"Þetta er lífið...."

.... sagði Dýrunn nokkrum sinnum á þessum fallega sólardegi. Ég hóf daginn með jógakennslu en þessa dagana býð ég upp á jóga klukkan 6:30 á þrið og fim morgnum á leikskólanum. Námskeiðinu í íþróttahúsinu lýkur á morgun og hinir tímarnir eru fyrir morgunhana. Það var bara einn morgunhani eða kannski hæna sem mætti í morgun, hún Rósa frænka og hún var í sæluvímu eftir tímann. Hún er að koma sér aftur í form eftir að hafa átt hann Emil krúsídúllu fyrir 1 1/2 mánuði. Næst ætlar hún að drífa mömmu sína með. Að byrja daginn á þessum nótum er alveg yndislegt og þar get ég tekið undir frasann hennar Dýrunnar "Þetta er lífið". Hún kom með þennan frasa þegar við vorum að renna úr hlaði frá mömmu eftir hádegi. Ég skilaði til hennar litla orfinu sem ég fékk lánað og krakkarnir biðu í bílnum með rúðurnar niðri því sólin skein og það var mjög heitt í bílnum. Þegar ég kom út hallaði Dýrunn sér út og sagði dreymin á svip þessa gullnu setningu "þetta er lífið".  Það þarf ekki mikið til að gleðja smáfólkið. Um hálf þrjú gengum við mæðgur af stað í sund, hittum Friðrik á leiðinni og biðum á balanum meðan hann hljóp heim og sótti sunddótið. Ég æfði höfuðstöðuna og náði að halda henni alveg svolitla stund, æðislegt að gera hana svona úti en ég hef lítið æft hana og er enn að vinna upp styrk til að halda henni. 

Við dóluðum okkur tvo tíma í sundi og það var yndislegt. Potturinn var það heitur að ég var eins og jójó upp úr og á bekkinn til að sóla mig. Skellti mér svo í laugina og flaut á stóru flotdýnunni í sólinni. Dýrunn var á hinni dýnunni og svo kallaði hún þessa gullnu setningu "mamma, þetta er lífið". Ég var henni hjartanlega sammála og vona að þeir verði sem flestir í sumar dagarnir þar sem við njótum lífsins svona fram í fingurgóma.

Í kvöld renni ég til Breiðdalsvíkur með nokkrar stelpur úr heilsuhópnum mínum og við ætlum að sameinast með hópnum þeirra Helgu og Svandísar og borða eitthvað hollt og gott.

Já þetta er lífið,  njótið þess !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband