Ferðalag

Það má nú segja að það sé kominn tími á ferðasöguna til Dublin, kominn föstudagur og við komum heim á mánudag. Suss suss.

Ferð okkar hófst á miðvikudegi þegar við flugum til Rvk. Við gistum í góðu yfirlæti hjá Sóla og Hafdísi í Njarðvíkunum og það er á við fimm stjörnu hótel held ég bara, slík er þjónustan. Flugið út var seinnipart fimmtudags svo við gátum sofið út (til níu held ég) og vorum því í rólegheitum og dúlleríi og spjalli fram eftir degi. Mættum svo í flugið í góðum gír. Hittum fljótt hluta af Herbagenginu því flugvélin var jú okkar auk nokkurra sem fengu að koma með til að fylla upp í sætin. 

Flugið er ótrúlega stutt, rúmir tveir tímar og við vorum komin um kvöldmatarleytið upp á hótel, sem var alveg ljómandi fínt utan að gleymst hafði að kenna þrifstelpunum að nota tuskuna markvisst hehe. Við fengum írskan kvöldverð á Hótelinu og þeim þótti nóg um þegar allur þessi hópur kom eins og hungraðir úlfar að matnum. Ég held við höfum klárað það sem var í eldhúsinu.

Hótelið okkar var nánast staðsett úti í sveit og langt í miðbæinn en ástæðan var jú staðsetning ráðstefnuhallarinnar. Í 20 mín. gangi frá hótelinu var smá bæjarkjarni með krám og verslunum og þangað röltum við eftir kvöldverðinn. Ósköp róleg kráarferð og við hjónin vorum komin heim fyrir miðnætti. 

Tókum föstudaginn snemma en það var frídagurinn okkar. Skelltum okkur ásamt þremur skvísum í moll í nágrenninu og þar sinnti ég þeim innkaupum sem voru á listanum. Það voru fimm atriði á listanum: Nærbuxur og brjóstahaldarar á mig, jólakjóll á Dýrunni, skór sömuleiðis og skyrta á Friðrik auk þess átti Jósef að kaupa sér buxur. Við stóðum við listann og keyptum varla gramm meir nema jógabók handa mér og eitthvað smálegtTounge. Jósef var ekki í stuði að máta buxur svo við slepptum því.  Ekkert smá öguð enda búið að ákveða þetta.

Við nenntum nú ekki að hanga lengur í mollinu og drifum okkur heim á hótel með innkaup stelpnanna því þær tóku seinna holl eftir matinn. Við fórum hins vegar í bæinn, tókum strætó sem stoppaði rétt við hótelið og ætluðum að fá okkur sýnisferð í miðbæinn sem tók um klukkutíma. Biðin eftir strætó reyndist hins vegar löng og komið myrkur þegar hann kom, ég gerði reyndar tilraun til að fá far með skólastrætónum er var vísað út. Ferðin tók svo klukkutíma í myrkrinu og föstudagsumferðinni. Þar sem við höfum ekki komið áður til Dublin vissum við ekki hvar við áttum að ráfa eða skoða. Við röltum þarna fram og aftur í ca klukkutíma og skelltum okkur svo til baka og nú gekk heimferðin greiðar. Kvöldið fór svo í slökun, bað með dýrindis baðsalti, hvítvíni og góðri bók.

Á laugardag var ræs hálf sjö, morgunsjeik klukkan sjö og svo með hótelskuttlunni upp í höll. Við vorum átta jaxlar sem mættum fyrst til að taka frá góð sæti, það er partur af prógramminu svo allir Íslendingarnir geti setið saman. Við fengum nett áfall þegar við sáum "höllina". Við erum vön höllum sem taka yfir 10 þús. manns en þetta var bara smá íþróttaheimili lá viðDublin´07 019 enda var þetta innan við 2 þús. manna ráðstefna. En við vorum fyrst í röðinni og það var gaman. Þarna sjáið þið Jósef festa fánann á stöngina til að hafa hann kláran.

Þjálfunin var algjörlega frábær. Hún byrjaði með riverdance frá krökkum og þau voru svakalega flott. Síðan var  það  hver öðrum betri sem steig á svið og ekki skyggði á að Hrafn uppuppuppupplínan mín var kynnir allan laugardaginn. Hann stóð sig frábærlega og náði upp góðri stemningu. Litla Ísland fékk heilmikla viðurkenningu og klapp og margir sem fóru á svið úr okkar lið. Hluti íslenska hópsins sem tók þátt í þríþrautinni í London í sumar kom á svið og sagði frá ævintýrinu og margt fleira. 

Fyrsti dreifingarðili Herbalife Geri Cvitanovich  sagði okkur frá upphafinu í málum og myndum og það var mjög magnað.  Í lok dags var rassinn svolítið aumur þar sem sætin voru frekar hörð og óþægileg. Ekkert mál, úlpan skyldi tekin með daginn eftir og höfð sem púði. Þarna sjáið þið okkur Díönu gleiðbrosandi við sviðið í hádegishléinu og það var svona gaman alla helgina. Dublin´07 037

Við borðuðum á hótelinu á laugardagskvöld með vinum okkar úr hópnum og það var mikil gleði og góður matur, skynsamlegur háttatími og ræs klukkan hálfsjö á sunnudag líka nema við fórum ekki með fyrsta hóp uppeftir þann daginn, leyfðum öðrum að taka sprettinn Grin

Þessi dagur var ekki síðri og sjálfstraust og allt byggt upp vinstri hægri og ýmsar ákvarðanir teknar. Heilinn er við suðumark því það er ekkert verið að stafa ofan í mann, skrifkrampinn orðinn algjör undir lokin og glósurnar ótrúlega skondnar. Stundum byrja ég á ensku, svissa svo yfir í íslensku allt eftir því hvað ég get verið snögg að þýða, þær eru því bæði á ísl. og ensku.

Þjálfunin endaði á riverdance og ekki síðra en í upphafi. Svona upplifun er ekki hægt að setja í orð og ég geymi hana í hjarta mínu en þetta er sú þjálfun sem hefur gert hvað mest fyrir mig privat og persónulega, ójá.

Og til að krydda tilveruna var biðin eftir skutlunni löng og blaut og sem betur fer vorum við með regnhlíf en þrír undir meðal regnhlíf blotna einhvers staðar á endanum. Við vorum sem sagt frekar rassblaut þegar við settumst inn í skutluna. Þeir eru nú ekki strangir á farþegafjölda og það má eiginlega segja að það sé staflað, eins gott að hann lenti ekki í neinu óhappi.  Díana og Jósef voru orðin ansi náin þarna undir hlífinni en ég skellti mér undan henni til að taka myndina. Bara gaman.

Dublin´07 074

Um kvöldið fórum við úr hópnum hennar Halldóru Skúla og Malla saman út að borða á krá ekki svo langt frá hótelinu. Þar fengum við írskan mat og mjög ljúfa og góða þjónustu. Eldri kona sem stjanaði við okkur og var alveg yndisleg. Sagðist ekki hafa fengið Íslendinga í fjögur ár en í þrjú ár hefðu alltaf komið hópar á hverju hausti. Það hefur verið þegar Dublin ferðirnar voru í hámarki. Það var mikið hlegið, ég hef ekki hlegið svona svakalega mikið lengi lengi, þó hlæ ég nú oft hehe.

Þið sjáið hvað var gaman hjá okkur Magga Guðjóns (ættuðum úr Árbæ)

 

Dublin´07 081

 

 

Ég verð nú að segja að hann sé svolíltið sætur, til að gleðja hann.

Flugið heim var næturflug svo við vorum búin að vaka í tæpan sólarhring þegar við skriðum í rúm í Njarðvíkunum og lögðum okkur fyrir flugið austur. Krakkarnir tóku glöð á móti okkur og öll familían fór snemma í bólið það kvöldið enda ferðaþreytan allsráðandi.

Bið að heilsa í bili... 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Flott  ferðasaga  hjá  þér  Solla  sæta,  maður  upplifir  þetta svolítið  aftur þegar maður les  svona frábæra sögu,    hafðu það  eins og  þú  villt,   bestu  kveðjur frá  Casablanca.

Magnús ættaður úr Árbæ..

Magnús Guðjónsson, 24.11.2007 kl. 00:39

2 identicon

Velkomin heim systir góð.Ég var farinn að halda að ferðasagan hefði dagað einhverstaðar uppi hjá þér,en hér kemur hún og ekkert smá flott heimsókn sem þið hafið upplifað hjá frændfólki okkar handan sundsins.

Sigurjón Friðriksson (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 16:36

3 Smámynd: Sigurður Sigurjónsson

Gaman að heyra þessa ferðasögu og ég sá athyglisverðan punkt hjá þér -

"en þetta er sú þjálfun sem hefur gert hvað mest fyrir mig privat og persónulega, ójá."

Ég upplifði svipaðan hlut þegar ég fór til Stokkhólms á stóra en fámenna þjálfun fyrir nokkrum árum. Nálægðin við fólk sem hefur náð árangri, fólk sem hefur tekist á við þau verkefni sem við erum að fást við og unnið sigra. Þolinmæði er dyggð! Áfram Solla!

Þú skrifar einnig um dreng ættaðan úr Árbæ:

"Ég verð nú að segja að hann sé svolíltið sætur, til að gleðja hann."

Er þetta nóg til að gleðja drenginn ? Ekki tók hann við hrósinu í sinni athugasemd hér að ofan. Maggi minn, segja takk....

Kveðja úr sveitinni

Siggi

Sigurður Sigurjónsson, 26.11.2007 kl. 10:49

4 identicon

Þetta hefur verið hörku ferð hjá þér, mín kæra. Það hefur greinilega verið mjög skemmtilegt hjá ykkur og léttleikinn í fyrirrúmi. Alltaf gaman að lesa góðar ferðasögur.   Knúsiknús, Halla

Hallan (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 13:32

5 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Já þetta var rosalega gaman...   Já Siggi minn, sumir eru kurteisari en aðrir annars er Maggi karlinn alltaf sætur og kátur. 

Solveig Friðriksdóttir, 26.11.2007 kl. 15:20

6 Smámynd: Life will never be the same...!!

mmmmm..... góðar minningar frá Dublin.... þræðirnir eru rétt að þorna eftir rigninguna miklu!

Takk fyrir frábæra ferð!

Sjáumst og skjáumst  Díana Mjöll.

Life will never be the same...!!, 27.11.2007 kl. 10:02

7 identicon

Skemmtileg ferðasaga!!!

Áslaug (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 12:42

8 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Er þetta ekki Maggi sem var í Árbæ??  Var oft að vega salt með honum, hann skellti mér eitt sinn hressilega.....flottur karl í dag hahhaha

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 1.12.2007 kl. 17:17

9 identicon

Þetta hefur verið skemmtileg ferð :)

Alda Rut (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 17:49

10 Smámynd: Sólmundur Friðriksson

Skemmtileg ferðalýsing Solla og takk fyrir meðmælin með ,,Hótel Engjadal". Maður þarf kannski að fara að búa sig undir straum farfugla hingað í Njarðvíkurnar . En þetta með Magga og hrósið - mér sýnist hann nú slá þér gullhamra til baka. Það er hægt að þakka fyrir sig á svo margan hátt og hann Maggi er vandur að virðingu sinni, er náttúrulega alltaf með vöruna á vörunum og er því vara vörunnar.... eða þannig.

Sólmundur Friðriksson, 2.12.2007 kl. 12:03

11 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Frábær  umræða  hér  í  athugasemdadálkinum,   til  að  taka  af  allan vafa  "TAKK  SOLLA  FYRIR  AÐ SEGJA  AÐ ÉG SÉ  SÆTUR"  og  fyrst  að  ég  þakka  svona  fínt  fyrir mig  þá  væri  nú  gaman að fara  að  sjá  þennan  sigga66  áður  en  hann verður 66  ára... og  Sóli  takk  fyrir  svo  að  ég gleymi  nú  engum og Fjóla  ég  minnist þess  nú ekki að hafa  skellt þér,  vona  að  þú sért búin  að  fyrirgefa það, hafir þú  meitt þig.   Maður  slær  bara um  sig  með þökkum og  fyrirgefningum á  alla  kanta.  

Allra  bestu kveðjur úr  Sól og sandi í  Sahara  og  endilega hafið það eins og þið viljið..

Magnús Guðjónsson, 2.12.2007 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband