Gróandinn...

Fyndið hvað allt er fljótt að taka við sér. Grasið sprettur eins og því sé borgað fyrir það, blómin spretta í beðinu mínu og byrjuð að blómstra, allt án þess að ég hafi gert nokkuð til að flýta fyrir. Yndislegt vor þó nú hafi komið smá kul aftur.

 Nóg hefur fólkið haft fyrir stafni, við vörðum Hvítasunnuhelginni fyrir Norðan hjá fjölskyldu Jósefs og það var mjög ljúft. Magakveisa hefur aðeins verið að hamra á mannskapnum og ég fékk lengri útgáfuna, velgju og óþægindi í tæpa viku áður en eitthvað gerðist og þá sem betur fer ekki upp Wink.  Gott að eiga nóg af Aloe vera og Florafibre til að slá á einkennin þegar svoleiðis bankar upp á.  Ég náði samt að halda fyrirlestur á svokallaðri HOM kynningu á Akureyri áður en mesta velgjan skall á og það var bara gaman.

Krakkarnir nutu sín í botn með frændsystkinum og voru dugleg að heimsækja laugarnar svo þetta var hin ljúfasta ferð. Ég hvíldi gönguskóna og var mest í lágréttri stöðu enda skást þannig. Enduðum svo ferðalagið í götuveislu í Fellabæ í dýrindis súpu og góðu meðlæti í góðu veðri við varðeld við Lagarfljótið. Komum heim angandi eins og eftir sinubruna. Það þótti krökkunum ekki leiðinlegt, ónei.

 Þar sem veikindi herja sjaldan á mig kann ég ekki alveg að höndla það að vera ekki á fullum snúningi og svona skemmtilegheit eins og heimsóttu mig sem vita ekki hvort þau eru að fara eða koma eru frekar hvimleið hehe. Ég reyni mitt besta að taka því með æðruleysinu, draga andann djúpt og hlakka þeim mun meira til að komast á hressandi göngu.  Allt tekur enda um síðir.

Jóganámskeiðin mín eru að styttast í annan endann og senn líður að skólalokum, prófin framundan hjá krökkunum og svo vordagar, þá ætlum við að gera margt skemmtilegt. Segi frá því síðar.

Bið að heilsa í bili og skelli mér í jógafötin..... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband