"Litli bróðir og stóri bróðir"
Þriðjudagur, 6. nóvember 2007
Haldið ekki að mín skarti þessum fínu verðlaunabikurum þessa dagana. Sá litli fyrir einstaklingsárangur í liðakeppni í Herbalife hópnum sem ég starfa í og hinn fékk liðið okkar. Reyndar eru þetta farandbikarar og spurning hvort þeir yfirgefa okkur, það fer eftir því hvað við vorum duglegar í okt. ekki er enn búið að reikna saman stigin.
Ég fægi þá og pússa á hverjum degi og dáist að hehe. Það er gaman að fá viðurkenningu fyrir vel unnin störf og er smá krydd í tilveruna.
Nú styttist í næstu Herba ferð og nú fær bóndinn að koma með. Stefnan er tekin á svokallaðan World Team skóla og að þessu sinni verður hann haldinn í Dublin á Írlandi. Þetta er bara gaman og svakalega fræðandi.
Spil dagsins úr bunkanum hljóðar svo:
HAPPINESS is my partner today- Ekki slæmur ferðafélagi það.
Megið þið eiga sem bestan þriðjudag
Athugasemdir
Svaka flottir bikarar! Ekkert smá stolt að hafa fengið að starfa með þér í þessum hópi! Þú ert stórkostleg manneskja og mikil fyrirmynd!
Here we come Dublin!
Kv. Díana Mjöll.
Life will never be the same...!!, 6.11.2007 kl. 17:24
Ó takk sömuleiðis

Solveig Friðriksdóttir, 6.11.2007 kl. 18:04
Vá æði, til hamingju Solla mín. 'Eg á von á voða flottum líka, sýni mynd er kemur.
Fjóla (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 22:45
Til hamingju með árangurinn Solla mín (og Díana
) !! Nú er bara að krossa fingur og vona að bikararnir fari bara til ykkar aftur ! 
Kveðja, Halldóra
Halldóra Skúla (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 09:17
Flottir bikarar og til hamingju, þú átt þetta sko alveg skilið.
Áslaug (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.