Litlu jólin ...

voru haldin í skólanum í gær. Þau voru með hefðbundnu sniði og allir þokkalega sáttir við að vera komnir í jólafrí.

Um kvöldið voru svo litlu jól kennara eins og lög gera ráð fyrir. Oft höfum við hist í skólanum og borðað saman en erum aðeins að byrja að breyta til. Í fyrra voru "Kertaljós og klæðin rauð" hjá Þórönnu og Jóa sem var notalegt en endaði með útkalli slökkviliðsins (nokkrir meðlimir voru í partýinu og ekki alveg án áhrifa hehe).

Í ár slóum við saman í veislu og borðuðum hjá Guðnýju og Jóa. Það var ekki slor. Hver haldið þið að hafi séð um matinn?? Jú mikið rétt, meistarakokkurinn sjálfur og kalkúnninn og meðlætið rann ljúflega niður ásamt guðaveigunum. Á eftir fengum við að sjálfsögðu heimalagað konfekt nammi namm. Þetta var mjög skemmtileg stund og á svona samkomum er við hæfi að hafa eitthvað sprell. Ég setti saman smá klausu um hvern kennara og maka og það tengdist því hvernig við komum okkur á fætur á morgnana og í vinnuna, nema ég tók lýsingarorðin í burtu og fékk fólkið til að skrifa ákveðið mörg lýsingarorð um hvern og einn. Útkoman var nokkuð skrautleg og ég læt fylgja hér pistilinn um okkur hjónin.

"Fleiri farfuglar vakna spengilega á morgnana. Jósef lætur klukkuna hringja klukkan hálf sex en er harður og ákveður að lúra svolítið lengur. Hverfur aðeins of óaðfinnanlega inn í draumalandið og hrekkur upp með rólegum andfælum þegar klukkan hennar Sollu hringir upp úr sex. Hendist kynþokkafullur upp úr rúminu og er horfinn med det samme á átt að Eskifirði."

"Solla mætir ákveðin þegar hún mætir í vinnuna. Samt nær hún aldrei að mæta eins krúttlega og Gurra. Þegar líða fer á daginn fer hún að undirbúa jógað sitt. Í dag ætlar hún að hafa mjúkan og hávaxinn tíma. Það er svo broshýrt svona rétt fyrir jólin að vera stórfættur. "

Svo er það gátan fyrir Stöddara:  Hvaða hjón eru þetta?

-------- mætir lítil í skólann á morgnana. Það er sama hvað Solla reynir að mæta stórt alltaf er ------ mætt klárust allra. Hún er reyndar í fyndnum málum núna því heima hjá henni er "allt í drasli" og hún er snögg hrædd um að ónefnd sjónvarpskona mæti með vélarnar inn á gafl hjá henni. 

-------- fær sér  stjórnsama rettu áður en hann leggur af stað. Hann sýgur að sér forvitið

morgunloftið á pallinum og nýtur viturrar útiverunnar. Hann er glæsilega seinn fyrir þennan dag því hann átti eftir að taka virðulega úr uppþvottavélinni og búa sætt um rúmið.

Svör óskast....  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu Solla þú ert nú bara ráðin í skemmtiatriðin líka á Kikk Off deginum okkar....  Þú verður bara aðalnúmerið   

Kveðja

Halldóra 

Halldóra Skúl (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 13:39

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Hehe, aldrei að vita, spurning hvort það stangast á við jógaímyndina hehe.

Solveig Friðriksdóttir, 20.12.2007 kl. 14:09

3 identicon

Dí- maður! Ég er bara alveg búin að missa yfirsýn yfir hverjir vinna í skólanum svo ég þori varla að giska.  Það eina "litla" sem upp kemur í hugann er Gurra í Logalandi en það geta sko alveg verið fleiri smávaxnar í skólanum án þess að ég hafi um það hugmynd :-) Skemmtilegur leikur og fyndin útkoma ef menn eru útsjónasamir að finna lýsingarorð. 

Hó, hó, hó........

Hallan (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 18:55

4 identicon

Blessuð,  takk fyrir síðast.  Þetta var fínt og ekki skemmdi maturinn fyrir, sem eldaður varð með "kærleik" ... og borðaður með góðri list.  Og sumir komu á tannlausum bíl.....

Þóra Björk (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 22:35

5 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Já því það er svo glettið og hávært veður í dag hehe.  Ætli Björgvin sé enn Búddalegur ? Kannski er hann enn bangsalega pirraður þar sem hann fékk ekki að fara á hjálpsama bílnum ykkar. Flottur bíll, bæði tannlaus og hjálpsamur

Solveig Friðriksdóttir, 21.12.2007 kl. 10:09

6 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Halla, þú hafðir rétt fyrir þér í fyrstu atrennu og þar sem hún er enn gift Jónasi þá er hann sá sem fær sér "stjórnsama rettu áður en hann leggur af stað".

Solveig Friðriksdóttir, 21.12.2007 kl. 11:49

7 identicon

Já, þetta var frábært kvöld engin smá veisla. Hef nú ekki oft borðað kalkún en þessi var meistaralega kokkaður. Lýsingin á fótaferð starfsfólksins varð líka ansi mikið skondin.

Sólrún (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband