"Gullkorn barnanna"
Fimmtudagur, 31. maí 2007
Nú er ég í tiltekt á vinnuborðinu mínu og það má eiginlega líkja þessu við fornleifauppgröft. Ég fann nokkra gullmola úr sérkennslufórum mínum sem mig langar að leyfa ykkur að njóta. Þetta er í tengslum við orðskýringar og er engan veginn rekjanlegt til viðkomandi.
Engill - Engill flýgur í loftinu og leggst á skýin þegar hann er þreyttur.
Ull - í gamla daga var gamalt fólk að kemba ull.
Kella - Kella er kona
Ausa - Ausan getur náð kjötsúpunni upp úr pottinum.
Eyja - Eyjurnar eru sumar fyrir sjóræningja og þar geta verið leynistaðir með kistum með peningum, silfri og demöntum.
Sjón - Það er gaman að hafa sjón, svo ég geti nú séð.
Saga - Hér er saga um mann sem var alltaf að saga tré.
Mátti til með að deila þessu með ykkur ! Haldið áfram að eiga góðan dag.
Athugasemdir
Þetta er yndislegt.
Áslaug Friðriksdóttir (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 20:05
Þetta verður að fara í Gullkornabankann!
Sólrún (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 21:49
Heil og sæl gamla skólasystir, gaman að lesa bloggið þitt - það er semsagt komið í „Favorites“ listann hjá mér. Er einmitt þessa dagana í sömu vorverkunum og þú í vinnunni. Svo er það sumarið framundan!!! Kær kveðja frá Sauðárkróki.
Anna Steinunn Friðriksdóttir (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 23:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.