Bragðvont stál
Mánudagur, 10. desember 2007
"Mér finnst þetta stál ógeðslega vont" sagði Dýrunn en sökum þess hve hún reyndist lág í járni fékk hún járnmixtúru sem henni þykir frekar bragðvond. Hún mundi ekki alveg hvers kyns málmur þetta var svo svona kom þetta upp úr henni. Hún er að hressast og fór í skólann í dag eftir viku fjarveru en tekur því rólega. Við skruppum samt á Fáskrúðsfjörð í blóðprufu og á morgun fáum við úr henni. Hún fær að fara með vinkonunum í Egilsstaði að hitta fimleikahópinn, þær ætla að gera eitthvað skemmtilegt, spila bingó og fleira.
Hafið þið heyrt af pabbanum sem var svo duglegur að skreyta húsið sitt og lét seríur allan hringinn á þakinu (á Hólalandi 18 sem er þokkalegt þak)? Sko, seríurnar virkuðu í fyrra þegar þær voru teknar niður svo það var ekki talin ástæða til að prufa þær áður en þær voru settar upp..... Þegar hann sagði "Verði ljós" gerðist ekkert. Það er bara búið að fara tvær ferðir upp á þak til að reyna að finna perurnar sem ekki virka en allt kemur fyrir ekki. Gurra hélt um daginn að það væru geimverur uppi í brekku þegar hún sá fjólublátt ljós hreyfast ótt og títt að því er virtist í brekkunni. Þá var það Jósef uppi á þaki með ljósið hans Friðriks sem hann fékk frá slökkviliðinu. Sumir hafa núið honum þessu nokkuð um nasir og ónefndur skólastjórin í þarþarnæsta húsi sendi Jósef sms þegar hann var með sína seríu á eldhúsborðinu og búinn að kveikja á henni. Vonandi finnst hvað er að svo við getum fengið lýsingu á þakskeggið fyrir jól.
Í dag fer gamla Toyotan í skoðun og ég krossa fingur og vona að allt sé í lagi. Hún virkar fínt þessi elska en orðin svolítði slitin, aðallega sætin og henta ekki vel til langferða, ráðlagt að taka teygjustopp reglulega, hléæfingar hétu það í frystihúsinu. Hún hefur fylgt okkur í gegnum súrt og sætt og gerir það enn um sinn þar til við sjáum smugu til að uppfæra í nýrra eintak. Hún fer sennilega bráðum að flokkast undir fornbíl. Ég get þá kannski brunað á henni suður og sýnt hana á hafnarbakkanum á 17. júní eins og hina fornbílana hehe.
Ég var að glíma við að setja aðventuljósið mitt sem toppmynd á síðuna en það gekk ekki vel, þið sjáið brot af gardínunum fallega rauðar svo ljósið kemur hér. Smá jólajóla.
Hafið það áfram eins og þið viljið á aðventunni.....
Athugasemdir
Þetta er nú bara ágætis aðventutoppur.
Sjonni (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 17:06
Ég sé að jólaserían er komin upp, þetta hefur þá gengið að lokum..
Alda Rut (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.