Jól og notalegheit !

Gleðilega hátíð allir nær og fjær.

 Jólakort 002

 Við erum búin að hafa það mjög notalegt yfir mestu hátíðardagana. Á aðfangadag komu12 sveinar í heimsókn eins og vanalega og færðu krökkunum pakka. Það er alltaf mikil eftirvænting þegar komu þeirra er beðið og gott að hafa stóra glugga sem hægt er að hlaupa á milli þegar þeir nálgast.

Dýrunn fékk svo aukaheimsókn, tveir sveinar sem færðu henni glaðning frá sparisjóði nokkrum sem gefur fyrstu bekkingum eitthvað spennandi hver jól.

Frúin fór til messu meðan bóndinn og börnin græjuðu það allra síðasta fyrir matinn og kveiktu á kertunum. Það var síðan mikið stuð í pökkunum eftir dýrindis svínahrygg sem bráðnaði uppi í manni. Smáfólkið datt útaf seint og um síðir og sváfu óvenjulengi á okkar mælikvarða. 

Á hádegi á jóladag örkuðum (á bílnum því rigningin hamaðist við að bræða jólasnjóinn) við til mömmu og borðuðum hangikjöt. Lágum svo í leti þar fram eftir degi og smátt og smátt tíndist það sem eftir er af fjölskyldunni á Stöddanum í kaffi. Það var því margt um manninn á Grenimelnum.  

Í dag, annan í jólum var letibrókast fram eftir morgni, svo tók við jólaballsundirbúningur hjá frúnni og ballið var haldið klukkan þrjú. Það lukkaðist vel, var nokkuð rokkað þar sem hljómsveitin Ultimate jólabandið (best að hafa þetta rétt eftir núna, ég gerði villu á auglýsingunni) spilaði undir, fjórir fjallmyndarlegir drengir sem voru búnir að æfa stíft síðustu daga. Þeir stóðu sig vel og tóku nokkur lög í lokin sem hægt var að tjútta við. Sveinkarnir mættu en voru heldur þreyttir eitthvað og lölluðu í kringum tréð smáfólkinu samt til mikillar ánægju.  

 Þetta er alltaf gaman og á morgun er mesti hátíðleikinn búinn í bili, þar til áramótin koma en þeim ætlum við að verja á Akureyri og förum á föstudagsmorgun.

 Hafið það gott og ég læt heyra frá mér væntanlega á nýju ári....................................

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

8 var talan sem rita átti.  Takk fyrir daginn, þetta gekk bara ljómandi vel hjá okkur að ég held.  Og takk fyrir samstarfið, þetta var örugglega síðasta jólabllið sem ég druslast með í nefnd, þar sem öll börnin eru sprottin úr grasi eftir þennan vetur.

kv. af hæðinni. 

Þóra Björk (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Nú er fattarinn ekki í lagi, átta hvað. Jólasveinar einn og átta eða?

Solveig Friðriksdóttir, 27.12.2007 kl. 13:12

3 identicon

Talan átta var Ruslpóstvörn, en nú er það 13.  Allt tengist þetta jólasveinunum.

Þóra Björk (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 15:31

4 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Nú skil ég hehe, varð samt endanlega rugluð í ríminu í dag þegar mamma var að tala um að það hefðu bara átta mætt í messuna og við vorum að bundirbúa meðan messan var. Ég hélt að ég hefði misst af einhverju. Já takk sömuleiðis fyrir samstarfið, gekk hratt og örugglega mér líkar það vel.

Solveig Friðriksdóttir, 27.12.2007 kl. 22:20

5 identicon

Gleðileg og nýtt ár

talan er 6 hjá mér heheheheh

Kveðja norður

Jóhanna Guðný (IP-tala skráð) 28.12.2007 kl. 12:50

6 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Gleðilegt  ár  Solla og  takk fyrir  öll þau  gömlu...

Magnús G.

Magnús Guðjónsson, 2.1.2008 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband