Ný vinnuvika
Mánudagur, 5. nóvember 2007
Ótrúlegt hvað það er gott að komast aftur í rútínu hinnar hefðbundnu vinnuviku. Ég veit það eru ekki allir sama sinnis og þá er kannski spurning hvort það þurfi að breyta um starfsvettvang.
Helgin okkar var annasöm en mjög skemmtileg. Fjölskyldan kom saman á föstudagskvöld og eins og við gerum þegar við hittumst öll þá leggja allir í púkk, einhver kemur með salatið og brauð, annar með rétt og annar með annan rétt osfrv. nammi namm. Tilefnið var austurferð Sóla og Hafdísar. Þetta var mjög notaleg stund og dýrmætt að geta átt svona gæðastundir saman.
Nú við gjörnýttum gestina og þau pössuðu meðan við skelltum okkur á Höfn og fórum á árshátíð Eimskips. Það var ekki síður skemmtilegt, góður matur, skemmtileg sýning, skemmtilegur félagsskapur og gott ball. Ég dansaði og dansaði og kom bæði blá og marin og blóðrisa heim. Komst að því að á svona samkomum er ekki gott að vera á skóm með lágum hælum því flestar voru á stígvélum með manndrápshælum svo hælarnir á mér fengu að kenna á því. Ég lét það nú ekki á mig fá og dansaði áfram þar til ballið var búið.
Við gistum og vorum komin heim á Stödda upp úr hádegi. Fleiri góðir gestir voru á svæðinu Auður og Palli kíktu í kaffi með krakkana, reyndar eru þeir fótboltafrændur Friðrik og Kristján búnir að vera saman alla helgina, á sparkvellinum eða í Fifa'08, ná ótrúlega vel saman og með sama skemmtilega húmorinn svo það var mikið búið að hlæja og vitleysast.
Nú er vinnuvikan mín hafin og ég stend fyrir smá valkvíða í morgunmatnum, hvort á ég að fá mér sjeik í safa eða sojamjólk...... hm, ég vel Cappuccino í sojamjólk með frosnum jarðarberjum. Hlusta svo á góða uppbyggingu meðan ég innbyrði hann og vinn Herbavinnuna :) Ekki leiðinlegt.
Spilin sem ég dreg mér daglega og læt stundum fylgja með í bloggið festi ég við tölvuskjáinn en þeim fjölgar alltaf því krakkarnir draga alltaf líka sjálf og líma við hliðina á mínum. Höfum það í huga, börnin gera eins og við gerum, ekki alltaf eins og við segjum. Verum því góð fyrirmynd.
Spil dagsins: By staying FOCUSED I can REACH any goal.
Ég ætla því að vera svakalega einbeitt í dag..........................
Athugasemdir
Takk fyrir þetta Solla, algjör snilld þessi spil! Hvar fæ ég þau?
Ég létti aðeins af mínum valkvíða fyrir þó nokkru með sjeikinn, blanda alltaf í vatn og set frosna ávexti út í.... náttúrulegri ávaxtasafi þannig! Ég á svo enn við valkvíðann að stríða varðandi Formúlu 1 sem ég set út í..... gríp því gjarnan til "GULL"duftsins
Annars er bikarinn kominn á Eskifjörð, sendi ég hann ekki bara með Mr. Jósef á Stöddann??
Halltu svo bara áfram að vera svona frábær!
Life will never be the same...!!, 5.11.2007 kl. 10:05
Hæ, ég segi eins og konan hér á undan: Vertu áfram svona frábær Solla mín. Valkvíða á morgunverði þekki ég ekki, það er banani alla morgna, vatnsglas, vítamín, aloe vera gel og málið dautt hahahhaha
Fjóla (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 11:19
Spilin fékk ég á Hellnum. Guðrún Bergmann gerði þau.
Ég var nú að grínast með valkvíðann því ef mig langar í e-d tvennt í morgunmat fæ ég mér annað í morgunmat og svo hitt í hádeginu hehe. Smá grín !
"GULLIÐ verður ofarlega á listanum núna á næstunni meðan maður sjeipar sig fyrir Dublin" Ótrúlega stutt þangað til.
Hlakka til að fá bikarinn, sá litli er að bíða eftir stóra bróður, þá verður myndað og skellt á síðuna.
Solveig Friðriksdóttir, 5.11.2007 kl. 11:40
Hér er enginn valkvíði.... jarðaberja í vatn, trönuberja og smá appelsínusafa með frosinni berjablöndu, helst mikið af berjum svo úr verður næstum því krap...namm namm... langar bara í núna við það að skrifa þetta.
En Gullið er svo alltaf 1 - 3 sinnum yfir daginn...ýmsit ís kaldur eða heitur súkkulaði...þessi heiti fer að verða í meirihluta núna með kólandi veðri...og þá er jafnvel skvett smá cappuccino útí.
Kær kveðja, Halldóra
Halldóra Skúla (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 23:05
Nammi namm, heitur súkkulaði, hef aldrei prófað hann..... líst vel á krapið líka. Gott að fá nýjar hugmyndir, ótrúleg fjölbreytni.
Solveig Friðriksdóttir, 6.11.2007 kl. 06:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.