Aðventan

Þeir sem reka inn nefið á þessa síðu hafa tekið eftir að manneskjan er ósköp róleg í bloggfærslum þessa dagana. Ekki er ástæðan sú að lítið sé um að vera heldur hefur mig ekkert langað að setjast við tölvuna og skrifa. Við höfum haft í nógu að snúast. Fyrir nokkru var árshátíð í skólanum og krakkarnir stóðu sig rosalega vel. Yngsta stigið tók fyrir Astrid Lindgren og sungu og léku af hjartans list. Þetta eru alltaf spennuþrungnir dagar og verið að slípa og æfa fram á síðustu stundu. Allt gekk ljómandi vel þrátt fyrir erfiða generalprufu. Það er hægt að skoða myndir á www.austurbyggd.is/grunnskoli ásamt ýmsu úr skólastarfinu.

Hinn árlegi jólamarkaður var síðustu helgina í nóvember og það er alltaf mikill viðburður. Það er mikilvægt í okkar litla samfélagi þegar stór hluti bæjarbúa sækir atvinnu á næstu firði og fólk hittist ekki dags daglega að hafa viðburð sem þennan. Margir voru með söluborð og það var nóg að gera á mínum vígstöðvum. Ég var með Herbalife borðið mitt, Friðrik og Eyþór mér á vinstri hönd seldu smákökur í gríð og erg (sem mæðurnar bökuðu sveittar á laugardeginum) og á hægri hönd var Dýrunn með vinkonum sínum og þær seldu sultur af ýmsum stærðum og gerðum.  Jósef var við Súluborðið ásamt fleirum úr stjórninni og seldi jólapappír og bauð fólki að gerast áskrifandi að Grænu tunnunni.  Foreldrafélag grunnskólans seldi kökudeig og það mæltist vel fyrir. Ég er nú formaður í þeirri góðu stjórn og var ekki búin að fá einhvern með mér við borðið og taldi að það yrði við hliðina á mínu svo ég ætlaði að skipta mér á milli en það reyndist vera langt í burtu og einn góður pabbi bjargaði því snarlega og sá um borðið. 

Á laugardag var kveikt á jólatrénu á Balanum og þetta árið er það hið myndarlegasta tré, hátt og tígulegt. Þarna mættu börn bæjarins og slæðingur af fullorðnum, tvær dömur úr tónlistarskólanum spiluðu á þverflautur í kuldanum og Garðar spilaði undir söng við jólatréð. Nokkrir magrir sveinkar (nem úr 9.-10. bekk) mættu á svæðið og sýndu mjög svo frumlegt jólasveinahopp áður en þeir stigu dans með okkur hinum. Krakkarnir fengu svo mandarínur í nesti með heim. Þetta tók fljótt af því það var svo kalt en mjög fallegt veður. Ég sit því nú reglulega við stofugluggann og dáist að trénu sem er svotil fyrir utan gluggann minn.

Örlítil vetrarveikindi hafa herjað á smáfólkið, Friðrik fékk smá skammt um daginn, mitt í árshátíðarundirbúningi en náði að hrista slenið af sér. Dýrunn greindist með streptokokka í síðustu viku og er á lyfjum vegna þess, var samt ekki lasin svo rauk hún upp í  mikinn hita í nótt og er slöpp greyið og ég enn á náttbuxunum þó klukkan sé orðin ellefu, hálf þreytt því það var lítið um svefn meðan hitinn var sem mestur. Hún verður af fimleikaæfingunni í Egs. í dag  og nær þar af leiðandi ekki að dansa með þeim á sýningunni sem verður á miðvikudaginn. Ég ætla að sjá til hvort hún kemst til að horfa á ef hún verður búin að hrista þetta af mér. 

Ég ætlaði að fá mér jólaklippinguna í dag og einhvern huggulegan lit, pantaði hana með sex vikna fyrirvara hjá Rósu minni á Egilsstöðum og rétt komst að en þurfti að afboða og verð því bara í bítlafíling í des. og hálf litlaus hehe og lifi það líklega af.  

Við hjónakornin skelltum okkur á jólahlaðborð á Brekkunni á laugardag og þar var matur eldaður af Pétri danska eins og hann er kallaður og hann hefur eldað sl. þrjú ár.  Þetta var allt rosalega gott eins og hans er von og vísa. Þarna smakkaði ég kengúrukjöt í fyrsta sinn og það var bara nokkuð gott. Reyndar er þetta too much kjöt fyrir mig en ég gerði forrétinum góð skil, grafinn og reyktur lax nammi namm, svo fékk ég mér líka af kjötinu og var alveg að springa, öndin var geggjuð hún var svo góð og ég væri til að hafa eina slíka á jólunum, veit ekki hvernig karlpeningurinn tekur því ... ekki miklir fuglamenn.  Ég stakk reyndar upp á að hafa hnetusteik á jólunum úr bókinni hennar Sollu nöfnu minnar en ég fékk varla svar við þeirri uppástungu. Ég væri alveg til í það Tounge

Jólaljósin eru að tínast upp í Hólalandinu, ekki finnst serían hennar Dýrunnar, hún fékk að hafa hana fram að afmælinu í fyrra og móðirin lét hana á góðan stað en sá góði staður hefur ekki fundist. Í sárabætur fékk hún stjörnu og það er verið að vinna í málinu. Stofugardínurnar voru viðraðar um helginar og er svo ferskar og fínar núna.

Bakstur og svoleiðist er á rólegum nótum og jólakortagerð í fullum gangi, ég þarf reyndar að spýta í lófana og fara að einfalda dæmið svo ég klári allt fyrir jól. 

Jóganámskeiðin mín klárast í næstu viku og þá tökum við pásu þar til í janúar. Það hefur verið mjög umhleypingasamt svo ekki hef ég komist mikið á göngu en þá er alltaf hægt að skella sér í jóga í kjallaranum og fara í gönguna þegar veður leyfir. 

Planið er að fara til Akureyrar um helgina og láta mæla heyrnina í Dýrunni eftir röraísetninguna. Allt fer það eftir veðri og vindum því okkar litli fjallabíll fer nú ekki í hvaða veðri sem er... Ef það gengur eftir klárum við það litla sem eftir er af jólagjöfum. 

Kannski læt ég í mér heyra aftur á aðventunni.....

Hafið það eins og þið viljið Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo er fólk á stærri stöðum að tala um að það sé aldrei neitt um að vera hérna á Stöddanum, en þetta er nú aldeilis búið að vera fínt.  Heyrðu ég kannast við það að ganga svo vel frá hlutum að þeir finnast ekki hvernig sem leitað er, þetta er kannski í ættinni.

Áslaug (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 13:20

2 identicon

Jahá það er aldeilis mikið um að vera hjá ykkur öllum!

Það verður svo gaman að hitta ykkur öll milli jóla og nýárs ef fjallabílinn leyfir ;)

Þessa dagana eyði ég öllum mínum stundum uppí skóla að læra fyrir próf og væri sko miklu frekar til í að vera að brasa í jólaundirbúningi! Vonandi kemur serían í leitirnar...

Bið að heilsa öllum og góða skemmtun á akureyri:)

halla björk (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 14:47

3 identicon

Úps, baðstu um að borðið yrði við hliðna á þínu.  En þetta reddaðist, pabbinn stóð sig vel sölunni.

Já það er aldeils búið að vera nóg að gera.  En góða ferð norðu, þú átt íta við mér ef þið farið svona upp á mömmukökurnar að gera  hana Ernu.

Þóra (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 22:13

4 identicon

Aðventan er góður árstími og um að gera að láta sér líða vel. Ekkert stress og engin ástæða til stress. Jólin koma og fara alveg sama hvort við stressumst eða ekki. Ég hugsa stundum um gullmolann hennar Áslaugar systur okkar, þegar hún var spurð að því (kannski í gríni) hvort hún væri búin að þrífa eldhússkápana fyrir jólin? Hún hélt nú ekki, því hún ætlaði sko ekki að halda jólin í eldhússkápunum.

Sólrún (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 22:59

5 identicon

Fannstu ekki eitthvað annað sem var löngu týnt og tröllum gefið, í leit þinni að seríunni? Ég er nefnilega alveg með það á hreinu að hlutir týnast til þess að maður geti fundið eitthvað annað sem maður hélt að væri alveg glatað! Núna eru seríur krakkanna týndar - allar aðrar seríur voru á sínum stað í seríukassanum góða - og ég er strax orðin spennt að sjá hvað ég finn í staðinn. Það gæti verið húfan sem Bergur týndi fyrir margt löngu...eða þá eyrnalokkurinn minn sem einmitt glataðist upp úr áramótunum síðustu... Álfarnir hér í Rimanum eru mjög hrekkjóttir en þeir skila flestu aftur - halda því bara mismunandi lengi eftir!

Jólaklippingin var afgreidd í dag hjá öllum nema húsbóndanum á heimilinu svo nú er það frá. Verð að kíkja í "Jólaalmanak húsmóðurinnar" og fá staðfest það sem ég á að taka næst fyrir í jólaundirbúningnum.  Þetta merkisplagg er heimild sem við mamma erum búnar að grenja úr hlátri yfir í gegnum árin, sérstaklega þegar ég bjó enn í heimahúsum og setningin "Í dag skaltu fara með börnin og skoða í búðarglugga!" kom fyrir. Við gátum endalaust séð okkur í anda fara og kíkja á glugga í Kaupfélaginu (sem þá var okkar eina von um spennandi jólavarning) og sjá ekkert nema baksvipinn á afgreiðsludömunum við kassana. Það var ekki eins og það væru flóknar útstillingar í kuffélagsgluggunum í þá daga. Almanakið hefur líklega verið hugsað út frá borgardömunum hér í Reykjavíkinni

Aðventukveðjur úr Grafarvoginum

Hallan (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 23:50

6 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Merkilegt nokk, þá fann ég ekki neitt en um daginn fann ég svolítið sem ég hafði einhvern tíman keypt og hugsað í einhverja gjöf og þar er komin jólagjöfin til Dýrunnar frá Friðriki, hentugt að finna jólagjafirnar inn í skáp. Ég er alveg ágæt á köflum. Serían kemur örugglega í ljós þegar síst skyldi. Þá set ég hana örugglega aftur á góðan stað

Solveig Friðriksdóttir, 4.12.2007 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband