Stafganga og strengir

Já maður lifandi töluvert miklir strengir skal ég segja ykkur. Ég kláraði seinni hlutann á leiðbeinandanámskeiðinu í stafgöngu í gær. Fyrri hlutinn var verklegur og okkur kenndar ýmsar æfingar sem við getum notað fyrir framhaldshópa, einfaldar leiðir til að skella upp stöðvaþjálfun nánast hvar sem er og alltaf nýtast stafirnir í æfingarnar, mjög skemmtilegt. Við gengum líka góðan spöl og tókum spretti og ýmis form af þolþjálfun. Þolið var fínt en í dag hafa læðst í mig strengir, aðallega í lærin og vöðva framarlega innanlæris eftir framstigið úr stöðvaþjálfuninni svo það er erfitt að fara niður tröppur, einnig aftan í upphandleggnum eftir eina góða.

Mér finnst samt alltaf gott að fá strengi því þeir segja mér tvennt, ég er ekki alveg í toppformi hehe og að ég hef tekið á. Tounge

Veðrið hér í dag er alveg yndislegt, kalt, logn, sólskin og hvít jörð. Við Friðrik skelltum okkur á stafgöngu í morgun og sá hraði hentað mér því stengirnir leyfðu ekki mikinn kraft. Gott að liðka sig aðeins. Friðrik er ansi liðtækur með stafina og nær nokkuð að ganga með góðri samhæfingu handa og fóta en svo fylgdu með fótskriður og tilheyrandi flug á stöfunum enda meira til gamans fyrir hann að fá að hafa þá.  Nýgræðingurinn skartaði sínu allra fegursta en strípaði hlutinn sem sógræktarfræðingurinn snyrti svo hressilega í vor er ansi dapurlegur, skil ekki alveg fræðin sem liggja þar að baki en ég er ekki skógræktarfræðingur heldur. 

Sólin skein á snjóinn og hann glitraði eins og milljónir kristalla lægju þarna á víð og dreif. Við komum svo heim með frosnar tær og kaldan nebba og héldum áfram með gluggamyndirnar sem er aðal áhugamál barnanna (og móður) þessa dagana. Ég keypti liti til að útbúa gluggamyndir og nú er teiknað og teiknað.

Reyndar er jólagírinn óðum að hellast yfir okkur og ýmislegt farið a planleggja, piparkökuhús og jólakortagerð svo fátt eitt sé nefnt. Búið að taka myndina í jólakortið og hún komin í fjölföldun. Ég hef ekki föndrað jólakortin í fjöldamörg ár hvað þá skrifað í þau, bara pantað tilbúin en núna langaði mig að gera þau sjálf. Það verða engar miklar krúsídúllur og krakkarnir fá sem mest að setja þau saman, einfalt.

Læt þetta gott heita í bili.... kannski kemur eitthvað frá mér fyrir Dublinarferð eða ekki Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er líka að fá smá jólafiðring í mig. Langar til að gera einhver ósköp en á örugglega ekki eftir að framkvæma helminginn, frekar en fyrri daginn :-)

Takk fyrir góðar kveðjur. Ég horfði uppeftir til þín þegar ég fór þarna framhjá á föstudaginn var. Vorum í smá vöfflukaffi í Heiðmörkinni.

Góða ferð og skemmtun í Dublin.  Hilsen, Halla

Hallan (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 23:06

2 identicon

Góða ferð !!!!!!!!!!!!!!!!!!

Fjóla Þorsteins (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband