Búið að útskrifa karlinn...
Miðvikudagur, 13. febrúar 2013
Jæja, þá er bara búið að útskrifa karlinn. Hann var svo rogginn að hann hljóp næstum niður tröppurnar á hæðunum tveimur og stikaði upp á aðra hæð hjá Höllu þegar heim var komið eins og ekkert væri.
Heimför plönuð á sunnudag. Ætlum að koma við á hjartadeildinni og fá fleiri línur lagðar þar, resept og slíkt. Svo home sweet home.
Nú tökum við því rólega fram á sunnudag. Teknir verða reglulegir göngutúrar upp og niður tröppurnar og einhver hringur hér í kring.
Þeir tóku blóðsykurspróf í morgun til að athuga með sykursýki og niðurstaðan var sú að hann er ekki með sykursýki2 en gæti þróað hana með sér því það er einhver dysfunktion í úrvinnslu á sykri. Það er þá enn frekar staðfest hve þörf er á breyttu eða fjölbreyttara mataræði. Hann reddar því með einari.
Knús yfir hafið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.