Heilræði
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Þar sem ég er mikið fyrir heilræði og spakmæli af ýmsu tagi er eitt gott hér....
"Gerðu það sem þú ætlar að gera, þegar þú ætlar að gera það, hvort sem þig langar til þess eða ekki"
Ég nýti mér þetta óspart oft með góðum árangri því ég á það til að fresta hlutunum eða slökkva á klukkunni og kúra hálftímanum lengur þó ég hafi ætlað mér eitthvað verkefni í morgunsárið.
Í gærkvöld flutti ég erindi um slökun og hugleiðslu á aðalfundi Krabbameinsfélags Austfjarða. Það mættu tólf á fundinn og ég held ég hafi flutt pistilinn minn skammlaust, var ekkert of stressuð og nokkuð skýrmælt hehe. Svo slökuðu allir á í ca 5 mín undir leiddri slökun áður en fundi var slitið og tekið til við ástarpungana hennar Distu, ostaköku, heitan rétt og flatbrauð. Pungarnir slóu svo í gegn að sumar fengu nesti með í poka heim. Dista er algjör pungameistari. Hún bakaði handa Hvalnessystrum fyrir hittinginn okkar um daginn og þeir runnu ljúflega niður".
Í framhaldinu bauðst mér verkefni tengt félaginu í lok sumars og er tengt jóganu. Félagið hefur boðið fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum að dvelja eina helgi í Kirkjumiðstöðinni á Eiðum í lok sumars. Þetta er helgi með áherslu á slökun og spennandi verkefni að takast á við fyrir nýjan jógakennara.
Venlig hilsen og passið ykkur að brenna ekki í sólinni í dag..... P.S. Ég hef þrusu gott rakakrem til sölu úr NouriFusion línunni frá Herbalife með sólar og veðravörn upp á 15, gjörsamlega frábært. Kíkið á eða pantið prufur
Athugasemdir
Gott hjá þér og til hamingju með verkefnið.
Þóra Bj. (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 16:01
Kæra systir.
Tek undir með Þóru og segi til hamingju.Þú ert vel að þessu komin.
Sigurjón Snær Friðriksson (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 21:05
Þetta er frábært, til hamingju!!!!
Áslaug Friðriksdóttir (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 13:50
Ég er stoltur af þér lilla sys! Svo væri hægt að útfæra samstarf ykkar Distu enn frekarog þú myndir bæta góðu dufti í pungana hennar ...
Sólmundur Friðriksson, 25.5.2007 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.