götunni. Það gladdi börnin mikið en kötturinn var ein taugahrúga greyið. Þetta er ekki spennandi tími fyrir blessuð dýrin.
Nú tekur við það skemmtilega verkefni að taka jólaskrautið niður, já ekki það skemmtilegasta en ekki neitt annað í boði. Hversdagurinn er alltaf alveg ágætur eftir þessa sælutíð, stutt í þorra og nóg framundan seisei.
Jóganámskeiðið byrjar hjá mér í dag, það eru aðal harðjaxlarnir sem mæta, sumar hverjar bóka sig þegar síðasta tíma fyrri lotu lýkur áður en ég fer að auglýsa hvenær ég byrji næst. Frábært að hafa svona stabílar kerlur og mættu margir taka þær sér til fyrirmyndar.
Kærleikskveðjur inn í nýja vinnuviku !
Athugasemdir
Hahahah, sé þetta alveg fyrir mér. Gangi þér vel Solla mín með námskeiðin þín.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 7.1.2008 kl. 15:33
Næst skaltu spara þér prílið og blása inn í skrána. 37° heitt loftið þýðir hana yfirleitt.
Lásasmiðurinn (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 17:10
Kæri lásasmiður, ég varð að passa að kólna ekki niður eftir slökunina í sjúkraþjálfuninni það var svo svalt úti, treysti ekki á blásturinn myndi virka. Fannst hitt gáfulegra hehe.
Solveig Friðriksdóttir, 7.1.2008 kl. 23:27
Mikið hefði verið gaman að sjá til þín.
Áslaug (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 10:35
Sælar og gleðilegt árið :)
Ég er nú sammála Áslaugu um að gaman hefði verið að sjá til þín.. hehhe
Ég lenti í þessu eftir vinnu á föstudegi í Borg Óttans þegar ég bjó þar, vinnustaðurinn minn beint á móti Bónus í Skútuvogi, þá þurfti ég að klöngrast inn um skottið.. Nótabene ég var í mínipilsi og leðurstígvélum og búin að blása frá mér allt vit.. EN nei.. hellingur af fólki sá á mér afturendann og var skemmt... Hahahhah En mér var bara skemmt eftirá.. ;)
Sjáumst ferskar á nýja árinu :)
Kveðjur úr Álversbæ
Jóhanna Dreifbýlistútta (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 22:29
Ég er ánægð með að tilheyra harðjaxlaliðinu enda jóga að mínu áliti ein sú besta heilsubót sem hægt er að stunda bæði fyrir skrokkinn og sálartetrið. Er eiginlega hissa að ekki skuli fleiri nýta sér þessi stórgóðu námskeið og finnst bara frábært að við skulum hafa professional jógakennara hér á staðnum.
Sólrún (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.