Smá andleysi...

Já það hefur eiginlega hálfgert andleysi herjað á mig síðustu daga en ég hristi það væntanlega af mér sem allra allra fyrst. Ég er enn ekki komin með heildar útlit á síðunni minni og ætla að prófa þetta um sinn. Mér þótti hitt of dökkt einhvern veginn, en ég kem ekki skoðanakönnuninni inn sama hvað ég stilli og breyti. Kannski tekst það á endanum :)

 Fjölskyldan eyddi hvítasunnuhelginni Norður í landi í vetrarríkinu þar. Reyndar hlýnaði strax á laugardeginum og það var nokkuð hlýtt á sunnudag. Við duttum í sama letigírinn og oft áður á þessum slóðum en á ekki líka að slappa af þegar maður er í fríi ??

Ég kenndi samt einn jógatíma og safnaði í sarpinn og er núna búin að kenna helminginn af því sem ég á að kenna fram í október. Ég notaði tvær svilkonur mínar sem fórnarlömb og fékk meira að segja heilt jógasetur sem heitir Yoga lundur og vinkona Dóru svilkonu minnar rekur. Hún kom og var með okkur líka. Það var dásamlegt og ýtti enn meira undir þá löngun að hafa eitthvað kósí rými til að kenna jógað mitt, eitthvað sem ég get sett minn persónuleika í, ekki stóran kaldan íþróttasal.

Einhvern tíman eignast ég minn jógalund  er ég viss um.

Nú styttist í skólalok og það er nóg að gera í pappírsvinnu, einkunnagjöf, skráningu og tiltekt. Það er ótrúlegt hvað það safnast mikill pappír á einum vetri já eða níu vetrum því ég ætla að taka mér pásu og er því í allsherjar tiltekt... Það er skrýtin tilhugsun og nú þarf ég að taka á honum stóra mínum og skapa mér sterkari starfsgrundvöll ein og sjálf.

Krakkarnir eru orðin leið og vilja komast út í vorið og er það vel skiljanlegt. Dýrunn mín á núna 2 daga eftir á leikskólanum og er að verða stór skutla blessunin.

Læt smá speki fylgja í lokin: Fylltu garð þinn af ávöxtum og þá mun hann óma af fuglasöng.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott síða Solla mín.  Takk fyrir síðast annars.. verst hvað við fengum mikinn kulda.. annars hefði verið hægt að slá upp almennilegri grillveislu í garðinum hjá þér.  Reyndar þurfum við að vanda okkur betur næst ef við ætlum að hittast svona..  það er nefnilega svo gaman ef vel heppnast og allir eru duglegir að vera með.  Það var óttalegt áhugaleysi síðaðast hjá okkur.  Ég er að fara rúlla inn fólki á heimasíðuna mína og ætla að setja allar þær Stöddarasíður sem ég finn.  Þær eru nú allar mjög málefnalegar nema mín.. ég er alltaf í eigin heimi.. eins og Mr. Bean.  Ég vildi´að ég væri hjá þér í jóga.. mamma er mjög ánægð með þig.. you go girl.  Jæja kær kveðja úr Kópavoginum.  Helga Antons.

Helga Antons stöddari (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 14:54

2 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Takk kerlan. Flott hjá þér að halda Stödda síðunum saman. Já við skipuleggjum betur næst og kannski hentar ekki að vera með svona marga árganga saman, kannski nær bara hver og einn betra contakti. En við skoðum það næst. Þú skellir þér bara með okkur einhvern tíman í jóga þegar þú verður á ferðinni.

Solveig Friðriksdóttir, 31.5.2007 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband