Fyrirmyndirnar !
Fimmtudagur, 28. febrúar 2008
Já ég hugsa oft um það hvað það skiptir miklu máli sem foreldri að vera góð fyrirmynd.
Ég las mjög góðan pistil í morgun eftir Denis Waitley. Þar talar hann um heilindin og að breyta rétt, út frá eigin sannfæringu en ekki til að þóknast öðrum. Einnig að það sé samræmi í því sem við segjum og gerum. Hann tók gott dæmi: Þegar ég sagði börnunum mínum að taka til í herbergjunum sínum bentu þau mér á allt draslið í bílskúrnum. Þegar ég predikaði um hve heiðarleikinn væri mikilvægur bentu þau mér á radarvarann sem ég hafði keypt mér í bílinn o.s.frv.
Í pistlinum birti hann ljóð sem hann hafði endurskrifað. Það er eftir Edgar A. Guest og heitir Sermons we see. Læt það fylgja á ensku svo það missi ekki sjarmann.
" I´d rather watch a winner, than hear one any day.
I´d rather have one walk with me, than merely show the way.
The eye´s a better pupil and more willing than the ear.
Fine counsel is confusing, but example´s always clear.
And the best of all the coaches are the ones who life their deeds.
For to se the truth in action is what everybody needs.
I can soon learn how to do it, if you´ll let me see it done.
I can watch your hands in action, but your tongue too fast may run.
And the lectures you deliver may be very wise and true.
But, I´d rather get my lessons by observing what you do.
For I may misunderstand you and the high advice you give.
But ther´s no misunderstanding how you act and how you live.
I´d rather watch a winner, than hear one any day. "
Þetta finnst mér ótrúlega flott. Þegar ég var lítil skotta og langaði að fá að brasa hitt og þetta á heimilinu leyfði mamma mér að taka þátt. Ég man eftir að hafa fengið bunka af viskastykkjum sem ég straujaði við strauborðið sem var lækkað, ég fékk að baka og elda og hitt og þetta. Þetta fannst mér gaman og bý vel að því þó straujunar áhuginn hafi dofnað hratt .
Þegar ég var komin til manns og ekki alltaf tilbúin að gefa mér tíma til að leyfa börnunum mínum að hjálpa sagði hún "Leyfðu þeim að taka þátt þó þú vitir að þú gerir það betur og sért fljótari að því. Þau búa að því alla ævi". Hún sagði jafnframt að þegar hún var stelpa fékk hún aldrei að taka þátt í neinu sem viðkom eldhúsinu en fékk að skúra og skrúbba lon og don og vinna ýmis önnur verk enda sagði hún að það hafi vantað mikið upp á kunnáttu sína í eldamennsku þegar hún fór að búa.
Venlig hilsen þar til næst kveðjur til allra sem eru góðar fyrirmyndir
Athugasemdir
Góð hugleiðing systir góð.
Sigurjón. (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 13:20
Holl lesning!
Sólrún (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 10:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.