Sól í sinni......en rigning úti.

Já sem betur fer rignir ekki í sálinni á mér  enda ákvað ég að hafa sólskin þar í dag. Úti rignir og rignir svona með hléum, styttir aðeins upp en svo kemur það aftur. Í gær gaf ég mér þá afsökun fyrir að ryksuga ekki að það væri ekki nægilega bjart, ég þyrfti dagsbirtuna. Eiginlega nennti ég því ekki og kannski fínt að birtan var ekki meiri þá sá ég ekki rykið. Ætli sú gráa (ryksugan) fari ekki á rúntinn einhvern tíman í dag þó það létti ekki til. Það er nefnilega hægt að kveikja ljósið.

Ég skellti sólarmyndinni frá því í okt aftur upp á forsíðuna mína en þegar sólin sést á þessum árstíma er hún alveg svakalega falleg. Þessi er ekki síðri, var tekin á aðfangadag rétt áður en sveinarnir bönkuðu uppJól og áramót 007á.  Þarna rétt skreið  hún yfir Hnútuna á Kambanesinu.

Þegar ég bjó í Reykjavíkinni og pabbi var enn á lífi fékk ég reglulega sólarlýsingar þegar ég hringdi heim. "Nú fer hún ekki yfir Hnútuna" "Nú er hún komin yfir hálsinn" Ekki skrýtið að fylgst hafi verið með sólarganginum hjá þeim því útsýnið yfir fjarðarkjaftinn og Kambanesið er rosalega flott og gott innlegg með kaffibollanum.

Talandi um kaffi, nú eigum við hjónin svo aldeilis ljómandi kaffimaskínu sem lagar einn og einn bolla í einu, svona expresso. Jósef gerði varla annað á jóladag en að hella sér upp á kaffi og meira að segja ég fékk mér líka bolla, að sjálfsögðu Cappuccino. Þannig að kaffiunnendur geta rekið inn nefið og fengið sér kaffitár.  Ekki var það verra að mamma gaf okkur sitt hvorn kaffibollann svo það er hægt að njóta kaffisopans úr glænýjum bollum. 

Að öðru leyti erum við enn að vinda ofan af okkur eða eiginlega smáfólkinu, þau sofa enn frameftir og ætli við þurfum ekki að nýta helgina í að koma þeim á rétt ról áður en skólinn byrjar.  Þetta voru fyrstu jólin sem við vorum ekki vakin eldsnemma af börnunum og iðulega vorum við komin á ról á undan þeim því ekki nenni ég a.m.k. að liggja lengur í rúminu en ég þarf. Hvað ætli verði langt þar til ég fer að kvarta yfir útsofelsinu hjá þeim ? Ekki gott að segja..

 Sendi ykkur bestu kveðjur inn í helgina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt ár kæra fjölskylda.

Hérna í danaveldi má segja það sama sól í hjarta en dimmt úti búið að vera þoka en ekki rigning en í dag 4 jan er bara skít kalt (afsakið orðbragðið) en við fengum dásamlegt veður á gamlárskvöld (dag) sól og stillu bara næs.

Hér er annars allt gott að frétta byrjuð að kenna eftir jólafrí og nemendur misupplagðir að mæta í sykursjokki ásamt fleiru en só bara að taka á því með sæli á vör.

Annars var ég að skoða heimasíðuna hja grunnskólanum og sá að engin vill fá tölvupóst sem vinnur þar (eitthvað órhreint í pokahorninu hahah) fann ekkert á síðunni nema myndir sem er að sjálfsögðu bara dásamlegt og vá hv´ð allir eru orðnir stórir og ég sem eldist ekki neitt fæ bara fleiri og fleiri barnabörn eru dæturnar eða eiginmennirnir eitthvað jú nó vot.

Jæja gott að rugla svolítið og fá eitrið ú kroppnum og halda áfram því sem allir eru að berjast við AÐ LOSNA VIÐ KÍLÓin....... merkilegt það gengur bara vel.

Ok snúllurnar mínar bið að heilsa öllum á Stöddanum og endilega að skoða heimasíðuna okkar og að sjálfsögðu að skrifa í gestabókina

Koss og knús til ykkar allra.

Inga Dóra

123hjemmeside.dk/is-desing

Inga Dóra (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 13:53

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Hæ Solla, já sólin er fögur yfir Kambanesinu.  Inga Dóra, vá gaman að heyra frá þér, komst ekki inná síðuna þína kona.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 4.1.2008 kl. 21:21

3 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Ótrúlega  flott  mynd  hjá  þér,  ég  fæ  alltaf  pínu sælutilfinningu þegar  ég sé  Kambanesið  með eða án sólar,  því  óvíða var nú  betra útsýni á  Kambanes  en úr  Árbæ.   Kíki í  kaffi  næst þegar ég verð á ferðinni  og  ég óska þér  góðs  gengis í að snúa  ofan af  börnunum,  ég  er  að vinna  í  einu svona  case  sjálfur.. 

Hafðu  það svo eins og þú vilt á  nýja árinu  Sólarkveðjur úr Kópavogi..

Magnús Guðjónsson, 5.1.2008 kl. 09:37

4 Smámynd: Fallega fólkið í Leeds

Já...ekkert smá flott mynd !  Ekki amalegt að sitja með góðan kaffibolla....ja eða með heitan Herba-Te bolla með slurk af Aloe djús útí og horfa á þetta útsýni. 

Kveðja Halldóra

Fallega fólkið í Leeds, 6.1.2008 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband