Kossaflens-a-

"Ertu með kossaflensu" Sagði Dýrunn í morgunsárið þegar henni þótti Friðrik of ákafur við að knúsa mömmu sína.   Þetta er nú meira kossaflensið sagði mamma stundum þegar henni þótti nóg um enda ekki mikið fyrir að sýna þannig atlot eða horfa á.  Þetta er svolítið flott orð kossaflens og greinilegt að börnin mín hafa heyrt það frá móður sinni en hér er nóg um kossa og knús svo það er notað í gríni.

Það er ómetanlegt að geta hafið daginn með knúsum og kossum, það fylgir svo sannarlega inn í daginn.  Þannig hefjast helgarmorgnarnir oft á tíðum þegar foreldrarnir eru ekki of latir og vilja kúra en oftast er ég nú útsofin á milli hálf átta og átta enda ekki mikið að daldrast fram eftir nóttu, er svona meiri morgunmanneskja heldur en kvöld og næturmanneskja, er það ekki A ??

Jósef missti af morgunknúsinu því hann var horfinn til vinnu fyrir átta. Það er törn hjá honum þessa dagana og hann fékk sér smá aukavinnu og er að rifja upp gamla takta og er að mála í húsi hjá fyrrverandi vinnufélaga.  

Við hættum við Norðurferð í gær því Dýrunn er ekki orðin nógu hress og við Jósef fórum með hana á Norðfjörð í gær í aðra blóðprufu því læknirinn vildi láta athuga hana nánar. Hún er ekki með einkirningssótt né veirusýkingu og líklega streptókokkarnir sem eru að ganga svona á hana greyið. Nú tekur hún því rólega áfram um helgina og það verður dekrað við hana á alla kanta hehe. Hún fer svo á mánudaginn í annað tékk. Hún er algjör hetja þessi elska og tekur þessu með jafnaðargeði. Það fór nú ansi sterkur tilfinningafellibylur í gang í móðurinni en ég trúi að hún hristi þetta af sér.

Á meðan við vorum á ferðalagi var aðventuhátíð í kirkjunni hér heima. Friðrik söng með barnakórnum líkt og hann hefur gert frá því hann var á sínu fyrsta ári í leikskóla, smá stubbur. Það lukkaðist víst  vel og kennarinn var mjög glaður að fá Friðrik í kórinn því hann syngur svo hátt og vel og kann alltaf textana sína. Hann var nú ekki sáttur við að þurfa að bera jólasveinahúfu, er kominn á þann aldur að það er fyrir neðan hans virðingu en mamman gaf sig ekki enda fyrirmæli frá prestinum. Ekki hafa allar mömmur verið að spá í þetta því nokkrir af þeim elstu eru allir búnir að "tína" sínum húfum Tounge

Um helgina ætla ég að njóta samverunnar með börnunum mínum. Stússa í þrifum (bara þessum venjulegu, engir veggir eða loft), skreyta meira og baka með krökkunum. Piparkökurnar eru alveg eftir og tilvalið að skella í þær, hóa í vinina úr Logalandi og baka við dúndrandi jólatónlist. Gerist það nokkuð betra?

 Góða helgi...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er nokkuð bólusett við þessari kossaflensu? Hér á bæ bökuðum við Emil (hann trommaði með hinum ýmsu eldhúsáhöldum) þessar dýrindis haframjölskökur um kaffileytið. Þær voru svo vel þegnar með síðdegiskaffinu og kláruðust næstum því.

Sólrún (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 17:44

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Nei það er ekki bólusótt við kossaflensunni. Þetta er flensan sem flestir ættu að fá, helst að minnsta kosti einu sinni á dag Hér voru bakaðar piparkökur og skreyttar í öllum regnbogans litum, góðar líka.

Solveig Friðriksdóttir, 9.12.2007 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband