Bingó !
Mánudagur, 17. desember 2007
Já gamla góða Súlubingóið klikkar aldrei, góð mæting og þrusu góðir vinningar. Spiluð var 21 umferð og samt var búið að sameina vinningana þannig að hver vinningur var mjög veglegur. Við mæðginin höfðum heppnina með okkur. Friðrik reið á vaðið og fékk bingó mjög snemma. Hann skrapp reyndar á klósettið og þá setti mamman bingókraftana í spjaldið hans og hver talan af annarri dúkkaði upp. Hann náði þó að klára dæmið og galaði stoltur BINGÓ ! þegar síðasta talan kom. Hann fékk jólakúlur, tvær inniseríur og 5000 þús. króna gjafakort í Samkaup/Sparkaup og öllu því batteríi. Svo stuttu síðar kom að mömmunni og ég fékk forláta kaffivél á spjaldið hans Jósef (hann komst því miður ekki því það var mjög svo mikilvægur leikur í enska boltanum). Friðrik ætlaði ekki heldur því hann hefur aldrei fengið bingó og var viss um að hann fengi ekki. Þegar heim var komið var hann heldur sperrtur og tilkynnti "Maður fer nú líklega á bingó á næsta ári." Önnur serían er komin upp í herbergið hans en hin sem er blá 100 ljósa innisería er meiri höfuðverkur. Við vorum að spá í að skella henni á jólatréð og hafa það með bláum sjarma þetta árið.... spurning hvernig það tónar við gylltu sjatteringuna mína hehe.
Ég var búin að setja fókusinn á aðalvinninginn, matarkörfuna góðu en það voru allir hinir búnir að gera líka, samt sat ég lengi með eina tölu og Dýrunn líka. Hún var orðin ósköp þreytt í lokin enda er hún ekki alveg búin að vinna upp fullan kraft eftir veikindin. En karfan fór á góðan stað eins og allir hinir vinningarnir og Súlan fékk dágóðan slatta í sjóðinn sinn sem ætlaður er til kaupa á tækjum í íþróttahúsið þegar aðstaðan uppi verður kláruð.
Já hún Dýrunn er komin á beinu brautina og síðasta blóðprufa sýndi alveg nóg af hvítum blóðkornum og hugsanlega hafa kokkarnir og sennilega veirusýking valdið þessari lækkun. Þungu fargi var létt af foreldrunum og þegar hún fékk fréttirnar eftir hádegi á laugardag sagði hún "jibbí, þá þarf ég ekki að biðja guð áfram að gefa mér fleiri hvít blóðkorn" svo kom sú næsta "má ég fara út?"
Og út fór hún með vinkonu sinni, reyndar beint niður í Logaland og hún kom ekki heim fyrr en daginn eftir því þær vinkonur þurftu að vinna upp tapaðan tíma og Dýrunn fékk að gista hjá Kolbrúnu. Það var þokkalegt stuð.
Friðrik naut samverunnar með foreldrum sínum og bísnaðist yfir því að aðrir foreldrar skyldu ekki fara eftir útivistarreglunum því alveg undir tíu var slatti af liði á sparkvellinum sem átti að vera farinn heim klukkan átta. Hann var sáttur enda alltaf kósíkvöld á laugardagskvöldum hjá okkur.
Að öðru leyti er allt á rólegum nótum, jólakortin fara flest í póst í dag og þeir pakkar sem ég póstsendi. Það er svo skemmtilegt að ég slaka alltaf meira á því nær sem líður að jólum og ýmislegt sem er á verkefnalistanum í upphafi des. er strikað út þegar nær dregur því margt af því flokkast ekki undir bráðnauðsynlegt hehe.
Njótið aðventunnar áfram.....
Athugasemdir
Það klikkar ekki Sunnuhvolsliðið þegar bingospjöldum er brugðið á loft,vantaði bara rjúpurnar.
Sigurjón Snær (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 12:50
Til hamingju með vinningana !
Gott að heyra að Dýrunn sé að ná sér og ekkert alvarlegra í gangi !!
Kveðja frá ítalíu
Halldóra
Fallega fólkið í Leeds, 17.12.2007 kl. 13:41
Sjonni minn, það var á tombólu, tvennt ólíkt en það yrðu margir glaðir í dag að fá níu rjúpur á einu bretti eins og ég fékk um árið.
Takk takk Halldóra, já það var mikill léttir en hún er enn hálf orkulaus og erfitt að byrja á fullu aftur í skólanum. En það styttist í jólafríið, bara tveir skóladagar eftir. Kveðja til Ítalíu
Solveig Friðriksdóttir, 17.12.2007 kl. 18:33
Aftur að bingóinu Sjonni minn. Það vantaði eiginlega fyrri hlutann. Já þau eru virk bingógenin í familíunni en sú gamla klikkaði og fór aldrei þessu vant tómhent heim en það var vegna þess að hún trúði ekki nógu mikið á það. Ég held það. Þarna sannaðist líka að maður á ekki að einblína á það sem maður vill ekki. Ég vildi eiginlega að einhver annar fengi kaffikönnu og var með Bjarna 3. Ég hugsaði ekki Bjarni 3, ekki Bjarni 3 og hvað kom upp?? Bjarni 3 að sjálfsögðu hehe. Spúkí eða ?
Solveig Friðriksdóttir, 17.12.2007 kl. 20:24
Bingó eða tombóla,kemur út á eitt í mínum augum.Ég hef tvisvar farið á bingó en aldrei fengið vinning og fannst það besta mál,fannst gaman að taka þátt í þessu.
Sigurjón Snær (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 22:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.