Sú gamla rann í gegn...

Já gamla Toyotan rann í gegnum skoðunina um daginn á innan við tíu mínútum held ég og án allra athugasemda. Seigt í þeirri gömlu.

Við tókum daginn snemma í dag eins og vanalega en vorum aðeins fyrr á ferðinni en á venjulegum degi. Dýrunn var bókuð í blóðprufu á Reyðarfirði klukkan átta og klukkutíma fyrr settum við deyfikrem á handlegginn svo hún fyndi ekki eins til þegar stungið yrði. Þetta er fjórða blóðprufan sem hún fer í á einni og hálfri viku og það tekur á hjá ekki eldri manneskju. Hún er algjör hetja og kippir sér ekki upp við stunguna og fylgist spennt með. Við fáum að vita á morgun hver staðan er með hvítu blóðkornin hennar. Hún er hress þannig séð en ósköp föl þessi elska. Við förum að sjálfsögðu eftir fyrimælum læknis, að taka því rólega og mér þykir líklegt að hún fari ekki í skólann fyrir jólafrí, því mestu máli skiptir að hún nái að jafna sig.  Litlu jólin verða á miðvikudaginn og ég ætla að leyfa henni að fara á þau og jafnvel jólatónleikana líka, þar er hún ekkert að brasa eða hamast.  Hún er búin að missa af svo miklu í jólaundinbúningnum í skólanum en við höfum reynt að bæta það upp sem mest hér heima. Auðvitað er hún að brasa helling heim enda nennir hún ekki að liggja í rúminu þegar hún finnur ekki fyrir neinu. Hún býr um rúmið sitt og bróður síns og uppsker stórt knús að launum þar dag hvern.  Svo tekur hún úr uppþvottavélinni og lætur í hana aftur þegar hún er í stuði, þurrkar af og tekur til.  Neinei það er engin barnaþrælkun í gangi en henni þykir þetta bara svo skemmtilegt. Í gær skrifaði hún upp piparkökuuppskrift úr stærðfræðibókinni sinni og setti hjá uppskriftunum mínum, ekki dónalegt að geta bakað þær einhvern daginn. 

Í gær var jólaföndur í skólanum, mjög veglegt og fínt. Flestir máluðu jólatré og settu gervisnjó og glimmer og nokkrir gerðu serviettumyndir í Dýrunn og jólaföndur 006ramma, mjög flott. Það var líka hægt að gera jólasvein á sleif, svolítilð dúllerí og aðallega fyrir mömmur. Ég keypti tvo svoleiðis til að gera heima og eitt tré sem Dýrunn er að sjálfsögðu búin að mál og það er komið upp.  

Þarna er hún með fína tréð sitt.  

Um helgina verða áfram rólegheit. Ég fer á Jólabingó Súlunnar á sunnudaginn sem er árviss viðburður og enginn má missa af á svæðinu.  Svo ætla ég líka að klára frá restina af jólagjöfunum sem ég ætlaði reyndar að klára á Akureyri, en margt fer öðruvísi en ætlað er og þá er plönunum bara breytt.

 Eigið þið eins góða helgi og þið viljið...... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Oh, mig langar á jólabingóið - alltaf klassískt!

Vona að Dýrunn fari að hressast.   Kveðja, Halla

Hallan (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 00:51

2 identicon

Ég les að þú hafir ekki haft mikla trú á gamla rauð,  en henn greinilega stóðst prófið.

Sendum Dýrunni góða strauma, um von um skjótan bata.

kv. af hæðinni 

Þóra Björk (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 16:44

3 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Já Halla ég skal skila stemmningunni til þín, fer með vinninginn sem ég gef úr Herbalifebúðinni minni (Andlitskrúbb og dásamlegt silkikrem) niður í skóla á eftir og þá skanna ég vinningana og ákveð hvern ég ætla að vinna hehe.

Bingó hefur nefnilega oft komið upp á mínum spjöldum og þegar ég fór fyrst í bingó í Samkomuhúsinu (á barnabingóið) þá sá ég lítinn grís á borði númer ég man ekki hvað en þá var spilað um vinninga á ákveðnu borði í hvert sinn. Ég segi við mömmu "Ég ætla að fá þennan grís". Hún vissi sem var að líkurnar á að fá bingó og akkúrat á þessu borði væru kannski ekki miklar en ég fékk bingó og grísinn var minn. Það voru margir veglegri vinningar en ég vildi þennan og hann fékk ég. Lögmál aðdráttaraflsins , þú laðar að þér það sem þú biður um hehe. 

Já Þóra, ég hef alveg trú á þeirri gömlu en þegar menn eru að færast á antíkaldur og komnir hátt í 360 þús í eknum kílómetrum tekur maður ekki öllu sem gefnu. Þó þessi elska hafi ekki bilað utan þegar viftureimin slitnaði á fjöllum í fyrra getur nú ýmislegt slitnað smátt og smátt.

Dýrunn er orðin hress, hjúkkett hún fékk 100% skoðun úr síðustu blóðprufu.. blogga um það síðar :)  

Solveig Friðriksdóttir, 16.12.2007 kl. 12:18

4 identicon

Það gott að Dýrunn sé að hressast og hún er ekkert smá dugleg að hjálpa til á heimilinu;)

Alda Rut (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 12:42

5 identicon

Vonandi var gaman í bingó.. kveðja til allra á stödd.

Helga Antons (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband